Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 23
19. janúar 2023 | | 23 Þegar ritstjórinn er kjaft- stopp getur verið gott að leita út fyrir rammann. Hér er grein séra Bjarna Karlsson- ar um þrettándagleði ÍBV síð- asta föstudag sem lenti inn í hringiðu fjölmiðla um síðustu Helgi. Tekið skal fram að þeir sem á einhvern hátt komu að tröllagerð að þessu sinni neituðu að tjá sig og stjórn ÍBV vísar á afsökunarbeiðni sem send var út. - ÓG. Eitt af mörgu góðu við Eyja- menn er sú einbeitta leikgleði sem ríkir í samfélagi þeirra. Á Heimaey tekur fólk gleðina föstum tökum og veit sem er að án leiks er ekkert líf. Frá alda öðli hefur mannskepn- an gert sér leik að tröllum og forynjum og sögur af óvættum gegna mikilvægu hlutverki hvarvetna á byggðu bóli. Það er hluti af traustu uppeldi að kynna nýja kynslóð fyrir slíku efni. Tröllið táknar það sem skelfir okkur innst og dýpst. Þess vegna á hvert byggðarlag sína trölla- dranga með æsilegum sögum af óvættum sem þvælst hafa úti og valdið usla. Setjum orð á ótta okkar segja þessar sagnir. Ef þú festir heimskort upp á vegg, kastaðir svo pílu í kortið þar til hún lenti einhversstaðar í mannabyggð, fengir þér síðan far með flugvél og varpaðir þér í fallhlíf niður á ákvörðunar- staðinn og spyrðir fyrsta tólf ára barn sem þú rækist á: Hvað verður um tröllið eða forynjuna sem fer út úr fylgsni sínu ein- hverra erinda en lendir í töfum uns sólin rís? Tröllið verður að steini, myndi barnið samstundis svara. Þegar Edda Falak er rigguð upp í gervitröllkonu og Heimir Hallgríms er orðinn að Araba- risa þá er vitaskuld verið að vinna með gömul þemu; taka það sem við óttumst, mála það upp og fífla það svo að það hætti að vera hættulegt en verði að steini. Sterkar konur og fram- andi menningarheimar eru og hafa alltaf verið kvíðavaldur og með því að tengja það þekktum persónum verður það sem maður óttast allt í senn nálægt, skilj- anlegt og hlægilegt svo manni léttir ögn. Ekkert fyndið En þótt eitthvað sé hlægilegt er ekki víst að það sé fyndið. Og þegar betur er að gáð sjáum við að það er ekkert fyndið að taka Eddu Falak, uppnefna hana Flak og gera hana að tröllkonu því það getur stutt við hug- myndina um ofbeldi sem aðferð í glímunni við óttann. Gott að á það var bent. Þótt sumt geti þótt hlægilegt er það ekki endilega fyndið. Þann greinarmun þurfum við að þekkja ef við viljum vera fallegt og öruggt samfélag. En hér megum við ekki staðn- æmast því vandinn verður ekki leystur með því að finna nýtt nafn á tröllið og kalla það ÍBV. Sagan af tröllinu sem verður að steini þegar sólin skín kennir okkur að þegar við felum hvorki skítinn og skömmina inni í helli sálarinnar né útvistum angist okkar yfir í önnur sálarlíf með tröllshætti heldur látum tilfinningar okkar óhrædd í ljósi þá verður allt í lagi. Þegar sólin skín á tröllið verður það bara að kunnuglegu kennileiti í umhverf- inu. Ekkert meira. Nú hefur sólin skinið á tröllið. Það þarf enginn að bera skömm sem kann að bera ábyrgð. Ég bjó árum saman á Heimaey einmitt þegar börnin mín voru ung. Þar kynntist ég raungóðu og heilsteyptu samfélagi sem ber virðingu fyrir fólki og náttúru. Tvö barnabarna minna voru einmitt á Hásteinsvelli