Reykjanes - 27.01.1950, Side 1
-------N
EFNI:
Grjótkast lír glerhúsi.
„Loforðabókin“
Hálf sögð saga.
Bíómálið.
„Þeijstu þegar í nótt“.
Skopleg blaðmennska.
o. m. fl.
„Grfótkast úr glerhúsi##
Undir þessari yfirskrift var ein af
greinum „Röðuls“, tvímælalaust sú,
sem mesta eftirtekt hefur vakið, af
því sem frá Alþýðuflokknum Jiefur
komið í því blaði. Þar er ráðist á Guð-
mund Guðmundsson, á mjög svo hat-
ursfullan hátt, en skotið nokkuð hátt
yfir markið, svo árásin sakar ekki,
nema að síður sé. í þessu greinarkorni
er Guðmundi borið á brýn flest það,
sem miður má fara í störfum eins
manns, óreiða og sleifarlag í hvívetna,
jafnt í þeim viðskipta- og atvinnumál-
um, sem hann veitir forstöðu, sem í
hans gamla starfi sem skólastjóri. Oll-
um er vitanlegt að fáir eru meiri reglu-
og starfsmenn en einmitt G. G., og
mér er nær að halda að greinarhöf-
undur sjál£ur hafi ekki ósjaldan sótt
ráð og fyrirgreiðslu til Guðmundar,
því hvorutveggja hefur vel gefist og
þegar svo hefur verið ástatt að Guð-
mundur hefur getað leyst vanda ein-
hvers samborgara síns, þá hefur ekki
verið spurt hverrar skoðunar viðkom-
andi hefur verið í stjórnmálum, eða
hvort hann hafi á sínum tíma verið
baldinn nemandi í skóla. Hitt er ann-
að mál að Guðmundur hefur verið
tregur til að láta óreiðumenn eins og
greinarhöfund, vaða í sparifé almenn-
ings, sem honum er falið til varð-
veizlu og vaxta.
I þessari umræddu Röðuls-grein, er
vikið að gömlu sóðamáli, sem var
jafnframt upphaf Framsóknarflokks-
ins hér í Keflavík. Þá var Jónas Jóns-
son yfirboðari menntamálanna í land-
inu og átti hér á snærum sínum tvo
smákarla, þá Arinbjörn og Jón Gunn-
arsson Pálsson. Að undirlagi Jónasar
og í pólitískum tilgangi gengust þeir
fyrir undirskriftasöfnun undir það, að
Guðmundur Guðmundsson væri al-
gjörlega óhæfur skólastjóri, enda þótt
undirskriftalistinn drukknaði á voveif-
legan hátt, þá komst málið þó svo
langt að látin var fara fram rannsókn
á störfum Guðmundar, sem skóla-
stjóra. Að þeirri rannsókn lokinni var
Jónasi Jónssyni tilkynnt að ef ætti að
víkja þessum skólastjóra frá störfum,
þá myndu flestir aðrir stéttarbræður
hans mega fylgjast með. Arið 1941
koma Jónas frá Hriflu og Guðmund-
ur skólastjóri ennþá fram á sviðið. Þá
finnur formaður Orðunefndar, Jónas
Jónsson, ástæðu til að sæma Guð-
mund Fálkaorðunni, fyrir vel unnin
störf, sem skólastjóri og forystumaður
síns byggðarlags um mörg ár. Þá urðu
undirskriftasafnararnir fegnir að skjal-
ið skvldi eyðileggjast á svo skemmti-
legan hátt, sem þess endalok urðu.
Við síðustu hreppsnefndarkosningar,
sem hér fóru fram, talaði Jón G. Páls-
son að vanda. Þá hvatti hann Kefl-
víkinga til að kjósa Guðmund Guð-
mundsson, sem þá var í 4. sæti lista
okkar, ]nd að í hans höndum væru
fjármál Keflavíkur bezt komin. Jón
G. Pálsson hefur nefnilega hin síðari
árin rétt nokkuð úr kútnum og er nú
maður vel fjáður, og orðinn það lítill
Framsóknarmaður, að hann lætur G.
G. njóta sannmælis, jafnvel á horna-
fundum.
Það tekur því ekki að eltast við
fleira í grjótkasti Röðuls úr glerhús-
inu, sú grein dæmir sig sjálf, og er
okkur mikill skaði að því, að hún
skuli ekki komast fyrir augu allra
kjósenda, áður en að kjörborðinu
kemur, því það er óheppilegur mann-
jöfnuður, fyrir Alþýðuflokkinn, að
bera saman persónuleika og starf-
hæfni Guðmundar Guðmundssonar
og Raganrs Guðleifssonar, þar ganga
Ragnar og Röðull með mjög skarðan
hlut frá borði.
Svar við fyrirspurn
í síðasta blaði Röðuls er grein, sem
heitir „Pennastrik og útsvarsskuldir“,
greinin er mjög barnalega skirfuð og
gæti þessvegna verið eftir Jón Tomm
eða Guðmund Guðjónsson. En hvað
um það, þá er í þessari grein beint
ákveðinni spurningu til Revkjaness,
um það hvern Sjálfstæðisflokurinn
ætli að gera að bæjarstjóra, þegar
meirihluti er fenginn í bæjarstjórn-
inni.
Þótt ekki sé ástæða til að svara
llöðli í fullri einlægni, þá skal það
gert í þetta sinn, ekki einungis vegna
blaðsins, heldur vegna fólksins, því
þetta er einmitt spurning, sem varðar
alla.
Þegar Sjálfstæðismenn hafa tekið
við rústum Ragnars & Co., og með
meirihlutaaðstöðu sinni hafið endur-
byggingu Keflavíkur, þá munu þeir
ráða hingað ungan dugandi verk-
fræðing, sem bæjarstjóra, því að mest
af þeim störfum, sem hér þarf að leysa
af hendi eru þess eðlis að verkkunn-
áttu þarf til. Af hinu er komið meira
en nóg — það er dæmi sem ennþá er
óreiknað, hvað miklu af fjármunum
okkar, Ragnar & Co., hefur sóað
vegna fákunnáttu og pólitískrar tog-
streytu í framkvæmdum Keflavíkur-
bæjar.
Þá hefur Röðull fengið ákveðið
svar við fyrirspurninni. Sjálfstæðis
menn ætla að ráða verkfræðing sem
bæjarstjóra, því hin önnur störf, sem
Ragnar hefur ekki haft tíma til að
sinna, getur gott skrifstofufólk leyst
af hendi, eins og það hefur gert, önn
ur en þau að misnota aðstöðu sína
sem bæjarstjóri, til framdráttar flokks.
hagsmunum sínum og dutlungum.
Kjósið D-listann
Helgi S.