Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 8

Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 8
124 HEIMILI OG SKÓLI í Reykjavík og Kópavogi ha£a und- anfarin ár verið gerðar tilraunir með notkun þroskaprófa, aðallega Levin- prófið sænska og þótt gefa dágóða vís- bendingu. Sl. haust var prófið lagt fyrir í öllum barnaskólum Reykjavík- ur og niðurstöður voru hagnýttar að nokkru, en annars er notkun prófanna enn á tilraunastigi. Nokkrir kennarar hafa fengið þjálfun í notkun prófanna og eru trúnaðarmenn urn meðferð þeirra, en sálfræðideildin hefur um- sjón með verkinu. Prófheftin eru brennd strax og úr þeim hefur verið unnið, en niðurstöður varðveittar sem trúnaðarmál hjá sálfræðideild skóla og eingöngu í rannsóknarskyni. Tek- ið skal skýrt fram, að ekki má rugla þessum þroskaprófum, sem eru hóp- próf, saman við einstaklingsgreindar- próf. Þroskaprófin gefa aðeins óná- kvæma vísbendingu, sem gagnleg get- ur verið, þegar um mikinn fjölda barna er að ræða og kennarar þekkja ekki neitt til. Skólaþroskapróf geta orðið einn af hyrningarsteinum undir sálfræðilegu leiðbeiningastarfi í skól- unum, þegar fram líða stundir. Aðalverkefni sálfræðiþjónustunnar er að sjálfsögðu rannsókn á einstökum börnum, sem eiga í erfiðleikum. Hér er ekki rúm til að rekja, hvernig þeirri rannsókn er hagað í einstökum atrið- um, aðeins tekið frarn, að grundvöllur rannsóknarinnar er í rauninni trúnað- arsamband sérfræðinganna við for- eldra barnsins og það sjálft, auk náinn- ar og góðrar samvinnu við kennara barnsins og skólastjóra, ef erfiðleik- anna gætir á þeim vettvangi. Af þessu leiðir, að mjög er mikilvægt að með allar upplýsingar sé farið sem algert trúnaðarmál. Erlendis, þar sem sérstakir hjálpar- bekkir eru starfræktir, eru börn, sem þá sækja, jafnan athuguð á sálfræði- skrifstofum skólanna. Sama máli gegn- ir með börn, sem vegna hegðunar- vandkvæða eru óhæf í almennum bekkjum og því send í sérbekki fyrir slík börn eða heimavistarskóla. Þá má nefna almenna upplýsinga- og fræðslu- starfsemi meðal kennara og foreldra, sem er mikilvægur þáttur. Einnig koma til greina sérverkefni eins og t.d. leiðbeining fyrir örfhent börn. Þess má geta, að í Drammen bauð sálfræði- skrifstofan foreldrum að koma með öll börn, sem voru örfhent, til athug- unar, áður en skólanám hófst og leið- beindi hversu með skyldi farið eftir því, hve eiginleikinn var ríkjandi hjá barninu. Um starf sálfræðideildar skóla í Reykjavík skal ekki fjölyrt hér að þessu sinni. Við deildina vinna nú þrír sálfræðingar, þar af tveir fastráðnir. Þá starfar geðlæknir 4 stundir á viku við deildina, en auk þess er einn sál- fræðinganna með sérmenntun á sviði geðrænna vandamála hjá börnum. Starfið er að sjálfsögðu enn í mótun varðandi skipulag og starfshætti og hlýtur svo að verða um nokkur fyrstu árin. Aðsókn er sem vænta mátti mjög mikil bæði frá skólunum og beint frá foreldrum. Tekið skal fram, að barn er aldrei rannsakað að beiðni kennara eða skólastjóra, nema að fengnu sam- þykki foreldra og raunar beinu frum- kvæði þeirra, þótt skólinn bendi þeim í upphafi á nauðsyn þess að athuga, hvað valdi erfiðleikum barnsins.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.