Heimili og skóli - 01.12.1944, Page 26
102
HEIMILI OG SKÓLI
Úr skólaslitaræðu.
------Það er sannfæring mxn, að enginn mað-
ur finnur fullnægju sína sem ríkisborgari eða at-
vinnurekandi — en þó allra sízt konan. — Sína
innstu, helgustu köllun sem kona, uppfyllir hún
ekki úti í þjóðfélaginu, heldur á heimilinu sem
móðir og eiginkona. — Ég held, að eitt mein
vorra tíma liggi í því, að konur vanrækja þessa
köllun og hafa hana ekki nógsamlega í heiðri,
lita ekki heldur á hana sem þjóðfélagslega
skyldu, en kasta henni oft frá sér fyrir falskar
frelsiskröfur og annað fánýti. Of margar konur
hafa lært að líta á móðurstarfið sem skyldu,
hjónabandið sem þrælkun og heimilið sem
þröngan hring. En mig langar til að snúa þessu
við og segja: Allt þetta eru einkaréttindi ykkar,
sem þið eigið að vernda, vaka yfir og verja ti!
hinztu stundar. Og það er at' því, að þið eruð
hvergi í samræmi við það bezta í sjálfum ykkur
nema þarna.-------
------Dýpstu þrá barnsins verður ekki svalað
nema á einum stað á jarðrtki og það er í móður-
faðminum. Og það er af því að þar, og hvergi
nema þar, á jarðríki, er að finna þann kærleika,
sem allir menn eru alltaf að leita að.----
(Sigrún P. Blöndal. Hlín 1938).
Seiðurinn mikli.
Svo nefnist bók, sem nýlega er xit komin á
vegum Iþróttasambands Islands og Stórstúku Is-
lands, en Pétur Sigurðsson erindreki hefur tekið
bókina saman. Aðalefni bókarinnar, sem er
prýdd mörgum myndum, eru ummæli margra
landskunnra og heimskunnra manna um áhrif
áfengisnautnar á menningu einstaklinga og
þjóða, og komið víða við. Þarna er teflt fram
mönnum, sem erfitt er að saka um þröngsýni og
ofstæki, og ættu því allir að geta lesið hókina,
sem hugsa vilja alvarlega um þetta mikla þjóð-
félagslega vandamál. Öll eru ummæli þessara
manna hin merkustu og einarðleg og hreinskilin
viðvörun gegn áfengisnautninni og öllum fylgi-
fiskum hennar.
Þetta hefti Heimilis og skóla
er 22 lesmálssíður og er þar með lokið 3. ár-
gangi ritsins. Við það tækifæri er ástæða til að
HEIMILI OG SKÓLI I
— Tímarit um uppeldismál. —
Út&efandi Kennaraféíag EvjafjewOar.
Ritið kemur út í 6 heftum á ári,
minnst 16 síður hvert hefti, og kostar
árg. kr. 8,00, er greiðist fyrir 1. júní.
Útéáfustjórn:
Snorri Sigfússon, skólastjóri.
Kristján Sigurðsson, kennari.
Hannes J. Magnússon, kennari.
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Eiríkur Sigurðsson kennari, Hrafna-
gilsstræti 12. Akureyri. Sími 262.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems
götu 20, Akureyri. Sími 174.
Prentverk Odds Björnssonar.
þakka öllutn velunnurum þess fyrir drengilegan
stuðning, og sem betur fer hefur þeim stöðugt
fjölgað. Því er það von útgefenda, að ritið megi
halda áfram að koma út og ef til vill stækka
eitthvað í nánustu framtíð. Gleðileg jól og gott
og farsælt nýtt ár.
I smágrein
neðst á 70. síðu, í síðasta hefti, hafði slæðzt
inn meinleg og óskemmtileg prentvilla: orðstýrr
fyrir orðstír. Enn fremur í síðustu grein á óft-
ustu síðu: efniheiminn fyrir efnisheiminn.
Athugið.
Nýir kaupendur fá síðasta árgang ókeypis, á
meðan upplagið endist, hvort sem þeir gerást á-
skrifendur að þessurn árgangi, eða árganginum
1945.
Útsölumönnum eru greidd 20% í sölulaun.
Nýir útsölumenn óskast.