Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Page 9
2. mars 2023 | | 9 dropa sem við tökum inn af vatni hundrað sinnum. Til þess þarf öflugan hreinsibúnað og fræðilega getum við nýtt vatnið enn betur. Auk þess erum við búnir að gera samning um kaup á svokölluðum RO síum þar sem sjó er þrýst í gegnum og út kemur ferskt vatn. Búnaðurinn getur afkastað sex lítrum á sekúndu. Rofni vatns- leiðslan frá landi getur fólk skroppið í sturtu hjá okkur. Þannig að við erum með bæði belti og axlabönd í vatnsmálum enda má ekkert út af bera.“ Eitt hundrað manna vinnustaður Hallgrímur telur að um 100 manns vinni við stöðvarnar þegar þær verða komnar í fullan gang. „Við gerum ráð fyrir að tíu manns hafi umsjón með seiða- eldisstöðinni og um 50 vinni við stöðina í Viðlagafjöru. Auk þeirra verða stjórnendur og starfsfólk í sláturhúsi við vinnslu og pökkun. Ef við horfum tíu ár fram í tímann gætum við verið að tala um 100 manns. Auk þess bætast við afleidd störf þannig að starfsemi ILFS er góð innspýting í bæjarfé- lagið,“ sagði Hallgrímur. Það er margt sem þarf að hafa í huga í eldi og þar er hreinlæti og sjúkdómavarnir efst á blaði og er ekkert til sparað. Í seiða- eldsstöðinni fara hrogn og seiði milli kerfa. Í flutningum þarf að huga að aðlögun á báðum endum og sama gildir í eldisstöðinni sem er endastöðin. „Hreinlæti er mikið forgangsmál og er nýjasta tækni nýtt til að ná sem bestum árarangri. Það kallar á fólk með tækni- og líffræðiþekkingu. Bæði til að sinna fiskinum og lífssíun- um sem eru lykilatriði í endurnýt- ingu vatns,“ segir Hallgrímur. Seiðaeldisstöðin er 6000 fermetrar að grunnfleti, tvær heilar hæðir og sú þriðja hálf fyrir miðju húsinu. Þar er seiðaeldið með sínum flókna búnaði og skrifstofur. Starfsfólk með fjölbreytta menntun „Í fyrirtækjum í þessari grein er fólk með fjölbreytta menntun. Sumir sérhæfa sig í vatnsgæðum, líffræðingar fylgjast með öllu hvað varðar fiskinn, lífssíurnar og vatnið. Þetta verður blanda af fólki með tækni-, fiskeldis- og háskólamenntun. Fiskeldisfræðin er blanda af líffræði, efnafræði og námi í rekstri. Til að allt gangi upp þarf fólk með alhliða kunnáttu og áhuga á starfinu.“ Í janúar voru boraðar holur í Viðlagafjöru til að kanna hversu mikið af sjó er hægt að vinna á sjálfbæran hátt úr jörðu og til að meta gæði og hitastig. Hallgrímur segir að fyrstu niðurstöður lofi góðu. Sjórinn er rétt um ellefu gráður, er á 95 metra dýpi og henti mjög vel til eldis. Gert er ráð fyrir 20 til 30 holum. Fyrsta einingin klár haustið 2024 Í Viðlagafjöru verða átta tankar í fjórum eldiseiningum og sex tankar til að taka á móti seiðum og sem sláturtankar. „Fyrsti áfangi er átta tanka eining sem verður klár haustið 2024 gangi allt eftir. Næstu skref eru ein eining á ári en á lóðinni sem við höfum í dag er gert ráð fyrir fjórum eldiseining- um, alls 32 tönkum. Það er bratt en metnaður okkar er að ljúka þessu á fjórum árum. Á lóðinni sunnar í fjörunni gætum við bætt við tveimur kerfum en þá er hugs- að til lengri tíma.“ Hrognin sem tekin verða inn í haust verða tilbúin til áframeld- is sumarið 2024. „Næsta vetur ætlum við að vera tilbúnir með fyrstu eininguna, hús fyrir súrefn- isframleiðslu, fóðurgeymslu og hús fyrir slátrun og vinnslu. Þetta þarf allt að vera tilbúið á sama tíma þannig að fyrsti áfanginn er langstærstur.“ Tugir milljarða Hallgrímur reiknar með að um 100 manns vinni við upp- bygginguna í Viðlagafjöru og 25 til 30 við seiðaeldishúsið. „Ég held að þetta sé langstærsta einstaka framkvæmd í sögu bæjarins. Varlega áætlað má gera ráð fyrir 5000 tonnum af laxi á ári úr hverju kerfi og verðmætin eru ótrúleg. Í dag er verð á slægðum laxi í kringum 1400 krónur á meðan kílóið á þorski er í kring- um 600 kall.