Vesturbæjarblaðið - maí 2023, Blaðsíða 4
Lúðvík S. Georgsson hefur verið tengdur KR svo lengi sem
hann man. Hann lék bæði fótbolta og körfubolta með
félaginu en hefur einnig tekið mikinn þátt í öðru starfi
þess. Hann tók við formennsku KR fyrir tveimur árum. Segir
að það hafi verið tímabundin ráðstöfun, enda ekkert unglamb
lengur, og ákvað hann að láta af formennsku á aðalfundi félagsins
nú á dögunum. Lúðvík sat einnig í stjórn KSÍ frá árinu 1995 til
2014, var meðal annars ritari stjórnar og síðar varaformaður, en
hætti í stjórn að loknu ársþingi KSÍ 2014. Hann var þá sæmdur
gullmerki KSÍ og heiðurskrossi ÍSÍ. Vesturbæjarblaðið settist
niður með Lúðvík í heiðursherbergi í höfuðstöðvum KR á
dögunum. Eftir að Lúðvík hafði sýnt komumanni myndir af
fyrrum formönnum KR og kynnt þá lítillega fyrir honum snerist
spjallið að honum sjálfum.
Líf Lúðvíks hefur snúist um
fleira en KR. Hinn hlutinn snýr að
verkfræði og einkum jarðhitamálum
sem segja má að orðið hafi ævistarf
hans. „Ég fór að loknu stúdentsprófi
til Svíþjóðar árið 1970, þar sem ég
lærði eðlisverkfræði. Að námi loknu
kom ég til starfa hjá Orkustofnun
sem jarðeðlisfræðingur. Þetta
er á þeim tíma þegar fyrsta
orkukreppan hafði rétt gengið yfir
og hitaveituvæðingin var komin á
fullt. Þetta var því áhugaverður tími
fyrir jarðeðlisfræðing. Ég vann við
rannsóknir út um allt land til þess að
finna og virkja heitt vatn sérstaklega
til húsahitunar og einnig, einkum
síðar, til framleiðslu á rafmagni.
Þetta voru fyrstu orkuskiptin sem
fóru fram hér á landi. Þegar rætt er
um að við höfum ekki staðið okkur
nægilega vel í orkumálum má ekki
gleyma þessu upphafi. Þetta fyrsta
skref hitaveituvæðingarinnar er oft
ekki talið með. Stóra skrefið sem
kom okkur raunverulega af stað.
Þær breytingar sem urðu þarna
var stórkostlegt ævintýri. Þetta
byrjaði í Reykjavík og á sér þar
sögu nokkru lengra aftur en svo
þróaðist þetta út um landið. Sagan
um Hitaveitu Akureyrar er frábært
dæmi, þegar heitt vatn fannst við
Hjalteyri við Eyjafjörð. Hitaveitan
var komin en ljóst var orðið að ekki
var til nægjanlegt vatn fyrir hana.
Menn voru farnir að velta ýmsu
fyrir sér hvernig mætti leysa þetta
án þess að bærinn yrði aftur kaldur.
Þar á meðal hvort hægt væri að
sækja heitt vatn yfir í Fnjóskadal
handan Vaðlaheiðarinnar. En svo
kom lausnin upp í hendurnar á
mönnum rétt við túnfótinn sem
var ótrúleg heppni.“
Við jarðhita leit í 15 ár
„Ég starfaði við jarðhitaleit
í 15 ár. Frá 1975 til 1989 að ég fór
til vinnu við Jarðhitaskólann og
var aðstoðarskólastjóri þar næstu
árin. Þetta var mjög ólíkt því sem
ég hafði verið að fást við áður. Ég
hafði einkum verið að horfa niður
í jörðina en nú var ég farinn að
vinna með fólk og kenna því. Flestir
af þeim nemendum sem komu til
okkar í Jarðhitaskólann voru frá
þróunarlöndunum. Þeir komu
víða að, einkum frá Afríkulöndum
en einnig frá Mið Ameríku og Asíu.
Þeir voru yfirleitt mjög áhugasamir
og því var unun að kenna þeim.
Síðustu sex árin mín í starfi áður en
ég fór á eftirlaun var ég skólastjóri
Jarðhitaskólans, frá 2013 til 2019.“
Jarðhitaskólinn var
gefandi viðfangsefni
Lúðvík segir að starf sitt við
jarðhitaskólann hafi verið gefandi
viðfangsefni og veitt sér tækifæri
til þess að ferðast og sjá ýmislegt af
veröldinni sem hann hefði annars
trúlega ekki augum litið. „Nemendur
koma úr ýmsum hópum en allir eru
á endanum valdir með viðtali. Hluti
af starfinu var að heimsækja löndin
og skoða aðstæður og möguleika
og ræða við fólk sem tilnefnt hafði
verið til náms. Þá var reynt að velja
fólk sem líklegast væri til þess að
spjara sig vel. Ég verð að segja það að
aðlögun þessa fólks gekk vel og lang
flest stóðu undir þeim væntingum
sem til þess voru gerðar. Þetta veitti
mér jafnframt góða innsýn í stöðu
ríkja og þarfir við uppbyggingu og
virkjun jarðhitans.“
Fæddur inn í KR
En hvenær kom KR inn í líf
Lúðvíks. Hann var snöggur til
svars. „Við fæðingu. Ég er fæddur
inn í KR þótt ég sé ekki alveg
innfæddur Vesturbæingur. Í eitt
ár átti ég heima handan við læk.
