Heimili og skóli - 01.12.1961, Síða 10

Heimili og skóli - 01.12.1961, Síða 10
126 HEIMILI OG SKÓLI Nokkur niiimíngarorá um Jón Kristfánsson, kennara Þann 20. nóvember sl. andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Jón Kristjánsson kennari á 86. aldurs- ári. Jón var fæddur að Miðsitju í Blönduhlíð 16. jan. árið 1876. For- eldrar hans voru þau hjónin Kristján bóndi Þorsteinsson, seinna á Þver- brekku í Öxnadal, og kona hans Hall- dóra Þóra Rósa Jónsdóttir frá Þverá í Holtshreppi í Skagafirði. Hann ólst upp á Miðsitju og naut kennslu hjá sr. Birni Jónssyni á Mikla- bæ árin 1890—92. Hugur hans stefndi mjög til kennslustarfa. Árið 1909 sótti hann kennaranámskeið í Reykjavík og árið 1920—21 var hann óreglulegur nemandi í Kennaraskólanum. Hann hóf kennslu í Akrahreppi í Skagafirði haustið 1908 og kenndi eftir það á ýmsum stöðum í Skagafirði og Eyja- firði samfleytt til 1938. Eftir það mun hann hafa kennt mörg ár heima hjá sér. Kirkjuorganisti mun hann hafa verið allt frá 1908—50, nálega sam- fleytt. Árið 1898 kvæntist hann fyrri konu sinni, Rannveigu Sveinsdóttur frá Varmavatnshólum og áttu þau saman fimmtán börn. Sum þeirra dóu í bernsku, en tíu munu vera á lífi. Jón valdi sér kennarastarfið, eitt hið lægst launaða í þjóðfélaginu. Það lætur því að líkum, að oft var þröngt í búi hjá þeim hjónum með allan þennan barnahóp. En alltaf ríkti samt gleði á því heimili. Rannveig kona hans var fágætlega lífsglöð kona þrátt fyrir alla sína erfiðleika, barnamissi og fátækt. Jón var einnig glaðlyndur og tók á öllum erfiðleikum með æðru- leysi og karlmennsku. En börnin kom- ust upp og urðu nýtir menn. Konu sína missti Jón árið 1928. Þá voru yngstu börnin enn í ómegð. Árið 1932 kvæntist Jón í annað sinn góðri konu, Sigrúnu Jóhannes- dóttur frá Miðhúsum í Eyjafirði, og bjuggu þau lengi á Espigrund í sömu sveit og vegnaði þar vel. Síðustu árin

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.