Ferðir


Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 32

Ferðir - 01.04.1979, Blaðsíða 32
JÓN SIGURGEIRSSON frá Helluvaði: Framhald af Biskupaleiö um Ódáðahraun Biskups hefi ég beðið með raun og bitið lítinn kost. Áður ég lagði á Ódáðahraun át ég þurran ost. Þjóðsögurnar í sínum einfaldleik, skapa okkur oft hugmyndir, og sannleiks gildi felst oft í frásögninni eins og vísan ber með sér. Við trúum því, að hún sé ort í Kiðagili við heldur bág kjör. Höfundurinn, Barna-Þórður, var kominn að minnsta kosti austan yfir Jökulsá á Fjöllum, til að taka á móti ferða- mannalest, biskupi Islands, stórhöfðingjum og fylgdarliði þeirra. Hættulegasti kafli allrar leiðarinnar frá Skálholti til Múlaþinga var Ódáðahraun. Þórður var búinn að bíða herra Odds Einarssonar (1589-1630) í Kiðagili, en hann mætti ekki á tilsettum tíma. Viðbitið var þrotið og aðeins eftir af nestinu smá ostbiti, en tvær dagleiðir stífar í Möðrudal. Þórður snéri heim dapur í bragði. Ef til vill hefur hann á heimleiðinni hrófað upp og lagað leiðarmerki til að auðvelda biskupi að rata gegnum hraunið, sem tókst í það sinn, en hann naut leiðsagnar útilegumanna (samkv. Þjóðsögum Jóns Árnason- ar). Um gildi þessarar lengi týndu leiðar vitna ég til greinar minnar í „Ferðum“ 1977, Biskupaleið um Ódáðahraun. Sýnir þar meðfylgjandi uppdráttur hvað búið var að kanna þá. Leitað hafði verið, án árangurs, milli Heilagsdals og Ketil- dyngju. Sumarið 1977 fór hópur áhugafólks gangandi frá Ferjuási um Fjallagjá og Vörðukamb að Bræðraklifi í Hafragjá. Um það örnefni er nokkuð fjallað í áðunefndri grein í ,,Ferðum“.

x

Ferðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.