Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 7

Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 7
HEIMILI OG SKÓLI 123 Gallinn er einkum sá, að einn sér- fræðingur án verulegs samstarfs við aðra, einangrast í starfi. Vandkvæði barnanna eru mar«vísle£r og1 einn mað- ur á erfitt með að sérhæfa sig á mörg- um sviðum. Víðast er skipan sú, að myndað er „team“ eða samstarfshópur sálfræð- inga eða uppeldisfræðinga og félagsráð gjafa (social workers). Eitt „team“ er venjulega skipað tveimur uppeldisfræðingum eða sál- fræðingum, einum félagsráðgjafa og auk þess skrifstofustúlku. Þá vinnur jafnan læknir (helzt barnageðlæknir) 6—8 tíma á viku við stöðina og rann- sakar þau börn, er þurfa þykir. Þetta starfslið í samræmi við það. Verkefni skólabörn. í Reykjavík eru um 10—11 þús. börn á fræðsluskyldualdri, svo að hæfilegt starfslið á sálfræðiskrifstofu skóla þar væri skv. þessu 4—5 uppeldis- fræðingar eða sálfræðingar og annað starfslið í sambandi við það. Verkefni jiessara leiðbeiningastofnana er fyrst og fremst athugun á einstiikum börn- um að beiðni foreldra og kennara og síðan ráðgefandi viðtöl við þessa að- ila. Þótt beiðni komu frá skólunum, er venja að leita samþykkis foreldra fyrir athugun, enda bæði rannsókn og leiðbeining að mestu háð góðu sam- starfi við foreldra. Yfirleit er fræðsla fyrir foreldra og náið samstarf við þá einn af hymingarsteinum starfsins. Hér skulu aðeins til glöggvunar nefnd nokkur atriði frá starfi sálfræðiskrif- stofu skóla í Drammen, sem talin er rekin með ágætum, en barnafjöldi í umdæmi hennar hliðstæður því, sem verið gæti á íslandi. Undir skrifstof- una heyra um níu þúsund skólabörn. Sveitirnar umhverfis bæinn taka þátt í rekstri hennar. Bömunr frá sveita- skólunum í kring er vísað til skrifstof- unnar og starfsmenn hennar koma í heimsókn í skólana á ákveðnum tím- um, auk þess sem skólastjóri og kenn- arar ræða málin í síma við sérfræðing- ana. Hálf faun starfsmanna eru greidd af bæjarfélögum, en helmingur af ríki. Um helmingur umsókna um athugun kemur beint frá foreldrum og sýnir það glöggt, hve starfið hefur unnið sér gott álit og tiltrú foreldra. Á skrifstof- unni starfa þrír uppeldisfræðingar eða sálfræðingar og einn í hálfu starfi. Er einn þeirra sérhæfður í „klínískri“ sálarfræði, hinir í uppeldislegri sálar- fræði. Þá er einn félagsráðgjafi, ein skrifstofustúlka og læknir 6—8 stundir á viku. Samtals gerir þetta 5\/, starfs- mann og var þó ekki talið fullnægja þörfinni. Sálfræðiskrifstofur skóla sinna auk rannsókna á einstökum börnum ýms- um heildarverkefnum í þágu skóla- og fræðslustarfsins. Má þar fyrst nefna umsjón með notkun og hagnýtingu þroskaprófa fyrir byrjendur. Nokkur undanfarin ár hafa þroskapróf verið lögð fyrir þau börn í Osló, sem ekki hafa náð skólaskyldualdri, en foreldrar óska eftir að hefji skólanám. í allmörg- um bæjum á Norðurlöndum eru þessi próf lögð fyrir öll börn, sem hefja skólanám. Einkum mun þetta algengt í Svíþjóð og þar hafa verið settir á stofn „skólaþroskabekkir“ fyrir börn þau, sem mest eru á eftir um þroska. Þessir bekkir fyrir óskólaþroska börn eru að mestu með leikskólasniði, þótt blandað sé inn í beinni kennslu síðari bluta vetrar.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.