Reykjanes - 27.01.1950, Síða 9

Reykjanes - 27.01.1950, Síða 9
REYKJANES 9 Ragnar - þeystu þegar í nótf! Það hefur margt verið rætt og ritað um æsku þessa lands og segja sumir að hún sé mjög illa á veg’i stödd, aðrir segja aftur að hún sé ekki verri eða Þetri, en æskan hefur yfirleitt verið a undanförnum árum, eða jafnvel öld- um. Hins vegar er ekki vanþörf á ýmsum umbótum viðvíkjandi upp- vexti hennar, því að það er hún, sem a að taka við af þeim, sem nú gerast gamlir og slitnir, og eftir því sem asskan er betur undirbúin til að sinna hinum ýmsu störfum, þeim mun bet- ur ætti henni að takast er ábyrgðin fer að hvíla eingöngu á hennar herð- um. Eins og nú er komið fyrir þjóð vorri, virðist ekki vera vanþörf á dug- miklum mönnum og konum til að taka við ábyrgðinni Ekki er það svo, að ekki hafi verið gjört eitthvað fyrir æskuna á ýmsum stöðum á landinu. Það hafa verið byggðir nýir og fullkomnir barna- og unglingaskólar, fyrir hina yngstu, svo og þá, sem halda áfram að læra eftir barnaskólanámið., Það hefur og verið búið vel að þeim, sem íþróttir stunda, svo og leikvöllum, fyrir yngsta æsku- fólkið og er þetta allt gott og blessað. En nú er spurningin, hvað hefur verið gjört í Keflavík til úrbóta fyrir æskuna, og gert hana þar með starf- hæfa í framtíðinni? Hafa verið byggð- ir hér barnaleikvellir, svo að börnin þyrftu ekki að hafa götuna fyrir leik- völl? Eg ætla að leyfa mér að svara þessu neitandi. Ekki stóð þó á loforðum jafn aðarmanna, fyrir síðustu kosningar, þar að lútandi, að bætt skyldi úr þessu. Það átti svo sem að koma upp fullkomnum leikvöllum fyrir öll börn þessa bæjar. En hverjar hafa svo framkvæmdirnar orðið, í þessi fjögur ár, sem jafnaðarmenn og framsókn hafa ráðið hér lögum og lofum? Það þarf ekki að svara því, það vita allir um framkvæmdirnar, þær eru engar. Það var eitt aðalmál jafnaðarmanna fyrir síðustu kosningar, að byggja hér veglegan barnaskóla, sem ekki var vanþörf á, þar eð skóli sá, sem nú er notaður að nokkru leyti, var byggður 1911. Hver hefur svo verið fram- kvæmdin hjá jafnaðarmönnum og framsókn í því? Nú er svo komið, að kennt er hvorki meira né minna en á fjórum stöðum í bænum og sýnir það öðru fremur framkvæmdirnar í skólamálunum, og er það táknrænt fyrir meirihlutann í hreppsnefndinni. Það hefur verið svo mikið sleifarlag á skólamálum Keflavíkur, að slíkt hefur hvergi heyrst, og skyldi maður þó ætla að oddvitinn Ragnar Guð- leifsson og dindill hans Valtýr Guð- jónsson bæru eitthvert skin á skóla- mál, þar sem þeir eru báðir lærðir kennarar. En það virðist sem þeir hafi hvorki vit eða vilja á því, eða öðru yfirleitt. Það er hins vegar vitað, að allmikið fé hefur verið lagt fyrir, eða átti að leggja fyrir, til skólabygging- ar. En það er ekki fyrr en fer að líða að kosningum að nýju, að byrjað er á skólabyggingu og þá alls ekki byggt samkvæmt teikningu að skólanum; því að á íþróttahúsi skólans er ekki byrjað ennþá. Það er alls ekki Ragn- ari Guðleifssyni að þakka að skóla- byggingin er komin á það stig, sem hún þó er nú komin; en það er hon- um að kenna að skólahúsið er ekki fullgert og byrjað að kenna þar. Allir sjá hvernig þeir hafa staðið við þetta loforð. íþróttamálum Keflavíkur hefur lít- ill sómi verið sýndur í tíð jafnaðar- manna og frámsóknar. Ekki stóð þó á loforðunum í þá átt af hálfu þessara herra fyrir síðustu kosningar. Jú; það átti svo sem að koma upp fullkomnu íþróttasvæði fyrir æsku þessa bæjar. Það svarar sér sjálft, hverjar efndirnar hafa orðið. Það er ekki Ragnari og Co. að þakka, að byrjað er að ryðja melana og reyna að útbúa íþróttasvæði. Það er að þakka nokkrum framtakssömum í- þróttamönnum þessa bæjar. Þannig afgreiddu þeir það loforð. Kvikmyndahúsrekstur var hafin á vegum hreppsins, það átti svo sem ekki að velja myndirnar af verri end- anum, til sýninga þar. Það átti að fá góðar fræðslumyndir fyrir unga og gamla, og þá ekki síður fyrir æsku- fólkið. Það vantaði ekki, að þar væru hafðar sýningar fyrir börn, en hvernig voru þá fræðslukvikmyndirnar? Jú, það voru cowboy-myndir með skot- hríð, slagsmálum og jafnvel mann- drápum. Þetta þótti þeim Ragnari og Margeir heppilegustu fræðslumynd- irnar fyrir æsku þessa bæjar. Hér hefur aðeins verið stikklað á stóru, en af miklu er þó af að taka, því að yfirleitt hafa þessir herrar ekki staðið við neitt af þeim loforðum, sem þeir útbýttu meðal almennings um síðustu kosningar, og aldrei hefur Jrað verið ætlun jafnaðarmanna að gera neitt fyrir æsku þessa bæjar, frekar en aðra. Þá er spurningin, er hægt að treysta þessum mönnum til að gera rneira á næsta kjörtímabili, en þeir hafa gjört á því sem er liðið? Ég svara hiklaust neitandi. Fyrir því heiti ég á alla góða menn og konur, sem vilja vinna að heill og velferð síns byggðarlags, að flykkja sér um D-listann, lista Sjálfstæðismanna í Keflavík og gera sigur hans glæsilegri en hann nokkurn tíma hefur verið, þá mun verða eftir því sem ástæður leyfa, bætt úr því öngþveiti, sem jafnaðarmenn og fram- sókn hafa komið bæ okkar í, á yfir- standandi kjörtímabili. Ben. Þórarins. ( N mmrnu ö iH ö > "55 fl 03 ö “■ pH fl ?H <D H Ö *o ð) 03 E ö jti *© ■ Bsasa ■ H "55 w HhH i Q 'ö in V

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.