Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Side 23
19. janúar 2023 | | 23
Þegar ritstjórinn er kjaft-
stopp getur verið gott að
leita út fyrir rammann. Hér
er grein séra Bjarna Karlsson-
ar um þrettándagleði ÍBV síð-
asta föstudag sem lenti inn í
hringiðu fjölmiðla um síðustu
Helgi. Tekið skal fram að þeir
sem á einhvern hátt komu
að tröllagerð að þessu sinni
neituðu að tjá sig og stjórn
ÍBV vísar á afsökunarbeiðni
sem send var út. - ÓG.
Eitt af mörgu góðu við Eyja-
menn er sú einbeitta leikgleði
sem ríkir í samfélagi þeirra.
Á Heimaey tekur fólk gleðina
föstum tökum og veit sem er að
án leiks er ekkert líf.
Frá alda öðli hefur mannskepn-
an gert sér leik að tröllum og
forynjum og sögur af óvættum
gegna mikilvægu hlutverki
hvarvetna á byggðu bóli. Það er
hluti af traustu uppeldi að kynna
nýja kynslóð fyrir slíku efni.
Tröllið táknar það sem skelfir
okkur innst og dýpst. Þess vegna
á hvert byggðarlag sína trölla-
dranga með æsilegum sögum af
óvættum sem þvælst hafa úti og
valdið usla. Setjum orð á ótta
okkar segja þessar sagnir.
Ef þú festir heimskort upp á
vegg, kastaðir svo pílu í kortið
þar til hún lenti einhversstaðar
í mannabyggð, fengir þér síðan
far með flugvél og varpaðir þér
í fallhlíf niður á ákvörðunar-
staðinn og spyrðir fyrsta tólf
ára barn sem þú rækist á: Hvað
verður um tröllið eða forynjuna
sem fer út úr fylgsni sínu ein-
hverra erinda en lendir í töfum
uns sólin rís? Tröllið verður að
steini, myndi barnið samstundis
svara.
Þegar Edda Falak er rigguð
upp í gervitröllkonu og Heimir
Hallgríms er orðinn að Araba-
risa þá er vitaskuld verið að
vinna með gömul þemu; taka
það sem við óttumst, mála það
upp og fífla það svo að það hætti
að vera hættulegt en verði að
steini. Sterkar konur og fram-
andi menningarheimar eru og
hafa alltaf verið kvíðavaldur og
með því að tengja það þekktum
persónum verður það sem maður
óttast allt í senn nálægt, skilj-
anlegt og hlægilegt svo manni
léttir ögn.
Ekkert fyndið
En þótt eitthvað sé hlægilegt
er ekki víst að það sé fyndið.
Og þegar betur er að gáð sjáum
við að það er ekkert fyndið að
taka Eddu Falak, uppnefna hana
Flak og gera hana að tröllkonu
því það getur stutt við hug-
myndina um ofbeldi sem aðferð
í glímunni við óttann. Gott að á
það var bent. Þótt sumt geti þótt
hlægilegt er það ekki endilega
fyndið. Þann greinarmun þurfum
við að þekkja ef við viljum vera
fallegt og öruggt samfélag.
En hér megum við ekki staðn-
æmast því vandinn verður ekki
leystur með því að finna nýtt
nafn á tröllið og kalla það ÍBV.
Sagan af tröllinu sem verður að
steini þegar sólin skín kennir
okkur að þegar við felum hvorki
skítinn og skömmina inni í
helli sálarinnar né útvistum
angist okkar yfir í önnur sálarlíf
með tröllshætti heldur látum
tilfinningar okkar óhrædd í ljósi
þá verður allt í lagi. Þegar sólin
skín á tröllið verður það bara að
kunnuglegu kennileiti í umhverf-
inu. Ekkert meira.
Nú hefur sólin skinið á tröllið.
Það þarf enginn að bera skömm
sem kann að bera ábyrgð.
Ég bjó árum saman á Heimaey
einmitt þegar börnin mín voru
ung. Þar kynntist ég raungóðu
og heilsteyptu samfélagi sem ber
virðingu fyrir fólki og náttúru.
