Reykjanes - 27.01.1950, Qupperneq 6
6
REYKJANES
Mikið stóð til — framh. af bls. 5
Frá síðasfa fundi
Allan þann tíma, sem þetta fyrirtæki hreppsins var rekið, greiddi það
engan skemmtanaskatt, og sveik því þann sjóð almennings, sem notaður var
til glaðnings gömlu fólki. —
Allan þann tíma sem þessi rekstur var við lýði, greiddi hann ekkert útsvar
eða framlag á nokkurn hátt í sjóð almennings, en reikningarnir, sem fyrir liggja
fyrir árin 1947 og 1948, sýn afskriftir af 10 ára gömlum vélum, sem nema
kr. 7—8 þús. Senn er nú sagan öll. Það er búið að reyna þennan rekstur í
samkeppni, hann er búinn að vera einn um hituna og ekkert dugar, þá vill
menningarpostulunum það happ til, að svo óheppilega tekst til að eldur kem-
ur upp í vélunum og skemmir þær verulega, eða nægilega mikið til þess, að
Valtýr og Margeir geta kinnroðalaust hætt við þessa misheppnuðu tilraun,
og Margeir tekst að koma bindandi leigusamning af rekstrinum yfir á Góð-
templararegluna og verður það öllum til góðs, eykur starf og áhrif stúkunnar
og sparar bænum bein útgjöld.
Hvernig er það með lokauppgjör þessa fyrirtækis? A að vera Ragnars-
lag á því? Svo mörgum uppgjörum er Margeir búinn að standa að, og gera
þau bæði fljótt og vel, að þetta ætti ekki að vera honum ofvaxið.
20. janúar komu reikningarnir loksins fram og sýndu þá afskrift af véla-
görmunum kr. 7.462,00, eftir að 16.000,00 kr. brunatjónsbætur eru færðar til
tekna! Þessir reikningar eru fyrir árið 1948, en á árinu 1949 eru vélarnar gerð-
ar í gangfært ástand, hvar á að taka greiðslur til þess? — Það virðist ekki vera
ofvaxið að fá reikninga fyrirtækis, sem ekkert hefur starfað á árinu 1949,
nema að endurbyggja eftir brunann, fyrir janúarlok 1950.
Yfirlit yfir útsvars- og skemmtanaskattsgreiðslur
Nýja Bíó h. f. og Keflavíkur Bíó.
NÝJA BÍÓ H. F.
1945 greitt útsvar kr. 11.930.00 Skemmtanaskattur kr. 6.900.00
1946 greitt útsvar kr. 8.000.00 Skemmtanaskattur kr. 10.350.00
1947 greitt útsvar kr. 8.000.00 Skemmtanaskattur kr. 9.965.00
1948 greitt útsvar kr. 3.125.00 Skemmtanaskattur kr. 10.700.00
1949 greitt útsvar kr. 6.000.00 Skemmtanaskattur kr. 5.673.96 til 1./4.
Samtals kr. 37.055.00 Samtals kr. 43.588.96
KEFLAVÍKUR BÍÓ
1947 greitt útsvar ekkert Skemmtanaskattur — enginn
1948 greitt risvar ekkert Skemmtanaskattur — enginn
Kosningaskrifstofa
S j álf stæðisf lokksins
er opin frá kl. 1-10 daglega
hreppsnefndarinnar
Til að hafa eftirlit með róðrartíma
Keflavíkurbáta á yfirstandandi vertíð
voni kosnir eftirfarandi menn:
Vísir. Guðjón Jóhannsson skipstj. m.b.
Vonin II. Kristinn Arnas. skipstj. á
m.b Guðm. Þórðarson. Guðleifur ís-
leifsson, skipstj. á m.b. Keflvíking og
Guðmundur Guðfinnsson, skipstj. á
m.b. Bragi.
Eftirlit með róðrartíma er mjög van
þakklátt verk en öllum nauðsynlegt
og vonandi þurfa þessir eftirlitsmenn
ekki að beita stéttarbræður sína
hörðu, því öllum er fyrir beztu að
fylgja í þessu efni settum reglum.
I síðasta blaði var sagt frá því að
svo gæti farið að rafstraumurinn
kynni að verða tekin af Keflavíkur-
veitunni vegna vanskila á samnings-
bundinni greiðslu Keflavíkurbæjar til
Rafveitna Ríkisins, sem var að upp-
hæð kr. 43 þúsund.
Ragnari kom það ekki síður illa en
okkur ef svo bálega hefði tekist til að
þurft hefði að loka fyrir rafmagnið
þann 20. jan. og kosningar eftir 9
daga. — Nýir samningar tókust við
Rafveitur ríkisins á þá lund að greiða
mætti 33 þús. og 10 þús. þann 20.
febrúar n. k.
Ragnar fékk 2 fyirtæki þessa bæjar
til að samþykkja víxla uppí útsvars-
skuldir sínar, sem bærinn gaf út, og
Sparisjóðurinn síðan keypti og voru
víxlarnir að upphæð kr. 12 og 16 þús.
Bærinn setti að veði jarðýtuna og vél-
skófluna með 2. og 3. veðrétti og svo
á nýja bæjarstjórnin að forða öxinni
20 febrúar n. k. Einhversstaðar hefur
bæjarstjóranum tekist að skrapa saman
þessi 5 þúsund, sem til viðbótar víxl-
unum voru greiddar. Það var sannar-
lega gott að hér voru eftir einhver
fyrirtæki sem ekki voru bæjarrekin og
gátu því skuldað útsvar, svo við gæt-
um haft ljós og hita. Um 10 þúsundin
sem eftir eru þarf Ragnar ekki að sjá,
þau eiga að greiðast 20. febrúar.
Kjósiö D-listann