Ferðir


Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 29

Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 29
FERÐIR 29 klæða seinni gaflinn þegar þeir komu til okkar um kvöldið. Á þjóðhátíðardaginn 17. júní settum við járn á þakið. Við fengum í heimsókn hóp frá Ferðafélagi Akureyrar, og fólkið drakk kaffi í húsinu meðan yfir gekk skörp skúr. Austur í Þorsteinsskála fórum við svo um kvöldið og gistum þar með hópnum í hinu besta yfirlæti. Á heimleið daginn eftir komum við í sæluhúsið við Jökulsá. Næst er svo farið 27. júní og næstu tvo daga er húsið einangrað og klætt innan eða gengið frá því svo að sæmilegt sé að vera í því. Ekki tókst að gera í stand svefnbálka. Dagana 5.-7. júlí dvelur svo hópur frá félaginu í húsinu og gengur um nágrennið, en gengur svo í Dreka og sameinast öðrum hóp. Var síðan gengið með Svartá frá upptökum til þess er hún fellur í fögrum fossi nánast í Jökulsá. Ferð þessi þótti takast mjög vel og sannaði gildi þess að hafa hús við Bræðrafell, svæðið þótti forvitnilegt og fjölbreytt. Við komum svo þarna þrír 7. september gengum frá ytri hurð, sem við bárum frá Herðubreið, og gluggaflekum, En fyrst gengum við frá ofni og gátum látið okkur líða vel við yl frá honum um kvöldið. Við vörðuðum leiðina frá húsinu að fjallsrótunum og höfðum þá i huga vélsleðaferðir. Seinni nóttina hríðaði ofurlítið og var jörð að mestu hvít um morg- uninn. Austur að bílnum gengum við tímanlega um morg- uninn og ókum svo vestan Herðubreiðartagla i Dreka. Þar tókum við dýnuverin og gengum frá skálanum undir vetur- inn. Nokkrir skaflar voru rétt neðan við Dreka en annars var ekki teljandi snjór. Fjöllin voru hvit en sáust varla fyrir hríð- aréli sem gekk yfir rétt sem við ókum frá skálanum. Um leið og haustferð var farin í Þorsteinsskála, á haust- jafndægrum 23. september, var ekið með kol vestur fyrir Herðubreið. Vélsleðamenn munu svo koma þeim í skálann í vetur. Þarna um kvöldið var stormur og sandrok. Það var líka rigningarslitur og því fremur óyndislegt veður er við feðgar ókum í myrkri yfir hraunið að Þorsteinsskála. Þar beið okkar matur og kátt fólk. Sunnudaginn 24. september höfðu öll ský flúið, vindar tekið sér hvíld og blessuð sólin brosti við okkur.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.