Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Side 7
2. mars 2023 | | 7
ALLA LEIÐ
Veður hafði áhrif
á kirkjusókn um jólin
Guðmundur Örn sagði að öllu
jöfnu væri kirkjusókn mest um
jólin en veður og færð hafi sett
strik í reikninginn í vetur. „Á
jóladag komu einungis 49 manns
sem samanstóð að mestu af félög-
um úr Lúðrasveit Vestmannaeyja
og Kór Landakirkju. Þann dag
höfðu bæjarbúar verið hvattir til
að halda sig heima. Þeir sem létu
sig hafa það og ösluðu snjóinn til
kirkju urðu ekki fyrir vonbrigð-
um. Í venjulegu árferði hefðum
við verið að sjá milli 130 til 180
manns.
Fjölmennustu messur síðasta árs
voru Sjómannamessa 100 manns,
Goslokamessa 147 manns og
Allraheilagramessa 106 manns.
Auðvitað voru fermingarguðs-
þjónustur vel sóttar og eins er oft
fjölmenni við brúðkaup og jarða-
farir en tölu í þessum athöfnum
eru ekki teknar inní aðsóknartölur
í ársskýrslunni.“
Óvenju mörg fermingarbörn
Árið 2022 skírðu prestar Landa-
kirkju 51 barn og 64 börn voru
fermd, sem er óvenju mikið
miðað við undanfarin ár þar sem
fermingarbörn hafa verið frá 38 til
55. „Árið 2007 fermdi ég í fyrsta
skipti í Landakirkju og það ár
fermdi ég 81 barn en síðan hefur
þeim fækkað jafnt og þétt þar til
á síðasta ár. Brúðkaup í Landa-
kirkju voru tólf sem er svolítið
undir meðaltali, en þó einu fleira
en árið á undan. Útfarir voru 35
frá Landakirkju.“
Ýmislegt er það sem stendur
uppúr í starfi Landakirkju frá
liðnu ári, en einna hæst ber líklega
vísitasía biskups að mati Guð-
mundar Arnar. Þetta er fyrsta vísi-
tasía biskups til Vestmannaeyja í
um 30 ár. Slíkar vísitasíur eiga
að vera á tíu ára fresti, samkvæmt
starfsreglum biskups.
Auk hins hefðbundna starfs tóku
prestar og æskulýðsfulltrúi á móti
488 krökkum úr leik- og grunn-
skóla á aðventunni, sjötti bekkur
sýndi helgileikinn og var kirkjan
troðfull.
„Rétt er að geta þess að for-
eldramorgnar í Landakirkju hafa
verið mjög vel sóttir, en það var
hún Sunna Kristrún Gunnlaugs-
dóttir sem hafði umsjón með
þeim fram á vor 2022. Þá tók
Heba Dögg Jónsdóttir við og
kvenfélagskonur hafa svo séð um
bakkelsið,“ sagði Guðmundur Örn
að lokum.
Reksturinn í járnum
Tekjur Landakirkju voru 40,9
milljónir og gjöld voru 41,7 millj-
ónir og var tap ársins 616 þúsund
krónur. Fyrir utan afskriftir
fastafjármuna var örlítill hagn-
aður á rekstri ársins. Fyrir utan
hefðbundinn rekstur var ráðist í
nokkur nauðsynleg viðhaldsver-
kefni á Safnaðarheimilinu sem
urðu þess valdandi að reksturinn
endaði í mínus.
Tekjur Kirkjugarðs Vestmanna-
eyja voru 23,9 milljónir og gjöld
voru 20,2 milljónir. Hagnaður var
af reglulegri starfsemi að fjárhæð
6 milljónir en 13,5 milljónir
voru greiddar vegna stækkunar
garðsins á árinu og var því endan-
leg niðurstaða 7,5 milljón króna
tap af rekstri garðsins á árinu.
Hluti fundarmanna á aðalfundi sem haldinn var í Safnaðarheimilinu.