Heimili og skóli - 01.10.1951, Qupperneq 11

Heimili og skóli - 01.10.1951, Qupperneq 11
HEIMILI OG SKÓLI 87 ábyrgð heimilanna og vekja athygli á nauðsyn náinnar samvinnu heimila og skóla. Þessi samvinna á að vera um nám barnsins, hún á að vera um hegðun barnsins og háttvísi alla, bæði utan skóla og innan, en þó fyrst og fremst um takmarkið mikla, sem ég drap á hér að framan: vaxandi menn og batnandi. Ég gat þess hér að framan, að tímar vorir mótuðust af meiri og minni leit að nýjum verðmætum, og þá einnig á sviði uppeldis- og skólamála. Þessu ber að fagna. En eigum við ekki einnig að liefja leit að þeim verðmætum, sem við höfum átt, en týnt? Eigum við ekki að reyna að vinna aftur þau uppeldis- legu verðmæti, sem gamli tíminn bjó yfir og við höfum nú, fyrir rás við- burðanna hafnað? Ég svara þessu hik- laust játandi. Við höfum á undanförn- um áratugum glatað mörgu, sem við máttum ekki missa. Þær stundir, sem mér eru einna ógleymanlegastar frá bernsku minni, eru kvöldvökurnar. Og ég efast um að heimilislífið, já, uppeldismálin í heild sinni, hafi nokkurn tíma beðið meira tjón en þegar þær lögðust niður. — Kvöldvökurnar voru heimur út af fyr- ir sig, bjartur og glaður heimur. Allt heimilisfólkið var þá ein heild, sam- stillt heild, ungir og gamlir. Og þó að stórhríðin hamaðist á þekjunni, var hlýtt og bjart í hugum fólksins, og friður og kyrrlát gleði ríkti í baðstof- unni, hvort sem hún var stór eða lítil. Kannske var svo lesin hugvekja á eftir, eða sunginn einn passíusálmur á föstunni, og þegar gengið var til náða, sofnuðu allir með frið og ró í hjarta, að minnsta kosti börnin. Ekkert líkt þessu höfum við kaupstaðarbúarnir að bjóða börnum okkar. Utvarpið, dyra- bjallan og síminn glymja með stuttu millibili mestallan daginn og stund- um langt fram á kvöld. Já,' útvarpið, þessi mikli menningarmiðill, getur verið og er oft hinn mesti friðarspillir í heimilunum, ef það er misnotað, og ekki ber það sjaldan við, þegar börnin koma illa undirbúin í skólann, að þau kenna útvarpinu um. En þótt við getum ekki tekið kvöld- vökurnar upp aftur, og þótt við treyst- um okkur ekki til að taka upp hug- vekjulestur og sálmasöng, gætum við samt ekki gert kvöldin dálítið heimil- islegri en þau eru oft og tíðum, þótt ekki væri nema eitt, tvö eða þrjú kvöld í viku, þar sem allir söfnuðust saman, allir væru heima, lifðu saman kyrrlát- ar, glaðar stundir, gleymdu öllum hávaðanum fyrir utan, bæði nær og fjær, lifðu raunverulegu heimilislífi? Jú, þetta ættum við að reyna, fyrst og fremst vegna barnanna, svo að þau læri að meta heimilislífið áður en þau stofna heimili sjálf. í kyrrð og friði heimilislífsins vaxa mörg lífgrös. Hinn mikli uppeldisfræðingur og skólafrömuður, Hinrik Pestalozzi, hélt því fram, að heimilislífið væri uppspretta alls þroska. „Hinn rétti húsfaðir er Guð,“ segir hann, „hvort sem það er í höll eða hreysi, því að án hans finnur maður ekki blessun eða frið í sál sína. Trúin á Guð er hið sanna öryggi lífsins og grundvöllur lífshamingjunnar." Svona talaði ganrli tíminn. Og þegar Pestalozzi setur fram kenn- ingar sínar um uppeldi, gerir hann

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.