núna síðast og þessi orð eru skrifuð undir áhrifum skýlausrar hrifn- ingar í þriggja og sex ára augum segjandi sögur af tröllum og forynjum. Skelfing megum við vera þakklát því dugandi fólki sem nennir að standa í þessu þrettánda-veseni ár eftir ár og lætur aldrei deigan síga þannig að við hin getum gengið að gleðinni vísri. --------------------------------------- Höfundur er prestur og þjónaði Vestmannaeyjum í nokkur ár ásamt konu sinni, Jónu Hrönn Bolladóttur. Séra Bjarni Karlsson: Tröll og forynjur Hvernig finnst þér liðið búið að standa sig fram að þessu? Við erum pínu spældir með þennan Ungverjaleik, þeir eru nýja grýlan okkar. Þau eru orðin nokkur sár töp á móti þeim. Það sem kemur fyrst upp í hugann er náttúrulega í London 2012, svo 2020 og núna. Í öllum leikjunum höfum við verið að leiða og þetta eru töp sem svíða. Úr því sem komið er og hvernig hópurinn er samansettur þá er þetta bara skemmtilegt prógram framundan, Grænhöfðaeyjar verða auðveld bráð. Svíþjóð er svo náttúrulega úrslitaleikurinn og það þarf að mæta í leik á móti Brasilíu með belti og axlabönd. Það eru allir möguleikar fyrir hendi. Eitthvað sem hefur komið þér á óvart gott eða slæmt? Nei svo sem ekki. Það var viðbúið að eitthvað gæti klikkað. Ég hef ekki áhyggjur. Hversu langt getur liðið náð á þessu móti og hvað þarf að gerast til þess? Það er engin spurning í mínum huga að þjóðin er að gera raun- hæfar kröfur á að við séum að fara að keyra hátt í þessu móti. Það eru miklir sigurvegarar í þessum hóp. Aron og Bjarki hafa verið á hæsta level-i í mörg ár og eru enn. Ómar og Gísli eru að gera brjálaða hluti. Sigvaldi og Janus eru að byggja upp stórveldi í Noregi. Viktor Gísli er að stimpla sig inn á móti stærstu liðum í heimi í meistaradeildinni og svo eru hinir flestir að gera fína hluti. Þetta er ógeðslega gott lið sem á að stefna hátt og það er asnalegt að tala eitthvað um einn leik í einu. Ég veit að þessir strákar eru sammála mér. Þeir eru sigurvegarar. Varðandi framhaldið þá sé ég ekk- ert lið á þessu móti sem einhvern ókleyfan múr fyrir Ísland þegar allt er í lagi. Það sem þarf að gerast þegar lið á að spila níu leiki á þremur vikum þá þarf að dreifa álaginu betur. Ef þú ætlar að fara alla leið þá þurfum við að hafa okkar bestu menn ferska þegar mest á reynir en ekki að vera eins og sprungin blaðra þegar kemur í leik númer sjö. Er eitthvað annað lið sem hefur heillað þig á þessu móti? Egyptarnir eru ógeðslega flottir, þeir halda vonandi bara svona áfram. Þeir eru að spila stórkalla- bolta og ég hef gaman að því. Þeir eru með stóran línumann sem heillar mig. Flotta útispilara og góðan markmann. Þetta er svona hybrit af sovíet-spánar bolta sem heillar mig. Annars verða þetta þessir góðkunningjar okkar þarna í toppnum, Danir, Spánverjar, Frakkar og hugsanlega Noregur. Það er líka bara gaman að sjá á þessu móti hvað handbolti er ógeðslega skemmtilegur og hvern- ig þjóðin hefur fylgt sér þétt á bakvið liðið okkar. Í hvaða sæti spáir þú að íslenska liðið lendi? 5. sæti. Kári Kristján Kristjánsson fyrrum landsliðsmaður og fyrirliði ÍBV: Þetta eru sigur- vegarar sem eiga að stefna hátt

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.