Stuðlaberg - 01.01.2012, Síða 21
STUÐLABERG 1/2012 21
Gæsirnar flugu í gær
Unga fólkið leikur sér með limruformið
Nýstárleg tilraun var gerð í Háaleitisskóla,
Álftamýri, nú í októbermánuði. Nemendur
í 10. bekk ortu limrur í hópvinnu. Þetta fór
þannig fram að eftir að kennari (undirritaður)
hafði útskýrt helstu bragreglur limrunnar sett-
ust nemendur við að búa til stakar braglínur.
Skipt var í þrjá hópa; tveir þeirra bjuggu til
langlínur, annar hópurinn lét ríma við orðið
ær, hinn við orðið óla. Þriðji hópurinn bjó til
skammlínur, tvær og tvær sem stuðluðu og
þau máttu ráða ríminu aðeins ef línuparið
rímaði saman. Við þetta undu nemendur sér
það sem eftir lifði tímans og var ekki annað
að sjá en þeim líkaði vel. Niðurstöðurnar voru
frumlegar og fóru vítt, eins og við mátti búast.
Hér má sjá dæmi um línurnar; fyrst lengri lín-
urnar, sem ríma við ær og óla, og svo skamm-
línur:
Védís hún vakti í gær
Helga hún situr og hlær
Gunnar hann játaði í gær
Þetta er kúgun, mín kær
Bóndinn á bátnum hann rær
Strákurinn stendur og hlær
Gæsirnar flugu í gær
Sigurður siðblindi slær
Um nóttina færðist hún nær
Mayra er stórkostleg mær
Telma´ er með fallegar tær
Grasið það vex hér og grær
Kerlingin karlinn sinn þvær
Kötturinn er mér svo kær
Sjóarinn Sigurður hlær
Í bekknum er fíflið hún Fjóla
Hann er víst alltaf að hjóla
Hana langar ei lengur í skóla
Njáll selur alls konar njóla
Kjartan á kött sem vill hjóla
Jóhanna hlakkar til jóla
Á Bjarnfríði óx tröllsleg bóla
Nú er ég að tala um Óla
Hún grætur og vill bara góla
Hún fer út að kaupa sér kjóla
Hann býður henni´ upp á kóla
Bærinn hans brennur
og blóðið hans rennur
Tónlist er góð
hún gerir oss fróð
Ef ég nenni´ ekki að vaka
þá verð ég að slaka
Hann var ekki´ að saka
hann var úti´ að aka
Nemendur Háaleitisskóla Álftamýri. Hluti af
limruskáldunum.
El
le
rt
B
or
ga
r Þ
or
va
ld
ss
on