Tvö barnabarna minna voru
einmitt á Hásteinsvelli núna
síðast og þessi orð eru skrifuð
undir áhrifum skýlausrar hrifn-
ingar í þriggja og sex ára augum
segjandi sögur af tröllum og
forynjum. Skelfing megum við
vera þakklát því dugandi fólki
sem nennir að standa í þessu
þrettánda-veseni ár eftir ár og
lætur aldrei deigan síga þannig
að við hin getum gengið að
gleðinni vísri.
---------------------------------------
Höfundur er prestur og þjónaði
Vestmannaeyjum í nokkur ár
ásamt konu sinni, Jónu Hrönn
Bolladóttur.
Séra Bjarni Karlsson:
Tröll og forynjur
Hvernig finnst þér liðið búið að
standa sig fram að þessu?
Við erum pínu spældir með
þennan Ungverjaleik, þeir eru
nýja grýlan okkar. Þau eru orðin
nokkur sár töp á móti þeim. Það
sem kemur fyrst upp í hugann er
náttúrulega í London 2012, svo
2020 og núna. Í öllum leikjunum
höfum við verið að leiða og þetta
eru töp sem svíða.
Úr því sem komið er og hvernig
hópurinn er samansettur þá er
þetta bara skemmtilegt prógram
framundan, Grænhöfðaeyjar verða
auðveld bráð. Svíþjóð er svo
náttúrulega úrslitaleikurinn og það
þarf að mæta í leik á móti Brasilíu
með belti og axlabönd. Það eru
allir möguleikar fyrir hendi.
Eitthvað sem hefur komið þér á
óvart gott eða slæmt?
Nei svo sem ekki. Það var viðbúið
að eitthvað gæti klikkað. Ég hef
ekki áhyggjur.
Hversu langt getur liðið náð á
þessu móti og hvað þarf að gerast
til þess?
Það er engin spurning í mínum
huga að þjóðin er að gera raun-
hæfar kröfur á að við séum að fara
að keyra hátt í þessu móti. Það eru
miklir sigurvegarar í þessum hóp.
Aron og Bjarki hafa verið á hæsta
level-i í mörg ár og eru enn. Ómar
og Gísli eru að gera brjálaða
hluti. Sigvaldi og Janus eru að
byggja upp stórveldi í Noregi.
Viktor Gísli er að stimpla sig inn
á móti stærstu liðum í heimi í
meistaradeildinni og svo eru hinir
flestir að gera fína hluti. Þetta er
ógeðslega gott lið sem á að stefna
hátt og það er asnalegt að tala
eitthvað um einn leik í einu. Ég
veit að þessir strákar eru sammála
mér. Þeir eru sigurvegarar.
Varðandi framhaldið þá sé ég ekk-
ert lið á þessu móti sem einhvern
ókleyfan múr fyrir Ísland þegar
allt er í lagi. Það sem þarf að
gerast þegar lið á að spila níu leiki
á þremur vikum þá þarf að dreifa
álaginu betur. Ef þú ætlar að fara
alla leið þá þurfum við að hafa
okkar bestu menn ferska þegar
mest á reynir en ekki að vera eins
og sprungin blaðra þegar kemur í
leik númer sjö.
Er eitthvað annað lið sem hefur
heillað þig á þessu móti?
Egyptarnir eru ógeðslega flottir,
þeir halda vonandi bara svona
áfram. Þeir eru að spila stórkalla-
bolta og ég hef gaman að því. Þeir
eru með stóran línumann sem
heillar mig. Flotta útispilara og
góðan markmann. Þetta er svona
hybrit af sovíet-spánar bolta sem
heillar mig. Annars verða þetta
þessir góðkunningjar okkar þarna
í toppnum, Danir, Spánverjar,
Frakkar og hugsanlega Noregur.
Það er líka bara gaman að sjá
á þessu móti hvað handbolti er
ógeðslega skemmtilegur og hvern-
ig þjóðin hefur fylgt sér þétt á
bakvið liðið okkar.
Í hvaða sæti spáir þú að íslenska
liðið lendi?
5. sæti.
Kári Kristján Kristjánsson fyrrum
landsliðsmaður og fyrirliði ÍBV:
Þetta eru sigur-
vegarar sem eiga
að stefna hátt