Faðir minn og bróðir hans voru þá
að byggja við Kvisthaga og þangað
var flutt í ársbyrjun 1951. Ég var
13 mánaða og síðan hef ég verið í
Vesturbænum og meira að segja í
sama húsinu fyrir utan námsárin í
Svíþjóð. Í dag bý ég á efri hæðinni
með fjölskyldu minni en yngri systir
mín býr á neðri hæðinni. Þetta er
gott sambýli hjá okkur. Faðir okkar
Georg Lúðvíksson, sem var forstjóri
ríkisspítalanna, var mikill KR-ingur.
Hann var einn af forystumönnum
í skíðadeild KR sem var sett á
laggirnar fyrir réttum 100 árum.
Hann var þar í forystu fram undir
1960. Á þeim tíma stjórnaði hans
m.a. byggingu á skíðaskála félagsins
í Skálafelli“ Lúðvík kveðst hafa spilað
fótbolta og körfubolta sem strákur
og alveg fram á fullorðins ár án
þess þó að hafa nokkru sinni verið
það sem kallað er afreksmaður.
„Ég var lengur í körfunni en í
fótboltanum þótt ég væri kallaður
til starfa í fótboltanum í kringum
1980. Síðan hefur fótboltinn og
málefni tengd honum átt ótrúlega
stóran hlut í lífi mínu. Ég átti sæti í
stjórn knattspyrnudeildar KR í 15
ár og þar af formaður síðustu fjögur
árin. Ég var líka í stjórn KSÍ í 19 ár
og var varaformaður þar í tvö ár.
En þegar formaðurinn er KR-ingur
er erfitt að vera með varaformann
sem einnig er í KR.“
Var sestur í helgan stein
Lúðvík kveðst hafa verið sestur í
helgan stein eins og það er kallað
þegar leitað var til hans fyrir
tveimur árum að gefa kost á sér til
formennsku í KR til skemmri tíma.
Þetta var þegar Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson lét af formennsku.
Gylfi hafði sinnt stjórnarstörfum hjá
knattspyrnunni í KR um og upp úr
síðustu aldamótum, og sat meðal
annars í stjórn rekstrarfélagsins KR
og í stjórn KR-sport í nokkur ár. Árið
2013 var Gylfi kjörinn formaður KR
og gegndi því embætti til 2021 að
Lúðvík tók við. „Skyldan kallaði á
mig. Í mínum orðaforða þekkist
ekki að segja nei við KR. Það var
ekki hluti af mínu uppeldi. Ég lét
því til leiðast og var kjörinn fyrir
tveimur árum.“ Lúðvík segir þetta
hafa verið eftir erfiða tíma hjá KR.
Kórónuveirufaraldurinn hafi sett sín
strik í starfsemi þess eins og annarra
félaga. Vegna samkomutakmarkana
hafi mikið af starfi innan félagsins
legið niðri um tíma og fjárhagurinn
hafi verið erfiður. „En nú eru stór
mál fram undan. Nú er búið að
samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir
svæðið okkar. Fyrst á dagskrá er
að byggja fjölnota íþróttahús sem
við erum búin að semja um við
Reykjavíkurborg. Það liggja nú
fyrir gögn um alútboð á þessu
verkefni, sem hafa verið samþykkt af
byggingarnefnd Reykjavíkurborgar
og KR. Þau þurfa að fara fyrir
borgarráð til endanlegrar afgreiðslu,
en það verður vonandi ekki mikill
þröskuldur. Ef allt gengur að
óskum gætu framkvæmdir hafist í
haust. Vandamálið er auðvitað að
fjárhagsstaða borgarinnar er erfið.
En við verðum þó að vona það besta
því aðstöðuleysi félagsins er orðið
með ólíkindum og ég trúi ekki öðru
en að borgin taki jákvætt á þessu nú
á næstu vikum.“
Íþróttahúsið er stórt skref
Lúðvík segir að þetta fyrsta skref
með byggingu íþróttahússins sé stórt
og muni breyta miklu. Þarna sé um
Vesturbæjarblaðið MAÍ 2023
Þetta er allt að koma
Fjölskyldan við Gardavatn á Ítalíu fyrir tveimur árum. Efri röð frá vinstri: Ellert Kristján, Georg, Ari Lúðvík, Valur
Einar og Lúðvík Neðri röð: Magnús, Kristrún Gunnarsdóttir, Ása og Sonja.
- segir Lúðvík S. Georgsson fráfarandi formaður KR
4
Íþróttamenn KR 2023 sem voru krýndir á aðalfundi KR í byrjun maí.
Frá vinstri: Þórhildur Garðarsdóttir, sem er nýr formaður KR. Perla Jóhannsdóttir fyrirliði meistaraflokks
kvenna í körfu, Gauti Guðmundsson skíðamaður og Lúðvík.