Ferðir - 01.03.1940, Qupperneq 9
f-'erðir]
7. blaðsíðn
Ferðaáætlun
Ferðafélags Akureyrar 1940.
1. ferð, 3. marz. Útgarður — Skíðastaðir.
Gengið upp hjá Bændagerði og Lögmannshlíð til Út-
garðs, yfir Glerá á nýju göngubrúnni, að Skíðastöð-
um. Á heimleið farið um skíðabrekkurnar í Háu-
borgum.
2. ferð, 17. marz. Vaðlaheiði — Hrossadalur.
Gengið upp hjá Varðgjá að skólavörðunni. Þaðan út
heiðina í Hrossadal og heim um Þórustaðaskarð.
3. ferð, 31. marz. Finnastaðadalur — Glerárdalur.
Ekið að Finnastöðum. Gengið upp Finnastaðadal og
á Kerlingu, ef skyggni er gott. Heim Glerárdal.
4. ferð, 14. apríl. Skjóldalur — Þverárdalur.
Ekið að Möðrufelli, gengið vestur Skjóldal, um
Kambsskarð og niður Þverárdal, að Þverá í Öxnadal.
Þaðan ekið heim.
5. ferð, 28. apríl. Vindheimajökull.
Gengið upp Reithóla og á Strýtu. Heim um Útgarð.
6. ferð, 19. maí. Bóndi — Súlur.
Ekið að Kristnesi, gengið á Bónda og Súlur, heim um
Hvammsfjall.
7. ferð, 9. júní. Grund. — Möðruvellir — Saurbœr.
Farið á reiðhjólum og bifreiðum.
8. ferð, 15.—17. júní. Mývatnssveit.
Hinn 15. júní ekið að Reykjahlíð. 16. júní verður farið
í smærri hópum um nágrennið og geta þátttakendur
valið um, hvað helzt þeir fara, svo sem í Slútnes, á
Vindbelg, að Sandvatni, í Gæsadal, á Reykjahlíðar-