Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 19.01.2023, Side 15
19. janúar 2023 | | 15 það virðist sem sprungan liggi þannig, að hún gæti ekki, sem bet- ur fer ekki haft heppilegri stefnu eða legu miðað við bæinn þannig að ekki er bráð hætta.“ Hraun rann í sjó „Það er samhangandi eldur á allri sprungunni. Það má greina milli 50 til 60 eldstróka sem ná í 40 til 50 metra þeir hæstu og mynda eiginlega samhangandi eldvegg. Hraunið leggur til suðausturs ofarlega og beint út austur af Helgafellinu, tvær stórar hraun- kvíslar sem renna þversum út í sjó ofan af hömrunum.“ Ekki bráð hætta Á öðrum stað segir Sigurður: „Ég held ekki að það sé bráð hætta og engin ástæða fyrir panik. Flugvöllurinn er enn þá opinn og bærinn er ekki enn þá í bráðri hættu jafnvel þó að hraun stefndi á bæinn. Rennslið ekki hraðara en það að ég tel enga lífshættu af gosinu eins og er.“ Alda Björnsdóttir // Var á leiðinni út þegar fréttamaður hringdi: Bullandi rigning reyndist vera öskuregn Það var klukkan að verða hálf fimm, að Jón Ásgeirsson talaði fyrst við Öldu Björnsdóttur og síðan Einar Val lækni Bjarnason a sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Alda var þá stödd á heimili sínu í Vestmannaeyjum, Túngötu 22 og var hún á leið út þegar Jón hr- ingdi. „Við vorum komin í kápur og vorum að fara niður á bryggju, eftir ráðleggingum úr útvarpinu. Það logar voðalega mikið núna, allt í einu, þegar þú hringdir. Þetta er ansi mikið og stórkostlegt og ískyggilega nálægt okkur: Eyjan er svo lítil. Biður bara Guð að hjálpa sér Þarna eru allir á leið í bátana eða farnir. „Við ætluðum að vera róleg þangað til kæmi tilkynning úr út- varpinu. Við höfðum samband við lögreglu og okkur ráðlagt að vera róleg. Núna var að koma tilkynn- ing í útvarpinu svo að við ætlum að fara. Við erum með fjögur börn og ætlum að drífa okkur nið- ur á bryggju, það er ekkert annað að gera. Maður biður bara Guð að hjálpa sér. Ég vaknaði klukkan tvö, eða tæpt tvö við brunalúður og heyrði svo í bílum og hélt að það væri að kvikna í hér nálægt. Fór fram að kíkja út um alla glugga og spekúlera. Þá sáum við mikinn eld hérna fyrir austan. Ég hélt að það væri í næstu húsum rétt fyrir austan. Ég var víst of syfjuð til þess að gera mér grein fyrir að þetta gæti verið eldgos. Mér datt það bara ekki í hug. Svo vakti ég manninn minn (Hilmir Högna- son) og hann sá strax að það myndi vera eldgos. Svo labbaði hann austur um og lýsti þessu fyrir okkur. Við vorum rólegri þegar við heyrðum að þetta væri alveg austur við vita. Og það var sprunga, sem lá suður með, suður á Haugana.“ Alda sagði veður gott. „Það bjargar miklu. Nú virðist bylja á þakinu. Ég veit ekki Kíktu út… Það er allt í einu komin bullandi rigning á þakinu,“ sagði Alda en rigningin reyndist vera öskuregn. „Það er aska núna. Það bylur á þakinu núna þegar ég er að tala við þig. Við búum mjög ofarlega í bænum, upp undir Gerðisbæjun- um, mjög nálægt Helgafelli sem sagt.“ Einar Valur yfirlæknir: Stóð vaktina á Sjúkrahúsinu Einar Valur lýsti stöðu mála og undirbúningi við að koma sjúklingum og eldra fólki í flug. „Þetta verða 30 til 34 sjúklingar og svo hefur komið hingað eitthvað af öldruðu fólki,“ segir Einar Valur. Var von á tveimur þyrlum frá varnarliðinu sem gátu tekið sex liggjandi og 15 sitjandi og standandi. En flest var fólkið rúmliggjandi. „Flutningarnir eiga alveg að geta gengið. Það á ekkert að verða því til fyrirstöðu,“ segir Einar Valur og er spurður hvort þau verði vör við gosið. „Já, það er byrjað allmikið öskufall núna, hávaði og læti. Ekkert grjót, þetta er nú bara vikurgjall.