Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Blaðsíða 20
20 | | 19. janúar 2023
Árið 1973, þriðjudaginn 23. jan-
úar kl. 10.00 var fundur haldinn
í bæjarstjórn Vestmannaeyja á
skrifstofu bæjarstjóra. Samkvæmt
fundargerð sátu fundinn þeir
Magnús H. Magnússon, bæjar-
stjóri, Sigurgeir Kristjánsson,
forseti bæjarstjórnar, Gunnar
Sigurmundsson, Jón Traustason,
Jóhann Friðfinnsson, Reynir Guð-
steinsson, Guðmundur Karlsson
og Guðlaugur Gíslason. Einnig
voru mættir á fundinn yfirlög-
regluþjónn, slökkviliðsstjóri,
rafveitustjóri og bæjartækni-
fræðingur.
Forseti kvað sér hljóðs og mælti
á þessa leið. „Góðir bæjarfull-
trúar, þessi bæjarstjórnarfundur
er haldinn á örlagastundu. Mikill
jarðeldur hefur brotist út á eyjunni
okkar og ógnar nú allri byggð
á Heimaey. Það mun vera með
eindæmum í Íslandssögunni að
flest allir íbúar heils bæjarfélags
yfirgefi heimili sín fyrirvaralaust
eins og gerðist hér í nótt.
Enginn nema Guð einn veit
Það er þakkarefni að náttúruham-
farirnar hafa ekki valdið mann-
tjóni eða slysum og einnig ber að
þakka hugarró Vestmanneyinga
gagnvart þessum válegu atburðum
og síðast en ekki síst gifturíka
framkvæmd við flutningana. Ég
leyfi mér að þakka öllum sem
hér hafa að unnið. Fyrir þessum
fundi liggur engin dagskrá en að
sjálfsögðu eru náttúruhamfarirnar
umræðuefnið.
Við reynum að bjarga því sem
bjargað verður, gera þær ráð-
stafanir sem í okkar valdi eru til
hjálpar og varnar þeim ósköpum
sem hér steðja að. Enginn nema
Guð einn veit, hvaða stefnu
eldgosið tekur en augljóst er að
byggðin og höfnin eru í hættu.
Við getum í því efni aðeins beðið
og vonað að okkur verði forðað
frá tortímingu og að fólkið fái
sem fyrst að koma heim til að lifa
og starfa. Það er okkar bæn.
Á fundinum færði bæjarstjórn
þakkir til allra sem komu að því
að flytja á brott Vestmanna-
eyinga. Koma þurfti skilaboðum
til skipstjórnarmanna um að þeir
yrðu sjálfir að meta hvort þeir eigi
að leita hafnar í Eyjum.
Einnig kemur fram að flytja þurfi
þá bæjarbúa sem ekki hafi verið
falin sérstök skyldustörf og voru
enn í Eyjum. Ákveðið var að fara
þess á leit við Almannavarnir að
varðskip, Herjólfur og fleiri skip
fari ekki frá Eyjum fyrst um sinn.
Einnig fór bæjarstjórn þess á leit
að lögreglan, slökkviliðið, sveit
Björgunarfélagsins og félaga
í Hjálparsveit skáta yrðu eftir
í bænum fyrst um sinn. Þá fól
bæjarstjórn bæjarstjóra að athuga
með flutning á búfé af eyjunni.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
„Ég fékk örlítið á tilfinninguna að
við værum stödd í Landakirkju,
því mörg andlitin sem voru í
kirkjunni, man ég eftir úr því
samhengi. Tónlistin var yndisleg,
ávarp Írisar bæjarstjóra áhrifaríkt
og ekki síður prédikun hr. Karls,
biskups,“ sagði séra Þorvaldur
Víðisson, prestur Bústaðakirkju
og fyrrum prestur í Landakirkju
um Eyjamessu sem haldin var í
kirkjunni síðasta sunnudag. Var
kirkjan þéttsetin. Þar var þess
minnst að þann 23. janúar eru
fimmtíu ár frá upphafi goss á
Heimaey 1973. Karl Sigurbjörns-
son var prestur í Vestmannaeyjum
þegar gosið hófst.
„Svo má kannski segja að
kirkjan sé gjarnan vettvangur
stórra viðburða í lífi einstaklinga
og samfélags. Við komum til
kirkju til að gleðjast en einnig
syrgja og vinna úr erfiðri reynslu.
Svona minningar- og þakkarstund
er liður í slíkri úrvinnslu, tel ég.
Guðrún Erlingsdóttir, sem er í
stjórn ÁTVR, minntist á aðstoð
Norðmanna, sem var gríðarlega
rík. Svo leiddi hún mjög áhrifa-
ríkt samtal í safnaðarheimilinu,
yfir kaffisamsætinu, þar sem hún
spurði systkinin Guðrúnu og
Guðlaug Sigurgeirsbörn sem voru
9 og 17 ára í gosinu spjörunum
úr varðandi flóttann frá Eyjum
og það sem við tók. Ég er mjög
þakklátur fyrir að fá að hafa tekið
þátt í þessu með þessu öfluga
fólki,“ sagði séra Þorvaldur.
Messan var haldin í samráði við
ÁTVR, Átthagafélag Vestmanna-
eyinga í Reykjavík. Heimaeyjar-
gosið er fyrsta eldgos sem hefst
í byggð á Íslandi og var þess og
giftusamlegrar björgunar á fólki
og stórum hluta af eignum og
endurreisn byggðarinnar minnst í
þakkargjörð.
Jónas Þórir organisti leiddi tón-
listina og sungu félagar úr Kam-
merkór Bústaðakirkju undir hans
stjórn. Aðrir sem komu fram voru
Helgi Hermannsson gítarleik-
ari og söngvari, Gísli Helgason
flautuleikari og Rósalind Gísla-
dóttir söngkona. ÁTVR, annaðist
veitingarnar í gosmessukaffi að
guðsþjónustu lokinni.
Gossins minnst í fjölmennri Eyjamessu í Bústaðarkirkju:
Áhrifarík athöfn og yndisleg tónlist
Karl í predikunarstól og séra Þorvaldur. Mynd: Ragnar Sigurjónsson.
Loftmynd af hafnarsvæðinu 1973. Mynd: Svavar Steingrímsson
Úr fundargerð bæjarstjórnar fyrir 50 árum:
Þakkarefni að ekki varð manntjón