Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.02.1949, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI 19 REGLA OG ÓREGLA í skáldsögu sinni „Ljónharður og Geirþrúður“ segir Pestalozzi frá þjófi, sem sagði við böðulinn, þegar hann var að fara í gálgann: „Ef faðir minn hefði aðeins kennt mér að hengja föt- in mín snyrtilega á snagann á hverju kvöldi, þá stæði ég ekki hér nú.“ Á bak við þessi orð felst löng og sorgleg saga, — saga um það, að hið stærsta og ægilegasta á oft rót sína að rekja til hinnar minnstu vanrækslu, beinlínis vegna þess, að sérhver venja sýkir frá sér, hvort sem liún er góð eða vond. Og ef til vill er ekki til sú venja, sem sýkir eins mikið allar hugsanir og at- hafnir mannanna, og óregla. Ef aðeins einn hestur, sem er í orustu, snýr við og flýr, fær það svo mjög á hina, að þeir snúa við fíka. Og aðeins einn maður, sem hefur upp fánann og sæk- ir aftur fram, getur oft kornið því til leiðar, að flýjandi herdeild nemur staðar. Á líkan hátt er því varið með éreglu og hirðuleysi. Ef við framkvæm- um aðeins eitt hlutverk, sem okkur er trúað fyrir, hroðvirknislega og kæru- leysislega, eða þegar við, á hirðulaus- an hátt, köstum frá okkur klæðnaði okkar, hefur það fælandi áhrif á all- ar okkar athafnir og stöðvar þær á miðri leið. En ef við leggjum okkur fram við þau störf, sem við tökum að okkur, er sem öll sú bezta orka, sem í okkur býr, fái byr undir báða vængi. Þið skiljið kannske bezt, hvað ég á við, «f ég reyni að lýsa fyrir ykkur, hvernig larið hefur smám saman að stefna í óheillaátt fyrir þjófnum, sem ég tal- aði um. Ég hugsa mér sögu hans eitt- livað á þessa leið: Hann kastaði fötun- um sínum hirðuleysislega allt í kring um sig, og þessi venja sýkti allt, sem hann tókst á hendur, eins og farsótt. Bókatöskunni sinni kastaði hann í pappírskörfuna. Skóna setti hann í gluggakistuna. Hálslínið var kringum blekbyttuna. Sokkarnir lágu á borð- inu og stílabækurnar á þvottaborð- inu. Söngbókina hafði hann lagt á ofninn, og þar fann hann hana um kvöldið, næstum ónýta af völdum hit- ans. Enginn hlutur var lagður á sinn rétta stað, heldur þar, sem af hend- ingu var hægt að koma honum fyrir. Smám saman gagntók þessi sjúkleiki allt líferni hans og lifnaðarháttu. Ef hann var spurður um, hvað komið hefði fyrir í skemmtiferð, sem hann hafði tekið þátt í, hirti hann ekki um að segja frá viðburðunum í réttri röð, eða skýra nákvæmlega frá því, sem fyrir liann hafði komið. Þegar hann hafði ákveðið að hitta einhvern, kom hann alltaf of seint. Hann hirti ekki um að lialda loforð sín, ekki vegna ills innrætis, heldur vegna þess, að hann hafði ekki reglu á nokkrum hlut. Ef liann átti að fara í sendiferð fyrir for- eldra sína, gleymdi hann að skila pen- ingunum, sem hann hafði fengið til baka, eða hugsaði sem svo, að það skipti engu máli með nokkra aura. Eitt sinn sagði pabbi hans við hann, að það væru svik. Þá varð hann skelk-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.