“ Óskar í Höfðanum Hægviðri þegar gosið hófst Næst var rætt við Óskar Sig- urðsson, þá vitavörð í Stórhöfða þaðan sem sást í syðsta hluta gossprungunnar. „Gosið er eig- inlega látlaust, það hleðst upp og trónar í kringum gígana. Þeir hafa mótast dálítið. Vindur er heldur að aukast, suðaustanátt, sex vindstig. Í nótt var hægviðri, um eitt vindstig. Vindur liggur yfir bæinn núna. Ég sé suðurendann á sprungunni, fjóra til fimm gíga og mér sýnist mikill eldur í þeim. Svipað og var í nótt,“ sagði Óskar og var að bæta í vind. Gengið furðuvel Árni Gunnarsson fréttamaður Ríkisútvarpsins var kominn til Eyja og um klukkan níu um morguninn 23. tók hann viðtal við lögregluþjón austur á Urðum, stutt frá norðurenda gossprungunnar. „Sprungan hefur lengst ansi mikið frá upphafi. Það var bara einn gígur en síðan hafa bæst við bæði til norðurs og suðurs. Við sáum gosið klukkan fimm mínútur fyrir tvö og hafði kona hringt til okkar skömmu áður og sagst hafa fundið jarðskjálftakipp. Við vorum að hringja suður til Reykjavíkur í Veðurstofuna og athuga, hvort hann hefði komið fram á mælum þar, þegar við sáum eldinn. Við kölluðum út slökkviliðið, bæði með því að setja brunalúðra í gang og í gegn- um síma. Þá fór fólk að hringja í okkur. Við sögðum því fyrst að sýna stillingu og fá sér kaffisopa.“ Fréttamaður: Mér skilst, að allir hafi verið mjög rólegir og tekið þessu með ró og spekt. „Fólk tók þessu mjög vel. Núna gætu verið milli 700 og 800 manns eftir. Já, og þetta hefur gengið furðuvel. Margir neita algjörlega að fara, ætla að fara með síðustu ferð,“ sagði lögregluþjónninn og aðspurður sagði hann engan hafa farist en hestur hefði farið í einn gíginn snemma um morguninn. Þá var rætt við mann austur á Urðum sem var ekki að flýta sér í burtu. „Nei, nei, mér liggur ekkert á, ég er alveg rólegur. Ég fór upp að Kirkjubæjum áðan. Þetta er stórfenglegt, það er ekki hægt að segja annað. Því verður ekki lýst með neinum orðum.“ Fyrstu bátarnir koma til Eyja Einar Karl Haraldsson var í Þorlákshöfn þegar fyrstu bátarnir komu frá Eyjum klukkan sjö um morguninn. Á bryggjunni biðu langferðabifreiðar í röðum, líklega 40 talsins og mátti þar sjá strætis- vagna Reykvíkinga og bifreiðir sérleyfishafa víða að á Suður- og Suðvesturlandi. Hjálparsveitir skáta og aðrir aðilar aðstoðuðu við að koma fólkinu í land og í langferðarbifreiðar, sem flytja það áfram til Reykjavíkur. Klukkan 20 mínútur yfir sjö var fyrsti báturinn frá Vestmannaeyj- um að renna í höfn í Þorlákshöfn og það er Arnar RE 1. „Við sjáum fullt af fólki uppi á dekki, og hér úti á höfninni í Þorlákshöfn getum við séð fjölda ljósa og bendir það til að það séu margir bátar á leiðinni allir í röð,“ segir Einar Karl. Einar Karl ræddi við Erling Pétursson, skipstjóra á Surtsey VE sem sagði 50 til 60 báta vera í flutningum frá Eyjum. Erlingur sagði að siglingin hefði gengið vel og sjólag sæmilegt. Erlingur var spurður hvort þeir færu aftur að sækja fleira fólk. „Já, ef það er ekki allt farið. Það voru um 100 með og aðbúnaður ágætur. Fólk í kojum og á gólf- um,“ segir Erlingur. „Hér um borð í bátunum er mikið af kvenfólki, eldra fólki, börnum og jafnvel ungabörnum. Hér sé ég að verið er að bera í land um hálfs árs gamla stúlku,“ segir Einar Karl. Texta er í sumum tilvikum hnikað til en engu breytt. Ómar GarðarssonAlda Björnsdóttir og Hilmir Högnason á góðri stundu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.