Heimili og skóli - 01.12.1944, Page 23

Heimili og skóli - 01.12.1944, Page 23
HEIMILI OG SKÓLI 99 ÖRN SNORRASON: Hávaðinn og börnin Við barnakennararnir eigum marg- an vanda við að stríða, og er sá ekki minnstur að reyna að kenna börnun- um prúða framkomu og temja þeim jþær umgengnisvenjur, sem beztar mega teljast. Við eyðum miklum tíma og orku til þess að reyna að fága fram- komu barnanna, og ber hvort tveggja til, að við álítum það eina helztu skyldu okkar, og svo yrði ólíft og ill- kennandi í skóla, þar sem nemendurn- ir væru siðlausir í umgengni, og færi árangur allur þar eftir. Börn í þéttbýlinu eru mjög óstöðug í rásinni um alla framkomu. Þau ganga vel um skólana og koma þar yf- irleitt vel fram, en á götum og sam- komum eru þau ærslafengin og há- vaðasöm, svo að úr hófi keyrir, Er nú svo komið, að þau eru varla hafandi á samkomum, ef fullorðna fólkið á að geta notið þess, sem fram fer, og að líkindum hafa börnin aldrei verið há- værari í skólunum en nú. Þessi hávaði er mjög hvimleiður og auk þess sið- spillandi. Hann er eins og myrkrið, í skjóli hans þrifst ýms ruddamennska og óknyttir. Hér skal ekki reynt að telja orsakir þess, hve börnin eru æst og hávaða- söm. Þær eru margar, og liggja rætur þeirra vafalaust djúpt í umhverfinu og þeirri samtíð, sem við lifum í, og eiga þar margir sök á. Ég býst því ekki við, að auðvelt sé að eyða rótum meinsins og lækna það á hinn æski- legasta hátt, en þó má ekki leyfa börn- unum að vaða uppi með þennan hávaða, einkum vegna velferðar þeirra sjálfra. Við kennararnir reynum að berjast gegn honum í skólunum, bæði beint og óbeint, en við þörfnumst samstarfs annarra aðila ef æskilegur árangur á að nást. Sá samkomustaður, sem börnin sækja helzt, er kvikmyndahúsin. Barnasýning er hér á Akureyri einu sinni í viku, og þar eru ærsl og hávaði úr hófi fram, og hefur svo verið árurn saman. Okkur kennurunum hefur lengi verið það þyrnir í augum, að börnunum skuli haldast uppi að haga sér þannig á þeim einu samkomum, sem þau sækja að ráði, og var farið þess á leit við stjórn kvikmyndahúss- ins fyrir nokkrum árum, að hún hefði hemil á börnunum, en hún tók því ekki líklega og taldi það ekki í sínum verkahring. Nú skal ekkert um það sagt, hve mikia menningu eða ómenningu sjálf- ar kvikmyndirnar færa börnunum, en hitt má fullyrða, að í kvikmyndahús- inu venjast þau á að láta illa á sam- komum og taka ekkert tillit til þeirra annarra, sem njóta vilja þess, sem fram fer. Þetta eru vandræði, sem þarf að leysa, og ætti lögreglan að taka .málið að sér og reyna, í samráði við stjórn kvikmyndahúsa og barnavernd- arnefndir, að koma einhverju menn- ingarsniði á Joessar samkomur, en ráð- ið til þess er ofur einfalt. Það þarf að láta helztu ólátaseggina út, og er börn- in sjá hvað við liggur, munu þau fljótt breyta um til batnaðar. Þetta er að vísu ekki frumlegt ráð, en það eina sem dugar, og það verður heldur að grípa til þess en eiga það á hættu, að ómenning vaði uppi framvegis á öll- um almennum samkomum.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.