Reykjanes - 01.03.1943, Qupperneq 6
6
REYKJANES
mönnum. Kostnaðinn við yfirmat-
ið greiðir sá, er þess liefir krafizt,
ef matsupphæðinni verður ekki
brejj meira en sem nemur 10%
af Iiinni ákveðnu endurgjaldsupp-
hæð, ella greiðist kostnaðurinn úr
hafnarsjóði Keflavíkur.
4. gr.
Hafnarmerki skulu ákveðin í
reglugerð.
5. gr.
Meðfram strandlengjunni um-
hverfis höfnina má ekki gera í
sjó fram neina bryggju eða önnur
mannvirki, né fylla upp eða dýpka
út frá landi, nema efíir tillögum
hafnarnefndar og með samþykki
hreppsnefndar Keflavíkur. Sá, sem
vill gera eitthvert slíkt mannvirki,
skal senda hafnarnefndinni beiðni
um það, og skal beiðninni fylgja
lýsing á því, svo og uppdráttur, ef
með þykir þurfa i tvennu lagi, og
heldur hafnarnefnd öðru eintak-
inu. Hafnarnefnd afgreiðir síðan
málið til hreppsnefndar,
Sá, sem fengið hefir slíkt leyfi,
skal skyldur að halda mannvirk-
inu svo við, að engin hætta stafi
af því. Þessi ákvæði gilda og um
þær bryggjur og önnur mannvirki
sem þegar hafa verið gerð á hafn-
arsvæðinu.
Brot gegn þesasri grein varða
sektum, frá 500—20000 kr., og
hafnarnefnd getur látið nema
burt mannvirki á kostnað eiganda.
6. gr.
Hreppsnefnd Keflavíkur hefir á
hendi stjórn hafnarmálefnanna
undir yfirumsjón atvinnu- og
samgöngumálaráðuneytisins.
7. gr.
Framkvæmd hafnarmála og eft-
irlit með höfninni skal fela hafn-
arnefnd. í hafnarnefnd sitja 3
menn. Skal nefndin kosin á sama
hátt og til sama tíma og aðrar
fastaiiefndir, er hrepspnefnd kýs.
Heimilt er þó að kjósa í nefndina
menn, er ekki eiga sæti í hrepps-
nefnd.
8. gr.
Eigúm liafnarsjóðs má aðeins
verja í þarfir hafnarinnar. Sveit-
arsjóður ábyrgist skuldir liafnar-
sjóðs, og hreppsnefnd hefir ábyrgð
á eignum hafnarinnar.
9. gr.
Hreppsnefnd má ekki án leyfis
ráðuneytisins selja eða veðsetja
fasteignir hafnarsjóðs, eða kaupa
nokkrar nýjar fasteignir, taka
stærri lán eða lán til lengri tíma
en að þau verði borguð aftur af
tekjum þess árs, sem fer i hönd,
né endurnýja slík lán eða fresta
borgunartímanum, og ekki lieldur
gera nein þau mannvirki við liöfn-
ina, sem eru svo stórvaxin, að árs-
tekjurnar hrökkvi ekki til að koma
þeim í framkvæmd.
10. gr.
Til þess að standa straurn at’
kostnaði við byggingu og viðhald
hafnarvirkja og til árlegs rekstr-
arkostnaðar hafnarinnar er heim-
ilt að innheimta g'jöld þau, er hér
segir:
1. Árlegt gjald af bryggjum og
öðrum mannvirkjum, sem gerð
eru samkvæmt 5. gr.
2. Af skipum og bátum, er hafna
sig á Keflavíkurhöfn, og farmi
þeirra:
a. Lestagjald.
b. Vitagjald.
c. Vörugjald. — Undanskildar
skulu þó vörur þær, er samkvæmt
farmskrá skipsins eiga að fara til
annarra hafna í landinu, ef þær
eru ekki settar á land.
d. Bryggjugald af skipum, er
leggjast við bryggjur hafnarinnar.
e. Fastagjald af skipum, sem
nota festar hafnarsjóðs.
f. Allt að 1% af andvh’ði afla
þeirra skipa og báta, sem heimili
eiga í kauptúninu og leggja þar
afla á land og hafa þar uppsátur.
Gjöld þessi, sem og gjöld fyrir
afnot af öðrum eignum hafnarinn-
ar, skulu ákveðin i reglugerð, sem
hreppsnefnd Keflavíkur semur og
atvinnu- og samgöngumálanáðu-
neytið staðfestir, og skal í henni á-
kveða, hver skuli greiða þau og
innheimta.
Herskip og skemmtiskip skulu
undanþegin gjöldum til liafnar-
innar samkvæmt tölulið 2 a og b.
11. gr.
Nú má álita, að tekjur af gjald-
stofnum þeim, sem heimilaðir eru
í 10 gr.., hrökkvi ekki fyrir árleg-
um útgjöldum hafnarinnar, og
getur þá hreppsnefnd, með sér-
stöku samþykki atvinnumálaráðu-
neytisins fyrir hvert ár, ákveðið,
að leggja rnegi aukatoll á aðflutn-
ingsgjaldskyldar og útflutnings-
gjaldskyldar vörur. Gjaldið má þó
aldrei fara fram úr 4% af tolli
þeim, er greiða ber i ríkissjóð.
Gjald þetta innheimtir liafnar-
nefnd. Gjald þetta, sein og gjöld-
in samkvæmt 10. gr., má taka lög-
taki.
12. gr.
Reikningsár hafnarsjóðs er al-
manaksárið.
13. gr.
Fyrir 1. nóvember ár livert ber
hafnarnefnd að leggja fvrir
lireppsnefnd frumvarp til áætlun-
ar um tekjur og gjöld hafnarinn-
ar á komandi ári. Hreppsnefnd
skal hafa fullsamið áætlunina fyr-
ir lok nóvembermánaðar og senda
hana síðan atvinnu- og' samgöngu-
málaráðunevtinu til samþykktar
Fvri r árslok, ásamt nauðsynlegum
skýringum á einstökum gjalda- og
tekjuliðum.
14. gr.
Nú hefir hreppsnefnd i liyggju
einhverjar meiri háttar aðgerðir
við höfnina, eða hún vill gera ein-
hverjar þær ráðstafanir, er sam-
þykki atvinnumálaráðuneytisins
þarf til, og skal hún þá senda ráðu-
neytinu sérstaka tillögu um það
efni. Skal það gert svo tímanlega,
að samþykki ráðuneytisins geti
komið til áður en hún lætur fjár-
hagsáætlun hafnarinnar fara frá
sér.
15. gr.
Komi það í ljós, þegar fram á
árið líður, að óumflýjanlegt sé að
sinna einhverjum aðgerðum utan
áætlunar eða fara fram úr áætl-
uðum fjárhæðum, ber hafnarnefnd
að tilkynna það lireppsnefnd í
tæka tið. Fallist hún á tillögur
hafnarnefndar, skal þegar leitað
samþykkis ráðuneytisins til þess
að víkja megi frá áætluninni. Fvrr