Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 12

Heimili og skóli - 01.12.1961, Qupperneq 12
128 HEIMILI OG SKÓLI tjón á sálu sinni? En það er einmitt þetta, sem hér hefur gerzt. Það er sífersk hamingja, að eiga allt- af hæfileikann til að hlakka til. Það gerir hinn snauða ríkan. Það gerir betlarann að konungi. Það gerir harm- kvælamanninn að hetju. Þessi guðagjöf er ferskust og yndis- legust hjá barninu, og þar eru til- hlökkunarefnin óþrjótandi — nema þér verðið eins og börn, munuð þér alls ekki komast inn í himnaríki. Það þarf eitthvað af eðli og hjartalagi bamsins til að varðveita eld tilhlökk- unarinnar. Það er andleg og líkamleg heilsubót að tilhlökkuninni. Hún ger- ir lífið síungt og sífrjótt, og þó eru til- hlökkun og lífsleiði vaxin upp úr sama dulardjúpinu — mannlegum tilfinn- ingum. En sá er munurinn, að til- hlökkunin og allir aðrir herskarar skyldra tilfinninga er sprottin upp úr ræktuðu tilfinningalífi, en lífsleiðinn og allir hans fylgifiskar, er sprottinn úr óræktuðu tilfinningalífi. Það gerir gæfumuninn. Margt bendir til þess, að þeim mönnum fari fjölgandi, sem þjást af lífsleiða og öðrum andlegum kvillum, og ber margt til þess. Tvær heimsstyrjaldir og þó einkum sú síðari, skildi eftir heim flakandi í sárum. Ekki aðeins sundurtætta lík- ami, heldur einnig hruninn heim hug- sjóna og vona. Geðheimur mannkyns- ins stóð einnig flakandi í sárum. Menn sáu hrynja í rúst flest það, sem þeir höfðu trúað á — frelsi, réttlæti, bræðra- lag. Mörgum þótti, sem sjálfur guð hefði brugðizt. Það hrikti í burðar- ásum sjálfra trúarbragðanna. Þetta er kannski mesta áfallið, sem ræktun skapgerðar og tilfinninga hef- ur fengið á síðari árum. Sú saga á sér þó lengri aðdraganda. Alla 20. öldina og raunar lengur, hefur verið lögð ná- lega einhliða áherzla á að rækta mann- vit og afla efnislegrar þekkingar í þágu tækni og raunvísinda. Þetta er raunar eðlileg afleiðing efnishyggjunnar, sem leggur undir sig heiminn um svipað leyti. Mannvit og þekking eru þanin til hins ýtrasta, og stendur svo enn, og það er engin tilviljun að obbinn af þessari orku mannvitsins hefur beinzt að því, að finna upp ný drápstæki og gereyðingarvopn. Þetta er bein afleið- ing af þeirri órækt, sem komin er í til- finningalífið. Enginn kann tveimur herrum að þjóna, segir máltækið. Ann- ars virðist ekkert vera því til fyr- irstöðu, að þetta tvennt geti farið sam- an, ræktun vitsmuna og þekkingarleit, og ræktun tilfinningalífsins, þótt svona hafi farið. Upplýstur nútímamaður veit allt um efnisheiminn. En hvað veit hann um sjálfan sig og þá orku, sem býr með honum sjálfum? Hvað veit hann um samband tilfinningalífsins og sinnar eigin og annarra hamirigju? Hvað veit hann um andlega heilsu- vernd, sem fyrst og fremst er fólgin í heilbrigðu tilfinningalífi? Hann veit margt um líkamlega heilsuvernd, þó margir lifi óheilbrigðu lífi þrátt fyrir það, en hann veit harla lítið um þau Iögmál, sem ráða hans eigin sál, og hann veit lítið um með hvaða hætti hans eigin skapgerð mótast. Þar velt- ur ekki mest á mannvitinu og hinni almennu þekkingu, þótt hvort tveggja

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.