Reykjanes - 27.01.1950, Blaðsíða 12
REYKJANES
— KEFLAVÍK 27. JAN. 1950 —
Leiðrétting
I greininni „Framboð Sjálfstæðis-
manna í Njarðvík“, sem birtist í síð-
asta blaði, var frá því sagt að skóla-
stjórinn þar leigði Ameríkana herbergi
fyrir kr. 500,00 á mánuði, nú hafa
kunnugir tjáð blaðinu að þarna sé um
mishermi að ræða, því skólastjórinn
leigi fyrir 800,00 á mánuði.
Frá sjónarmiði blaðsins skiptir það-
ekki máli hvað kommúnistar geta og
vilja græða á hinni hötuðu „herra-
þjóð“, eða hvort heldur þeir græða á
húsaleigu eða sokkasölu, heldur skipt-
ir það eitt máli, að hafa það heldur,
er sannara reynist.
Blaðið biður afsökunar á þessum
leiðu mistökum og þakkar þeim sem
voru svo velviljaðir að benda blaðinu
hógværlega á að þarna væri rangt
með farið.
Vertíðin
Utgerð frá Keflavík og Njarðvík á
þessari vertíð verður með mesta móti,
og er vitað að 30 bátar munu stunda
veiðar héðan. 22 bátar verða á línu,
8 á netum eingöngu, og 2 muhu
stunda togveiðar. Af þessum 30 bátum
eru 8 aðkomubátar, sem allir stunda
línuveiðar. Róið var í fyrsta sinn þ.
13. janúar, og hafa verið farnir 4 róðr-
ar, þegar þetta er skrifað. Aflinn hefir
. verið mjög sæmilegur í þessum róðr-
um, frá 8—20 skpd.
Eins og undanfarnar vertíðir, mun
mest af fiskinum verða fryst, en eitt-
hvað mun þó verða saltað, að minnsta
kosti framan af vertíð.
Enn mun ekki hafa verið selt neitt
af væntanlegri framleiðslu frystihús-
anna á árinu 1950, og ríkir þessvegna
óvissa um, í hvaða pakkningar verður
unnið í vetur. Telja má víst að mun
minna verði unnið í 7 lbs. pakkningar,
en verið hefur á undanförnum árum,
þar sem reiknað er með, að Bretar
muni ekki kaupa jafn mikið magn af
fiski af okkur í ár, og undanfarin ár,
en þeir eru einu kaupendurnir sem
vilja fiskinn í þessum umbúðum.
Frystihúsin munu flestöll vinna á
Ameríkumarkað til að byrja með, þar
sem búist er við, að hægt verði að af-
skipa 800—1000 tonnum þangað í
byrjun febrúar.
Myndagátan
Við myndgátunni bárust 18 ráðn-
ingar. Engin þeirra var eins og sú,
sem ætlast var til, enda skal það fús-
lega viðurkennt, að myndin var ekki
nægjanlega skýr.
H—2—S er efnafræðiformúla fyrir
tveimiu hlutum vatnsefnis og einum
hluta brennisteins og myndar sú sam-
setning almenna slæma fýlu, í stamp-
inum gat margt verið, sem slæma
lykt legði af.
Margar ráðningarnar voru skemmti
legur í-eiðilestur yfir ritstjóra þessa
blaðs, en hann hefur svo breitt bak
að þar kemst ennþá mikið fyrir.
Ein ráðningin var skemmtileg og
sýnir betur en margt annað, hve
stundum er hugsað skannnt. Sú ráðn-
ing var á þessa leið:
„Kerald, sem slæma fýlu leggur
upp af, sama sem fjórði maður á hsta
Alþýðuflokksins, Magnús Þorvaldsson
= fýlukerald."
Að vísu er Magnúsi þessum skap-
brestur búinn, sem í daglegu tali er
kallað fýla, en ekki var nú hugkvæmn-
in við tilbúning myndgátunnar svo
mikil, að ætla þetta rétta ráðningu,
en samt sem áður er sá, sem þessa
ráðningu sendi og merkt var x-A,
beðinn að vitja verðlauna sinna fyrir
beztu ráðninguna.
M O L A R
Órtúlegt en satt:
Sjálfstæðismenn í Keflavík hvetja
alla til að lesa „Röðul“, — sýnishorn
Máls og menningar Alþýðuflokksins í
Keflavík. —
9
Minnist ekki á þvottavélar í návist
Egils Eyjólfssonar, þá fær hann kast.
A 9
Ragnar Guðleifsson bæjarstjóra
vantaði tíma til að svara þungum á-
deilum, í síðustu umferð umræðnanna
á miðvikudaginn var, en þó var tími
til að láta Jón Tómasson skjálfa og
stama í hljóðnemann í tíu mínútur.
9
Sigurður Brynjólfsson er liugdjarfur
maður, að þora að koma í ræðustólinn
og óska eftir að hann verði tekinn
trúanlegur um velvild sína til verka-
manna í Keflavík.
Hans saga er of kunn, hann var á
Keflavíkui'flugvelli um tíma. Þá titl-
aður fulltrúi. — Það var í tíð Aka
Jakobssonar, flugmálaráðherra.
Nú er önnur tíð. Vill Sigurður
Brynjólfsson rifja upp starfsferil sinn
í tíð Áka, eða á að birta kunnar stað-
reyndir úr tíð happasælla fanga hjá
„herraþjóðinni“.?
9
Vill Gestur Auðuns halda aðra ræðu
um útgerð og viðskipti, og bjóða þeim
að hlýða, sem hann skuldar?
9
Velvild Ragnars Guðleifssonar
bæjarstjóra, til barnaskólabyggingar-
innar lýsir sér vel í því, að ekki hefur
fengist lánstraust, í nafni Keflavíkur-
bæjar, fyrir einni glerkistu í glugga
skólans, eða nokkrum rúllum af pappa
á þakið.
Kjósið D-listann