Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1960, Blaðsíða 17

Læknaneminn - 01.10.1960, Blaðsíða 17
LÆKNANEMINN 17 ætti að vera með stuttum fyrir- vara að senda sveit — ekki sízt, ef með slíku hefði verið reiknað allan veturinn og menn því beint og óbeint undir ferðina búnir. Þessu um sterku mennina tekur ekki að svara — aðalatriðið er ekki að sigra, heldur að vera með, og mér finnst óviðeigandi að vilja snúa þessu við. Því miður er það svo, þótt menn vilji ekki viðurkenna, að sumir hafa svo mjög horn í síðu IUS, að enginn áhugi er fyrir heimsmeist- aramótunum. Úrslitin á mótinu í ár eru prýðilegt svar til slíkra. Þess verður nú vænzt, að sú ötula skáknefnd, er ópólitískt stúdentaráð tilnefnir í vetur, vinni svo að undirbúningi þátttöku í næsta heimsmeistaramóti stúd- enta í skák, að af henni verði, þótt boð komi seint, því vonandi kemur það. Margt er hér ósagt, en virðu- leg ritnefnd er svo auðug af öðr- um efnivið, að ég verð að láta þetta nægja. í næsta þætti ræðum við m.a. um skólamót í skák, en snúum okkur nú að öðru efni. Á eftirfarandi skák er hand- bragð heimsmeistarans, M. Thal. Hann teflir hér við búlgarska meistarann Milew og hefur hvítt. 1. c2—c4, c7—c5 í 2., Rbl—c3, Rb8—c6 3. Rgl—f3, Rg8—f6 4. e2—e3, e7—e6 5. d2—d4, d7—d5 6. c4—xd5, Rf6xd5 7. Bfl—c4, Rd5—b6 8. Bc4—b5, a7—a6 9. Bxc6t, b7xc6 10. O—O, Bc8—b7 11. Rc3—e4, Rb6—d7 12. Ddl—c2, Dd8—b6 13. Rf3—e5!, c5xd4 14. Re5xd7, Ke8xd7 15. e3xd4, Kd7—e8 16. Bcl—e3, Db6—c7 17. d4—d5!!, e6xd5 18. Hfl—el!!, Ke8—d8 (Ef 18: —, dxe4, þá 19: Be3— f4, Dc7—b6, 20: Dc2xe4f, Ke8—d7 og 21: Hal—dlf og vinnur). 19. Dc2—b3, c6—c5 (Hvítur hótaði Be3—b6). 20. Re4xc5 (og svartur gaf, því eftir 20:—, Bf8x c5 kæmi 31: Be3xc5, De7x—c5 og 22: Db3xb7 og hvítur ynni. SKÁKÞRAUT Hvítt: Kg3, Rgl, Bj6, d3, h5 Svart: Ke3, a2, d4, h7. Hvítur á leik og vinnur. Lausn á skákþraut í síðasta blaði. Hvítur leikur d3 og mátar í næsta leik. Feitt fólk er skapgott. Það verður að vera það. Það er of feitt til að slást, og of þungt til að flýja. ★ ★ ★ Siðfræði lækna mætti koma fyrir í einni málsgrein: Breyttu eins og ef sjúklingur- inn væri sjálfur þú eða náið skyld- menni þitt. (Bier)

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.