Heimili og skóli - 01.02.1949, Side 12
8
HEIMILI OG SKÓLI
Að loknu starfi.
hundruð plöntur, en það var sú
plöntutala, sem við höfðum til um-
ráða.-----Eftir nokkra hvíld og rabb
um hitt og þetta, var haldið heim á
leið og nú lagt land undir fót. Allir
voru glaðir og ánægðir og léttir í spori.
Þóttist ég geta lesið í hverju andliti, að
þessum tíma hefði verið vel varið. —
Komið var heim kl. 21.
Þegar ég, seint um kvöldið, lét hug-
ann reika til atburða liðins dags, til
þessarar fyrstu skógræktarferðar barna-
skólanema í Húsavík, fann ég glöggt,
að vonir þær, sem ég hafði gert mér,
höfðu í engu brugðizt. Börnin höfðu
augljóst yndi af starfinu og sýndu við
það lagni og nákvæmni, svo sem bezt
varð á kosið. Þá strengdi ég þess heit,
að meðan ég starfaði við þessa stofnun,
skyldu elztu nemendurnir, að minnsta
kosti, gróðursetja nokkrar plöntur á
hverju vori. Það væri þúsund sinnum
betur þegið, — þúsund sinnum líf-
rænna, en margt af því þurra bók-
námsstagli, sem við bjóðum hinum
ungu nemendum. — Þessi dagur sann-
færði mig um, að börn geta auðveld-
lega unnið þessi störf, með leiðsögu
fullorðinna, og með því unnið merki-
leg þjóðnytjastörf, þótt ung séu. Hann
sannfærði mig um, að áskorun uppeld-
ismálaþingsins 1947 var rétt: skógrœkt
á að verða fastur liður i starfsem'i is-
lenzkra barnaskóla, — og helzt allra
skóla landsins.
Fanney, ársrit fyrir börn. Útgefandi: Ei-
ríkur Baldvinsson. Fyrir nokkrum árum kom
út mjög vinsælt barnatímarit með þessu
nafni, sem hefur nú legið niðri um mörg ár.
Nú er Fanney komin af stað á ný í fallegum
búningi og flytur sögur, leiki og ævintýri o.
m. fl. ásamt fjölda mynda.