Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Síða 6
6 | | 19. janúar 2023
Sandra Erlingsdóttir var
útnefnd handknattleikskona
Íslands árið 2022. Sandra er
24 ára miðjumaður sem spilar
með TuS Metzingen í Þýska-
landi þar sem hún er í stóru
hlutverki ásamt því að vera
fastamaður í íslenska lands-
liðinu. Sandra er því Eyjamað-
ur vikunnar.
Sandra hefur komið víða
við á ferlinum. Hún spilaði
upp yngri flokkanna með ÍBV
og HK hér á landi ásamt því
að spila með Hypö Nö og
Fuchse Berlin en hún fluttist til
Austurríkis og Þýskalands með
fjölskyldunni 15 ára gömul.
Sandra snéri aftur heim 18
ára og spilaði þá með meist-
araflokki ÍBV í tvö ár áður en
hún fór yfir til Vals árið 2018.
Hún varð Íslandsmeistari með
Val árið 2020 og hélt þá út
í atvinnumennsku til EH Aal-
borg í Danmörku. Sandra fór
á kostum með Aalborg og var
valin besti leikmaður liðsins
tvö ár í röð.
Sandra situr þó ekki auðum
höndum úti en ásamt því að
vera á fullu í boltanum rekur
hún fyrirtækið PS.árangur þar
sem hún og Perla Albertsdótt-
ir, leikmaður Fram, hjálpa
fólki að næra sig á réttan hátt.
Fullt nafn: Sandra Erlingsdóttir.
Fjölskylda: Bý með kærastanum
mínum Daníel í Þýskalandi. Svo
á ég foreldra, mömmu Vigdísi og
pabba Erling og tvo yngri bræður
Elmar og Andra.
Hefur þú búið annarsstaðar en
í Eyjum? Heldur betur, Kópa-
vogi, Wien í Austurríki, Berlín í
Þýskalandi, Aalborg í Danmörku
og núna í Balingen og Metzingen
í Þýskalandi.
Mottó? Margur er knár þótt hann
sé smár.
Síðasta hámhorfið? Ginny and
Georgia.
Uppáhalds hlaðvarp? Þarf allt að
vera grín.
Aðaláhugamál? Allar íþróttir,
hreyfing og vinnan mín þar sem
ég hjálpa fólki að næra sig rétt og
eiga gott samband við næringu.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án?
Hafragrauturinn minn, sem ég
hef borðað sl. 5 ár á morgnana og
daglegu símtölin við mömmu.
Hvað óttast þú mest: Yfirnáttúru-
lega hluti.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap? Ég er mjög dramatísk þegar
kemur að tónlist og hlusta nánast
bara á róleg lög (oft gert grín að
því að ég hafi verið í mikilli ástar-
sorg í fyrra lífi).
Hvaða ráð myndir þú gefa 18 ára
þér sem veganesti inn í lífið? Settu
þér stór markmið og vertu trúr
sjálfum þér, þú getur allt sem þú
ætlar þér.
Hvað er velgengni fyrir þér? Að
vinna hörðum höndum að sínum
markmiðum alla daga og sjá
árangurinn skila sér í verki.
Hvenær byrjaðir þú að æfa hand-
bolta? Ég byrjaði fimm til sex ára
en annars var ég mætt á völlinn
með bolta í hönd áður en ég byrj-
aði að ganga.
Hvernig er tímabilið búið að vera?
Það hefur gengið upp og niður,
við höfum náð góðum sigrum og
tapað svo leikjum sem við eigum
að vinna. Við erum margar nýjar
í liðinu og erum við enn aðeins að
slípa okkur saman. Í næstu viku
spilum við svo leik í 8 liða úrslit-
um um sæti í final 4 í Þýskalandi
sem væri auðvitað algjör draumur.
Þú hefur komið víða við á ferl-
inum þrátt fyrir ungan aldur er
mikill munur á boltanum milli
landa? Já, svo sannarlega. Það eru
mismunandi áherslur, eins og í
Danmörku var leikurinn hraðari
en hér í Þýskalandi er allt aðeins
„þyngra“ og því ágætis áskorun
fyrir mig að koma inn hingað og
er maður enn aðeins að finna takt-
inn og átta sig á hvernig maður
nýtir sína styrkleika.
