Vesturbæjarblaðið - jul. 2023, Síða 12

Vesturbæjarblaðið - jul. 2023, Síða 12
12 Vesturbæjarblaðið JÚNÍ 2023 Regnbogahlaup frístundaheimila Tjarnarinnar var haldið miðvikudaginn 17. maí sem jafnframt er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Frístundaheimili Tjarnarinnar eru öll regnbogavottuð frístundaheimili en með þeirri vottun höfum við lýst því yfir að við ætlum að hafa starfsemina okkar hinseginvæna fyrir öll sem sækja til okkar þjónustu og öll sem starfa hjá okkur. Er það liður í því að gera það sem við getum til að koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks. Hlaupið fór fram á tveimur stöðum í ár en börnin í Vesturbæ hittust á Ægissíðunni og börnin í Miðborg og Hlíðum hittust á Klambratúninu. Með þessu móti dreifðum við bæði ósvikinni gleði barnanna og litagleðinni hressilega um borgarlandið þar sem sjá mátti marglita litabólstra stíga upp til himins meðan starfsfólkið okkar jós marglitu litadufti yfir börnin sem hlupu í hlaupinu, en við erum einnig að dreifa ákveðnum skilaboðum út í nærsamfélagið okkar með þessu hlaupi. Það voru ansi mörg sælubrosin sem sáust á þessum stórskemmtilega viðburði sem þó hefur mjög svo alvarlegan undirtón, en víða eru vísbendingar um að fordómar í garð hinsegin fólks séu að aukast. Við fórum ekki varhluta af þeim fordómum þar sem ekki voru öll jafn ánægð með þetta framtak okkar og höfum við þurft að svara vægast sagt ósáttum þjónustuþegum sem bera því fyrir sig að þau séu bara að vernda börnin. Við hins vegar látum ekki deigan síga og höldum ótrauð áfram á þessari braut, enda sanna þessar undantekningar ekkert annað en hversu nauðsynlegt það er fyrir okkur öll að gefast ekki upp og halda áfram að vinna að jafnrétti, skilningi og umburðarlyndi fyrir öll. Við munum því halda áfram að leggja okkar af mörkum við að skapa samfélag þar sem er rými fyrir allt litróf mannlegs fjölbreytileika með því að fagna fjölbreytileikanum með krökkunum og fjölskyldum þeirra og vonumst til að sjá sem flest fagna honum með okkur á sama tíma að ári þegar við höldum næst regnbogahlaup frístundaheimila Tjarnarinnar. Áfram fjölbreytileikinn og við öll. Regnbogahlaup Tjarnarinnar Ungir sem eldri tóku gleði sína við Ægisíðuna. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Litagleði setti svip á hlaupið. Tónlistaratriði í Regnbogahlaupi. Vesturbæjarskóli Nýlega hittust skólastjórnendur og hópur barna úr Vestur­ bæjarskóla, tvö úr hverjum árgangi, til að ræða um nám og kennslu í skólanum. Vesturbæjarskóli er Réttindaskóli Unicef og því eitt af markmiðum skólastarfsins að byggja upp lýðræðislegt skólaumhverfi. Í þessari umræðu kom fram að börnunum finnst mikilvægt að læra stærðfræði, íslensku, list- og verkgreinar og tungumál en einnig samvinnu og góð samskipti. Áhugavert var að heyra upplifun þeirra af tungumálakennslu og í þeirri umræðu komu meðal annars fram vangaveltur um stöðu íslensku tungunnar. Börnunum finnst mikilvægt að þau fái tækifæri á að hafa áhrif á sitt eigið nám og hvernig þeim finnst best að læra og hafi val um leiðir til að sýna það sem þau hafa verið að læra. Eitt barn lýsti því hvað það er gott þegar þau mega velja hvernig þau skila verkefnum og það sé gott að hafa marga valkosti ,,það gerir námið skemmtilegra og áhugaverðara". Börnin ræddu mikilvægi þess að fá góðan vinnufrið í skólanum og að fá að velja meira með hverjum og hvernig þau læra. Að lokum komu upp vangaveltur um notkun barna á snjalltækjum og finnst þeim að foreldrar verði að vera meira vakandi fyrir því hvað börnin þeirra eru að gera í þeim tækjum og hversu lengi. Eins og einn sagði ,,börn verða þreytt í hausnum á að horfa svona mikið á skjá". Okkur þykir mjög mikilvægt að raddir barna í skólanum heyrist og að hlustað sé á þau. Það var margt mjög áhugavert sem kom fram í þessari umræðu sem stjórnendur skólans ætla að skoða nánar og sjá hvað hægt er að gera betur. Frá fundi skólastjórnenda og barna í Vesturbæjarskóla. Skólastjórnendur og nemendur ræða skólastarf

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.