Stuðlaberg - 01.01.2012, Qupperneq 14
14 STUÐLABERG 1/2012
Hugur og hjarta
Ólafur Runólfsson er þekktur hagyrðing-
ur, fljótur að yrkja og vel farinn bragarmáli.
Hann hefur nú sent frá sér vísnabók mikla að
vöxtum, hvorki meira né minna en 188 blað-
síður. Bókin nefnist Hugur og hjarta og fjallar
um heilsufarsmál. Ólafur lýsir í inngangi þeim
hremmingum þegar hann lét undan þrýstingi
umhverfisins og þáði flensusprautu en varð
svo veikur að við sjálft lá að hann kveddi
jarðheim. Upp úr þessu greindist hann með
stíflaðar kransæðar og var á sjúkrahúsi heila
15 daga, sem á honum má skilja að hafi verið
þeim 15 dögum of mikið.
Vísurnar fjalla um sjúkrahússdvölina.
Aftan á bókinni má lesa eftirfarandi umsögn
eftir Jóhann Guðna Reynisson: „Vísnasnilldin
er Ólafi í blóð borin og í raun má segja að
hann hugsi í hendingum. Þessi bók er því
sannkallaður happafengur fyrir alla þá sem
unna góðum og vönduðum kveðskap og njóta
þess að lesa vandað bundið mál um efni sem
mörgum er hugleikið.“
Vísurnar lýsa lífinu á sjúkrahúsinu og
síðan eftir að heim er komið. Þegar verið var
að undirbúa skurðaðgerðina kom þessi vísa:
Á lágum bekk ég liggja má,
ljúf þar kona situr hjá.
Af mér rakar öll mín strá
allt frá höku að stórutá.
Og hann yrkir um sjálfan sig:
Á ytra borði er ég hrjúfur,
oft er fremur stutt í grín.
Inn við beinið er ég ljúfur
eins og þegar sólin skín.
Lauslega áætlað munu vísurnar í bókinni vera
í kringum eitt þúsund. Þetta er kallað að vera
hraðkvæður.
Ný axarsköft
eftir Jóa í Stapa
Bók Jóa í Stapa, Ný axarsköft, kom út árið
2011. Þetta er falleg bók, innbundin með
myndskreyttri hlífðarkápu. Höfundinn
þarf ekki að kynna. Jóhann Guðmunds-
son, kenndur við Stapa í Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafirði, hefur í áratugi verið
þekktur sem einn af okkar fremstu hag-
yrðingum. Hér verða birtar nokkrar
vísur úr bókinni, valdar af handahófi.
Við áningu í Austurdal
Lindin hjalar kvæði kátt,
hjá klettsins svala riði.
Á grænum bala sitjum sátt
í sól og dalafriði.
Ferðalok
Við höfum átt á fjöllum frí.
Fegurð þeirra lokkar.
Safnast hefur sólskin í
sálarhirslur okkar.
Kvenlýsing
Konunni er létt að lýsa.
Ljúf í sinni, prúð og nett.
Hún er annars eins og vísa,
orðuð vel og kveðin rétt.
Kona ein var að fegra garðinn sinn
Þú átt skilið þjóðar hrós.
Þitt er markað sporið.
Ef þú græðir eina rós
yrkirðu ljóð um vorið.
Bros
Lítil snót og létt í spori
laus við heimsins tál,
brosir eins og blóm á vori
og bræðir hverja sál.