Stuðlaberg - 01.01.2012, Blaðsíða 5
STUÐLABERG 1/2012 5
Kveðskaparhefðin er hluti af vitund og lífs-
reynslu þjóðarinnar. Okkur langaði til að finna
fyrir vísnahefðinni og tilvist hennar og deila
þeirri reynslu með lesendum. Haft var sam-
band við hagyrðingasamfélagið og falast eftir
vísum um eitt af því sem nú er efst á baugi,
stjórnarskrármálið og kosningu um tillögur
stjórnlagaráðs. Boð voru send út að kvöldi
dags seint í október gegnum netið til hag-
yrðinganna og þeir beðnir að yrkja um efnið.
Frestur var gefinn til hádegis daginn eftir.
Kristján Runólfsson vill hafa stjórnar-
skrána í bundnu máli:
Vel sé grunduð, galla frí,
gefi pund til handa,
stuðlum bundin, stökum í,
styðji mund og anda.
Davíð Hjálmar Haraldsson veltir fyrir sér
hvort hún hallist til hægri eða vinstri:
Stjórnarskrá brátt kynna kauðar,
kátleg verður bókin sú;
hægri síður eflaust auðar,
allar hinar fagurrauðar
eins og séu út úr kú.
Hreinn Guðvarðarson yrkir um framtíðar-
sýn sem er bundin við háleit og göfug markmið:
Stefnum að, í stjórnarskrá
sé stétta sáttin fundin
og viska þjóðar, von og þrá
vel í orðum bundin.
Ágúst Marinósson er bjartsýnn:
Nálgast óðum skulda skil
skal nú lokast gjáin.
Fyrir vorið verður til
vönduð stjórnarskráin.
Það er Ármann Þorgrímsson ekki. Hann
telur óvíst að þetta mál sé í höfn:
Gegn henni mun geisa fár
glöggt ég þykist mega sjá
að bíða verðum einhver ár
eftir nýrri stjórnarskrá.
Helgi Zimsen yrkir tvær vísur samrímaðar
þar sem hann lýsir skoðun sinni á kosning-
unni og vinnunni sem á eftir fer:
Þjóðin hálf vill seðil sjá,
sína skoðun ríta.
Sjö af tíu sögðu „já
svona drög má nýta“.
Núna þegar þetta er frá
þurfa í mál að líta
sérfræðingar sem að þá
sjálfsagt margt í hnýta.
Sigmundur Benediktsson er þungur á
brún yfir ástandi þjóðmála:
Þjóðin í heimskingjafor sinni ferst,
feigðaróss nálgast hún strandið.
Svikráðabandið þar sýnu er verst,
selja vill frelsið og landið.
Við endum á limru eftir Hermann Jóhann-
esson. Hann gefur henni nafnið Heimasætan.
Ég er tvílráð og tjái mig ei.
Það taka víst ýmsir sem nei.
Og einhverjir sjá
líka í þessu já.
Það er sárt fyrir siðprúða mey.
Þessar vísur urðu til á einu kvöldi og
morgunstund. Hagyrðingarnir fá bestu þakkir
fyrir skjót viðbrögð og vandaða vinnu. Brag-
hefðin er sem sagt alveg bráðlifandi. RIA.
Hægri síður eflaust auðar
Hagyrðingar láta sig stjórnarskrána varða