Reykjanes - 01.03.1943, Blaðsíða 3

Reykjanes - 01.03.1943, Blaðsíða 3
R E Y K J A N E S 3 þorpa á landi hér, þegar óeðlilegur samdráttur varð í atvinnulífi þeirra. Við megum ekki fljóta sofandi að feigðarósi, og vakna siðan við þá staðreynd, að kauptúnið Kefla- vík sé orðið þvi næst vélbátalaust. Mér sýnist að hér þurfi átök allra kaupstaðarbúa, þvi þetta er mál, sem varðar allar stéttir að ein- liverju leyti. Mér hefir komið lil bugar að hafizt væri handa og stofnað yrði félag með almennum framlögum, t. d. firnm hundruð krónum minnst frá bverjum manni; safn- að væri 250 til 300 þúsund krónum. Félag þetta befði það markmið, að koma sér upp 5 bátum, 20 til 60 smálesta. Féð væri lagt fram. nú þegar, því komið fyrir á örugg- um stað og látið ávaxtast þar tii núverandi verðbólga rénar, Haf- ist yrði þá handa um byggingu þessara báta, þeir byggðir bér í byggðarlaginu, svo framarlega sem bægt væri að vinna verlcið hér fyrir sama verð og annars- staðar. Það yrði nauðsynlegt að almenn þátttaka fengist, engir þó með stór framlög, þvi þetta má ekki verða til þess að draga úr möguleikum þeirra manna, sem við útgerð ætla að fást i framtíð- inni, þvert á móti; útgerðarmanna- bópurinn er ekk of stór liér, og þeir eru teljandi, sem bæzt hafa í hópinn siðustu 10 árin. Félagsstofnun þessi á að vera eins almenn og frekast er unnt, og þar sem bér er um öryggisráð- stöfun að ræða, til þess að forðast fyrirsjáanlegt atvinnule'ysi í byggð- arlaginu, þegar fram í sækir, með óbreyttum aðstæðum, þá virðist mega vænta þess, að mál þetta fái góðar undirtektir breppsbúa. Það má nú vel vera, að sumurn komi til hugar að mál þetta komi þeim lítið eða ekkert við, en við þá vil eg segja þetta: Við stýrið hjá okkur situr djarfhuga hrepps- nefnd, er hyggst á miklar fram- kvæmdir, enda eru bér mörg verk- efni fyrir hendi, sem ekki er ó- eðlilegt, þar eð vöxtur kauptúns- ins befir verið mjög mikill á síð- ustu árum. Á síðasta ári hækkuðu aukaútsvör úr 130 þúsund krón- um í 405 þúsund krónur. Hvort þau bækka enn á yfristandandi Fylgt úi hlaði. Um leið og blaðið „Reykjanes“ hefur göngu sína, þykir rétt að fara nokkrum orðum um tilgang þess. Markmið útgefenda er, að blaðið geti orðið málgagn Suður- nesjamanna um öll helztu menningar- og framfaramál þeirra og með því leitast við að glæða hng almennings fyrir velferðarmál- um byggðarlaganna suður með sjó. Leitazt mun verða við að hatda saman gömlum og nýjum fróð- leik um Suðurnes, og birta fréttir ár verstöðvunum. Blaðið mun gera sitt bezta til að fylgjast með og fræða les- endur sína um þær gjörðir Alþingis, sem máli skipta fyrir hrepps- félögin á Suðurnesjum. ___ Útgefendum blaðsins er það Ijóst, að mikil ábyrgð fylgir því, að taka að sér blaðaútgáfu. Koma þar tii fjárhagslegir ör&ugleik- ar, sem og hitt, að ef til vill reynist erfitt að afla nægilega fjöl- breytts efnis til blaða hér. Vér álítum þó, að með því að hér er um blað Reykjanesbúa að ræða, eins og nafn þess bendir til, en ekki einstaks hrepps eða félágs, ætti að vera nokkur trygging fyrir því, að nægilegt og fjölbreytt efni bærist. Til þess verða menn þó að skilja, að blað þetta er málgagn Suðurnesjamanna, hvar á Reykjanesskaganum sem þeir búa, og ættu sem flestir að senda ritnefnd þess greinar um áhugamál sín. Ritnefnd blaðsins liefur í hyggju, að fái að einhverju leyti að- komandi krafta til að skrifa í blaðið og með því gera það fjöl- breyttara. Vér ætlumst iil að blaðið komi út, eigi sjaldnar en 12 sinnum á ári. Reynt mun verða að prenta blaðið á góðan pappír, þar sem gera má ráð fyrir, að margir kunni að vilja halda því sgman, vegna ýmiskonar fróðleiks um Suðurnes. Enda þótt kostnaður við útgáfu þessa sé mikill, en sölumögu- leikar litlir, höfum við ákveðið að stilla verði blaðsins mjög í hóf, og selja hvert eintak á kr. 1.00 í lausasölu. Væntum vér góðra undirtekta almennings og stuðnings óihuga- manna við málefni héraðsins. Iíeflavík, l'i. marz 1943. Ú T G E F E N D U R. ári skal hér ekkert um sagt, en hjá því vferður vart komist, að þau verði há, og þá er það staðreynd, að eftir því sem færri standa und- ir þörfum hreppsins, eftir því verða byrðarnar þyngri. En ef við leggjum fé fram, í þeim tilagngi, sem að framan greinir, getur farið svo, að við lækkum útsvar okkar í framtíðinni, með því að beina nýjum straumum inn í atvinnulíf hreppsins. Svj. REYKJANES. Útgefendur: Nökkrir Keflvíkingar. Ritnefnd: Olafur E. Einarsson, Guðm. Guðmundsson, Sverrir Júlíusson. Afgreiðsla: Hringbraut 1. Verð blaðsins kr. 1.00 i lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.