Hvernig er atvinnumennskan? Í
fyrsta lagi er maður auðvitað ótrú-
lega þakklátur að fá það tækifæri
að geta unnið við það sem maður
elskar og hefur dreymt um síðan
maður var smábarn. Atvinnu-
mennskan hefur sína glansmynd
en getur verið erfið inn á milli og
svona frekar einmanaleg.
Maður er ótrúlega mikið einn,
langt frá allri sinni fjölskyldu
og mikið af löngum ferðalögum
sérstaklega hér í Þýskalandi.
Ég og Daníel erum þó ótrúlega
heppin að hafa hvort annað. Það
er í raun ekki hægt að líkja þeirri
upplifun saman að vera einn í at-
vinnumennsku eða tvö saman. Við
erum dugleg að minna okkur á að
þetta séu algjör forréttindi að búa
í mismunandi löndum , læra ný
tungumál, kynnast nýju fólki og
standa á eigin fótum. Þetta er tími
sem við fáum aldrei til baka.
Er þetta eins og þú bjóst við? Já
ætli það ekki! Ég fékk smjörþef-
inn af þessu í Berlín í Þýskalandi
þegar ég var með atvinnumönnum
í liði og pabbi þjálfari hjá Berlín.
Eins frábært og þetta „líf“ er getur
þetta verið krefjandi og einmana-
legt inn á milli.
Hvernig lítur framhaldið út? Eins
og staðan er núna þá er ég með
þriggja ára samning í Metzingen.
Markmið liðsins er að komast í
úrslit í bikar eða enda í topp 4 til
þess að komast í evrópukeppnina.
Við erum í 6. sæti eins og staðan
er núna svo við þurfum aðeins að
klifra upp töfluna næstu mánuði.
Það eru svo spennandi tímar með
landsliðinu á næstunni svo maður
heldur bara áfram að æfa vel og
vera líkamlega og andlega tilbúin
í næstu verkefni.
Viltu segja lesendum frá því starfi
sem þið vinnið hjá PS. Árangri?
Ég og Perla Ruth Albertsdótt-
ir vinkona mín stofnuðum Ps.
Árangur fyrir einu og hálfu ári!
Ps. Árangur er fyrirtæki sem
sérhæfir sig í næringarþjálfun,
en hugmyndin um að stofna Ps.
Árangur varð nánast bara til á
einu kvöldi. Ég var í símanum við
pabba þegar hann spurði hvort
það væri ekki kominn tími á að
gera það að alvöru núna að fara
að vinna með næringu, þar sem
ég hafði mikið verið að hjálpa
ungum stelpum með sitt samband
við mat. Fyrsta manneskjan sem
ég hugsaði að væri svo sannar-
lega góð og tilvalin með mér í
þetta verkefni var Perla, en hún
var líka sjálf reglulega að gefa
fólki næringarráð. Síðan þá var
ekki aftur snúið! Markmiðið hjá
næringarþjálfun Ps. árangurs er
að hjálpa þér að læra hvernig þú
getur fengið það allra besta út úr
næringunni þinni. Við notumst
við hugmyndafræðina Macros
(macros = macronutrients) en
Macros snýst um það að finna
út nákvæmlega hversu mikið þú
þarft að innbyrða af næringu til
þess að líða sem best og ná þínum
markmiðum.
Það eru engin boð og bönn,
ekkert sem er ,,bannað“ að borða,
heldur borðar þú það sem þig
langar en skráir allt inn, og þú
lærir fljótlega hvað það er sem
hentar þínum líkama best og
verður þú því mun meðvitaðri um
hvað, hvenær og hversu mikið
þú vilt leyfa þér. Þetta á alls ekki
að vera átak eða „megrun“ sem
þú gerir 110% í 8 vikur, hættir
svo öllu og ert fljótlega komin/
kominn aftur á sama stað og þú
varst! Heldur á þetta að vera
lífstílsbreyting, smá eða mikil,
og á næringarþjálfunin að vera
þér fróðleikur og kennsla á nýjar
venjur í mataræði, hugarfari og
daglegu lífi, sem þú munt svo vilja
nýta þér áfram í framtíðinni.
Eitthvað að lokum? Endilega
vertu í sambandi við okkur inná
info@psarangur.is ef þú hefur
áhuga á að prófa næringarþjálfun
hjá okkur.
Sandra Erlingsdóttir
Handknattleikskona ársins 2022
E Y J A M A Ð U R I N N S A N D R A E R L I N G S D Ó T T I R