“ Aðspurður um kostnað og fjármögnun sagði Hallgrímur að stefnt sé á að auka hlutafé á næstu mánuðum. „Það þarf að fá nýja fjárfesta inn og við höfum alltaf haft það markmið að bjóða Vestmannaeyingum að vera með okkur. Þeir eru okkar fyrsti kostur. Hver kostnaðurinn verður liggur ekki endanlega fyrir en við erum að tala um tugi milljarða.“ Varaafl til staðar á báðum stöðum Mikil umræða er um stöðu orkuflutnings til Eyja eftir að rafstrengurinn frá landi til Eyja bilaði í vetur. Hallgrímur segir þá meðvitaða um stöðuna en varaafl verður til staðar á báðum stöðum. „Þó miðast orkumál stöðvarinnar við að forgangsorka verði keypt. Fyrir okkur eru umfangsmiklar umbætur á kerfi Landsnets til Vestmannaeyja í Lækjartúni, á Rimakotslínu og vonandi tveim nýjum sæstrengjum mjög góðar og mikilvægar fréttir. Þannig verður fyrirtækið alltaf fært um að koma í veg fyrir tjón þegar bilanir verða. Í vor verður byrjað að leggja tvo jarðstrengi frá háspennustöð Landsnets og HS Veitna hér í Eyjum út í Við- lagafjöru þannig að við verðum með hringtengingu hér innanbæjar frá fyrsta degi,“ sagði Hallgrímur að lokum. „Það er frábært fyrir sveitarfé- lag eins og Vestmannaeyjar að fá þetta inn í flóruna hjá okkur. Eitthvað sem við erum góð í er allt sem snýr að fiski. Af þeirri stærðargráðu sem við fyrir einhverjum árum hefðum ekki látið okkur detta í hug að væri hægt að framkvæma hér í Eyj- um,“ sagði Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri þegar hún ávarpaði gesti í Viðlagafjöru. Hugmynd verður að veruleika „Þetta verkefni hefur verið í vinnslu í yfir þrjú ár og varð til þegar Daði og Hallgrím- ur hvor í sínu lagi gældu við hugmynd um að þróa laxeldi hér í Vestmannaeyjum. Þeir náðu saman og verkefnið tók flugið. Ekki síst með stuðningi frá sveitarfélaginu, starfsmönn- um Vestmannaeyjabæjar og nú er hugmyndin að verða að veruleika. Við erum komin með flest þau leyfi sem þarf til að hefja framkvæmdir og fram- leiðslu á fiski til framtíðar,“ sagði Lárus Ásgeirsson, stjórn- arformaður (ILFS) þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Lárus sagði það tákrænt að eftir að hafa sótt fisk í sjó um aldir væri nú verið að taka sjóinn og framleiða matvæli á landi. Eftirspurnin er fyrir hendi og sjóinn fá þeir úr borholum í fjörunni. „Starfsemin verður græn þar sem allar afurðir verða nýttar og líka allur úrgangur,“ sagði Lárus að endingu. „Ég vil tileinka þessa stund minningu Matthíasar Sveins- sonar, vélstjóra og frænda míns en við störfuðum saman í 50 til 60 ár á sjó og í landi og öllu fólkinu sem hefur starfað með mér í gegnum tíðina,“ sagði Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður þegar hann tók fyrstu skóflustunguna „Nú erum við á svæði sem var ekki til fyrir 50 árum. Hver hefði trúað því að nú værum við að fara í fiskeldi á þessum sama stað. Ég vil þakka Daða Páls, Hallgrími og Lárusi fyrir þeirra framtak og ekki síður Írisi Róbertsdóttur og bæjarstjórn- inni fyrir að standa með okkur,“ sagði Sigurjón. Sigurjón og fjölskylda standa að baki verkefninu og um leið og nýr kafli hefst í atvinnusögu Vestmannaeyja lýkur öðrum. Sigurjón og hans fólk hefur selt Vinnslustöðinni útgerðina Ós sem gerir út togarann Þórunni Sveinsdóttur VE og fiskvinnsl- una Leo Seafood. Útgerðarsaga fjölskyldunnar hófst þegar Óskar Matthíasson keypti Nönnu VE 1946, síðar Leó VE 400 og Þórunni Sveins- dóttur VE 401 og er núverandi Þórunn sú þriðja í röðinni. Hafa þeir feðgar sem sóttu sjóinn, Óskar, Matthías, Sigurjón, Kristján og Leó og allir verið bæði farsælir skipstjórar og aflamenn. Á landi sem ekki var til fyrir 50 árum Íris bæjarstjóri Berið hag okkar fyrir brjósti Sigurjón tekur fyrstu skóflustunguna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.