Heimili og skóli - 01.12.1961, Síða 20

Heimili og skóli - 01.12.1961, Síða 20
136 HEIMILI OG SKÓLI um sínum og voru þau mikið sungin í skólanum. Skólinn var heimavistar- skóli og hafði mikil og göfgandi áhrif á ungmennin. Bróðursonur skáldsins var kennari við skólann. Hann var mjög söngvinn og kunni flest lög við ljóð skáldsins. Þessi ljóð voru sungin kvölds og ntorgna og andrúmsloftið var þrungið af söng. Leikrit hans voru einnig mik- ið leikin af drengjunum. Á kvöldin þóttu það meðal merk- ustu viðburða, þegar skáldið las úr verkum sínum. Margir drengjanna kunnu heilar blaðsíður úr kvæðum Tagores. í skóla Tagores voru upphaflega engar skyldunámsgreinar. En skáldið fékk ýmsa listamenn til að dvelja þar um tíma og leiðbeina drengjunum t. d. í málaralist, ef þeir óskuðu þess. Síðar breyttist skólinn þó nokkuð í fastara form, þó að Tagore væri tals- maður fullkomins frelsis í uppeldis- og skólamálum. Minnir skóli R. Tagores nokkuð á lýðháskólahreyfinguna á Norðurlönd- um, þó að staðhættir séu ólíkir. Nú á aldarafmæli þessa skáldspek- ings mun hans verða minnzt um gjörvallan heim sem skálds, friðarboða og brautryðjanda í uppeldis- og skóla- málum. Einnig hér á þessari afskekktu eyju minnumst við þessa víðfleyga anda. Eirikur Sigurðsson. Ljósslökkvarar Það er undravert, hve margir skyn- samir menn, sem oft eru einnig að- laðandi, ganga um og „slökkva ljósið.“ Þeir eru síleitandi eftir einhverju, sem dregið getur úr gleði annarra, eða koma með einhverja athugasemd, sem fær menn til að efast um það, sem við höfum trúað á. Og þegar einhver er farinn að leika þetta hlutverk á annað borð, verður þetta að illum vana, sem ekki aðeins gerir þessum ljósslökkvara sjálfum lífið leitt, heldur grefur einn- ig grunninn undan sjálfstrausti ann- arra manna. Eina vörnin er að brynja sig fyrir órökstuddum efa og svartsýni. Þegar ég var 13 ára, lærði ég að hjóla. Við pabbi höfðum skipulagt mörg hundruð kílómetra hjólreiða- ferð. Við ætluðum að hvíla okkur, þeg- ar okkur hentaði. En nú stungu ljós- slökkvararnir upp höfðinu. Þessi ferð var talin allt of löng. Það myndi kann- ski koma rigning og vont veður. Og hvernig ætlum við að tryggja það, að við gætum alltaf fengið þak yfir höf- uðið á næturnar En við framkvæmdum nú samt þessa „fífldjörfu" ferð og minnumst hennar nú með mikilli gleði og á- nægju. Og hún tókst meira að segja svo vel, að við héldum þessu áfram fimm næstu ár. Aldrei hefur nokkur ljósslökkvari farið slíkar hrakfarir. Til allrar ham- ingju er það þannig, að sé manni tak- markið nógu vel ljóst, sem sótt er að, eru allar hrakspár ljósslökkvarans dæmdar til að verða að engu. C. G.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.