Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 22
18
HEIMILI OG SKÓLI
Álfur í útilesu
Svo nefnist lítil en falleg bók, sem
kom út skömmu fyrir jólin. Höfund-
urinn er Eiríkur Sigurðsson kennari,
Akureyri, en útgefandi er Bókaútgáfa
Pálma H. Jónssonar. Þetta er saga um
átta ára sveitadreng, sem fer í útilegu
með föður sínum snemma vors, til að
gæta sauðfjár. í útilegu þessari kemst
hann í ýmiss ævintýri og kynnist
mörgu, sem hann hafði aldrei áður
þekkt. Inn í þetta fléttar höfundurinn
svo ýmiss konar þjóðlegan fróðleik,
sem gefur bókinni sérstakt gildi. Þetta
er sveitasaga og Álfur litli er ósvikið
barn náttúrunnar. Ég trúi ekki öðru
en að íslenzkum börnum þyki gaman
að lesa um Álf í útilegunni og fylgjast
með öllum ævintýrum hans þar.
Bókin er prýdd nokkrum smekkleg-
um myndum eftir Steingrím Þorsteins-
son.
H. J. M.