Ferðir - 01.03.1940, Qupperneq 4
2. blaðsíða
[Ferðir
Þeistareykir.
Á miðri Reykjaheiði liggur bílvegurinn austur í Axar-
fjörð, um slétt helluhraun, í skarði milli Lambafjalla að
sunnan, en Grísatungufjalla að norðan. Vegurinn liggur
rétt við norðurenda Lambafjallanna og heitir þar Höjuð-
reiðarmúli. Síðan liggur vegurinn austur yfir skarðið
milli fjallanna að suðurenda Grísatungufjalla. Þar heitir
Sœluhúsmúli. Rétt austan við Sæluhúsmúlann liggur veg-
urinn að Þeistareykjum af aðalveginum, fyrst í austur,
síðan í suður.
Þeir, sem ætla að Þeistareykjum og vilja sjá sem mest,
ættu að yfirgefa bílana við Höfuðreiðarmúla. Þegar kom-
ið er fyrir enda múlans, opnast hraunslétta allmikil til
austurs og suðurs með Lambafjöllunum. Um 10—12 km.
í suðaustri takmarkast slétta þessi af lágum, ávölum fjöll-
um. Norðvestan í fjöllunum má sjá, á nokkurum stöðum,
ljósleitar skellur og í hagstæðu veðri líka allmikla gufu-
mekki, þar eru Þeistareykir.
Bezt er að ganga suður með Lambafjöllunum, suður
fyrir Mælijell, sem er mjög sérkennilegur, keilumyndað-
ur hnjúkur austan við fjöllin og mun hann vera úr líparíti.
Þar sunnan við mynda háir og reglulegir hamrar austui-
hlið Lambafjallanna, eru þeir úr móbergi neðan til, en
ofan á því liggja mörg lög af grágrýti. Þetta heitir Skeið-
in. Þegar komið er suður fyrir Mælifell, má stefna beint
á Þeistareyki; er þá réttast að ganga þvert yfir allum-
fangsmikla en lága, bungumyndaða hæð, sem er nokk-
urnvegin miðja vegu milli Lambafjalla og Þeistareykja.
Hæð þessi heitir Stórahversmór og er forn hraundyngja,
og er mikill en óreglulegur gígur í hábungunni. Kringum
þessa bungu liggja margar sprungur, bæði frá N-S og A-
V og koma sjóðheitar gufur úr sprungunum sunnan við
hæðina.
Þeistareykjafjöll eru þrjú smáfell í röð frá N-S. Nyrst