Ferðir - 01.03.1940, Blaðsíða 14
12. blaðsíða
[Ferðir
vitanlegt var, að Ferðafélag íslands mundi einkum beina
kröftum sínum að suðurhluta landsins, þar sem megin-
styrkur þess er í Reykjavík.
Staður sá, sem stjórn F. F. A. kom fyrst auga á í þessu
efni var Herðubreiðarlindir. Ein fyrsta framkvæmd
félagsins var að láta rannsaka um bílfæran veg þangað
°g ryðja verstu höftin. Tókst það svo giftusamlega, að nú
eru Herðubreiðarlindir fastur áfangastaður í einni af
skemmtiferðum félagsins á hverju sumri. Þess skal í því
sambandi þakksamlega getið, að vegamálastjóri ríkisins
lét ryðja veginn s. 1. sumar, svo að hann er nú greiðfær
að kalla. Með því er fyrsta áfanganum náð. Hins vegar
hefur undirbúningur undir það, að sæluhús verði reist 1.
Lindunum gengið hægt. Sæluhússjóður félagsins nemur
nú kr. 1500.00, og er varla þriðjungur þess fjár, sem við-
unanlegt sæluhús mundi kosta. Og ekki kemur annað til
mála, en reisa gott hús í Herðubreiðarlindum. Það má að
vísu segja, að stjórn félagsins hafi verið tómlát um a'ð
safna fé til sæluhússins. En því er þar til að svara, að
skoðun stjórnarinnar er, að félagið verði fyrst að leggja
fram verulegan skerf áður en farið er að seilast ofan í
vasa annarra, og einnig hitt, að öll fjársöfnun gengur
treglega. Ef félagsmönnum fjölgaði enn svo um munaði,
t. d. upp í 500, ykjust tekjur þess svo verulega, án þess að
útgjöld hækkuðu að marki, að bráðlega yrði unnt áð
byrja á sæluhússbyggingunni, og að henni lokinni undir-
búa þá næstu, því að vitanlega verður ekki staðar numið
þótt skáli sé. reistUr í Herðubreiðarlindum. Enn hefur
ekki verið gerð teikning að hinu fyrirhugaða sæluhúsi né
áætlun um það, en sú.er ætlun stjórnarinnar, að veggir
þess verði hlaðnir úr grjóti, og steypt í þá, og að húsið
rúmi um 20 næturgesti í hvílum. Við treystum því, að
félagsmenn séu einhuga.um, að vinna að þessu starfi sem
allra fyrst og þeir muni bregðast vel við, bæði um að
safna nýjum meðlimum og eins um fjárframlög, ef til
þeirra verður leitað í því efni. Þetta er mesta og merk-