Heimili og skóli - 01.10.1951, Síða 13

Heimili og skóli - 01.10.1951, Síða 13
HEIMILI OG SKÓLI 89 LILJA SIGURÐARDÓTTIR: Kristindómsfræðsla í norskum barnaskólum Síðast liðinn vetur var ég úti í Nor- egi og fékk þá tækifæri til að kynna mér lítið eitt barnaskólana og þá eink- um tilhögun kennslu í kristnum fræð- um. — Virtist mér Norðmenn leggja mikla alúð við þá námsgrein og kenn- arar yfirleitt áhugasamir um kristin- dóm. Fannst mér eftirtektarvert, hvað létt og eðlilega hann fellur inn í allt kennslustarf þar. Börn, sem koma fyrst í skóla, eru sjaldnast byrjendur í kristnum fræð- um. Það hafa sunnudagaskólarnir séð um. En þá sækja langflest börn í Nor- egi. Börnin eru í surinudagaskólanum oftast frá 3—12 ára. Þar fer fræðsla fram eftir vel skipulögðu kerfi, sem sunnudagaskólasambandið annast, og svipar mjög til kristinfræðikennsl- unnar í barnaskólunum. Og þar sem sunnudagaskólar eru starfræktir jafnt í sveitum sem bæjum, er með þeim oft fyrirbyggt, að þau börn, sem eru undir handleiðslu áhugalítilla kenn- ara og foreldra, fari á mis við kristin- dómsfræðslu. Kennsla í kristnum fræðum hefst þegar í fyrsta bekk barnaskólans og tveir tímar gefnir vikulega. — Flestir kennarar skipta þeim þannig, að of- urlítil stund verður daglega, en sjald- an heill tími, til að forðast að þreyta börnin. Af eðlilegum ástæðum fá börnin enga námsbók til að byrja með, eða ekki fyrr en í 4. bekk. En eigi að síður er farið yfir visst námsefni í yngstu bekkjunum. Fer hér á eftir útdráttur úr því. 1. Almætti Guðs og sköpunarverkið. 2. Kærleikur Guðs ('Jesús Kristur). 3. Syndafallið og vald mannanna til að velja og hafna. 4. Hvernig Guð talar til vor í sam- vizkunni. 5. Skírnin. 6. Boðorðin. 7. Faðir vor. 8. Gjafir Guðs, stærsta gjöfin, Jesús Kristur. 9. Að biðja Guð og þakka honum. 10. Trúarjátningin. Lögð er áherzla á að kenna þessi at- riði í sem léttustu formi, svo að börn- in geti fylgst með. Þá skal einnig setja námsefnið þannig fram, að það snerti börnin sjálf, t. d. smásögur úr daglegu lífi. Þegar börnin fá svo námsbækur í 4. bekk, eru þau orðin talsvert kunn- ug efni þeirra, og þau eru ánægð yfir að fá nú sjálf að lesa og læra nánar um það sama, sem þau áður hafa aðeins heyrt af munni kennarans, t. d. sögur úr lífi og starfi Jesú. En þess er vandlega gætt, að ekki sé farið of hart yfir.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.