Heimili og skóli - 01.02.1949, Qupperneq 15

Heimili og skóli - 01.02.1949, Qupperneq 15
HEIMILI OG SKÓLI 11 þagga niður í okkur strákunum). Og þar fengum við löðrung, þegar faðir okkar stóðst ekki lengur mátið. En stundum lágum við þar í kyrrð og næði og horfðum á eldri systur okkar við friðsamleg störf. í þessu sarna eldhúsi vann ég fyrstu handarvikin og las fyrstu bækurnar mínar. Fyrsta handavinnan, sem ég fékkst við, var að bursta skó. Hver er sá, sem nú lærir „handa- vinnu“ með öðrum námsgreinum, að honurn sé kennt þetta nauðsynjaverk að gagni? Ég fullvissa yður um, að ég tamdi mér þessar alkunnu handavinnu- dygðir: reglusemi og nákvæmni, og án þess, að nokkur væri að berja þær inn í mig sem uppeldisfræðilega nauðsyn. Ég tamdi mér þær einvörð- ungu af áhuga. Hafið þér nokkurn tíma burstað skó? Ég á ekki við það, hvort þér haf- ið burstað af skónum yðar svona í eitt og eitt skipti, heldur hvort þér haíið haft skólaburstun að starfi. Á hverjum laugardegi var heil röð af skóm handa mér að bursta. Karlmenn og drengir höfðu í þá daga háleggja-skó — lágir karlmanns- skór voru þá ekki til —. Það voru háir skór, reimaskór og venjulegir skór, sem stóðu þarna í röð og reglu. Kven- fólkið gekk á dúkskóm, hælalausum, svo að þá þurfti ekki að bursta. Þessi röð af skóm og stígvélum var falleg sjón. Fyrst raðaði ég þeim hárrétt eftir stærð. Öðrum megin voru skórnir af yngstu systur minni, og yzt hinum megin skór föður míns eða elzta bróð- ur míns. Ég man enn þá, hver nautn mér var að sjá þessa löngu röð. Það var eins og og ég hefði allt fólkið fyrir framan mig. Eg byrjaði á því að bursta öll ó- hreinindin af skónum, og þegar því var lokið, bar ég svertuna á. Skósvertan var í grárri leirkrukku (skósvertudósir voru þá ekki til.) Þá tók ég hvern skóinn eftir annan og burstaði, þar til hann gljáði allur. Og til viðbótar tilfinningu um röð og reglu, vaknaði nú fegurðartilfinn- ingin líka. Þegar allur hópurinn var svo kom- inn aftur í sömu röð og skartaði þarna gljáandi í eldhúsinu, þá var þetta svo fagurt á að líta, að ég fylltist aðdáun. Félagið „Fegurðin og kennslan“ hefur áreiðanlega ekki enn þá látið sér detta neitt í hug um þessa fegurð, þó að þarna væru komin þrjú frumatriði fegurðarinnar: rétt skipun eða niður- riiðun, hreinindi og gljái. Hver hafði opnað augu mín og hjarta fyrir þessum hlutum? Ég veit það ekki. Ef til vill getur uppeldisfræðin ekki bent á neina or- sök. Ef skyn á þessum hlutum væri ekki áskapað mönnum, hvernig mættu þeir þá öðlast það? Fyrir skömmu sá ég við þjóðveginn 5 ára gamla flökkulýðs-telpu leika sér að leirbrotum og glerjum, sem hún hafði víst tínt upp af götunni. Hún lagði þessa dýrgripi sína í fallegar rað- ir — eins og ég skóna mína — og henni var nautn að þessari sjón. Hver hafði kennt henni þetta?

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.