Ferðir


Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 25

Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 25
FE RÐIR 25 A fimmtudagskvöld. fórum við að spila hjónasæng af kappi miklu. Að lokum skriðum við í pokana, og hver um sig lét sig dreyma um sína eða sínar spilafrúr. Pokinn minn var fremur þunnur og var farinn að blotna allmikið að neðan, þegar líða tók á nóttina, svo að svefninn vék fyrir hrolli og skjálfta. Enda þótt ég lifði þetta af varð ég feginn þegar að fótaferðartíma kom. Hinir höfðu flestir sofið ágætlega, og var ekki laust við, að ég öfundaði þá. Að loknum vænum árbít gengum við frá öllu hafurtaski, því að nú áttum við að hefja mælingarnar, og bezt var því að hafa allt tilbúið til heimferðar um kvöldið. Þarna skildum við samt allt dótið eftir nema skíðin og „theódólítinn,“ sem ég hafði þá ánægju að bera lengstaf í ferðinni. I Þótt veður væri dimmt og lítt sæi til fjalla héldum við samt af stað upp til fjallanna, sem liggja fyrir botni Glerárdals og voru skammt suðvestan við okkur. Þar ber mest á 1440 m háu klettafjalli, sem er nafnlaust á korti en mun heita Stóristallur. Austan í því heitir Sveigur en norðan i því er allmikill jökull,

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.