Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 6
122
HEIMILI OG SKÓLI
Sálfræé iskrifstofur skóla
Sálfræðileg og uppeldisleg ráðgjafa-
starfsemi í skólum og fyrir foreldra
hefur á síðustu áratugum orðið sjálf-
saorður os; fastur liður í fræðslukerfi
margra landa, a. m. k. í V.-Evrópu og
Ameríku. Danmörk var eitt af fyrstu
löndunum, sem byggði upp þessa
þjónustu, en síðan hefur þróunin orð-
ið ör, einkum í enskumælandi lönd-
um.
Skólamenn á íslandi hafa á síðustu
árum oft leitað eftir því við yfirvöld,
að leiðbeiningarstarf af þessu tagi yrði
rekið hér. Nýlega tók til starfa á veg-
um Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
sálfræðideild skóla. Sú deild á að
gegna sama hlutverki og „Skolepsyko-
logiske kontorer" á Norðurlöndum,
þ. e. reka uppeldislega og sálfræðilega
leiðbeiningastarfsemi fyrir börn og
unglinga á fræðsluskyldualdri, svo og
kennara og foreldra. Hlutverk sál-
fræðiskrifstofu skóla er því fyrst og
fremst á sviði kennslu og uppeldis.
Þess skal getið jafnframt í þessu sam-
bandi, að geðverndarstofnun hefur og
verið sett á stofn í Reykjavík, og er
hún deild í Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur. Verksvið hennar er rannsókn og
meðferð á taugaveikluðum börnum
einkum innan skólaskyldualdurs og
fyrirbyggjandi geðverndarstarf yfir-
leitt.
Hér á eftir verður stuttlega drepið
á nokkur atriði tun sálfrxðiskrifstofur
skóla, helztu verkefni þeirra, stærð
þeirra miðað við barnafjölda og skipu-
lag.
Nokkur munur er frá einu landi til
annars á skipulagi og uppbyggingu
sálfræðiþjónustu fyrir skólana. Sá
munur er helztur, að í sumum lönd-
um hafa uppeldis- og sálfræðingar
starfað innan eins skóla eða fleiri og
í einstaka tilfellum kennt þar líka, en
annars staðar hefur leiðbeiningarstarf-
ið verið byggt upp út frá einni mið-
stöð, börnin komið þangað, en starfs-
menn skrifstofunnar heimsækja skól-
ana, svo sem tími og aðstæður leyfa.
Það er einkum í Danmörku, sem
fyrri hátturinn hefur tíðkazt. Þó mun
þetta fyrirkomulag ekki hafa þótt gef-
ast þar alls kostar vel.
Jónas Pálsson.