Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Page 12
12 | | 2. mars 2023
Þekkingarsetur Vestmannaeyja
(ÞSV) hefur vaxið og dafnað
frá stofnun þess árið 2008. Tók
mikinn kipp upp á við eftir að
það flutti í Fiskiðjuna árið 2019
þar sem Setrið hefur aðra og
þriðju hæðina til afnota. Þar er
fjöldi stofnana og fyrirtækja með
fjölbreytta starfsemi. Aðstaðan er
til fyrirmyndar og í Setrinu hefur
orðið til skemmtilegt og fjölskrúð-
ugt samfélag fólks með allskonar
þekkingu og frá öllum heimshorn-
um. Undir merkjum Þekkingarset-
ursins er líka unnið að nokkrum
spennandi verkefnum og eitt
þeirra er vísindarannsóknir og
veiðar á rauðátu við Vestmanna-
eyjar. Hugmyndin að því kviknaði
þegar Hörður Baldvinsson,
framkvæmdastjóri ÞSV var að
velta því fyrir sér hvernig stæði á
því að lundar sem væru á safninu
hjá Sea Life væru með gráa fætur
og litlítinn gogg. Eftir athuganir
þótti líklegt að ástæðan væri sú
að fæða þeirra væri of einhæf og í
hana vantaði krabbadýr sem væru
litarefnarík. Fæða lundans er eins
og allir vita síli sem aftur lifir á
rauðátu sem lundinn sækir einnig
í og gefur goggnum og fótum lit.
Er þetta rétt.
Til að bæta úr þessum skorti
á litarefnum var ákveðið að
ná í smávegis af rauðátu til að
lundarnir á safninu fengju sína
fyrri reisn og litu ekki út eins og
ofvaxnar lundapysjur.
„Fiskiðjan (byggð 1950) var eitt
af stóru fiskvinnslustöðvunum
fjórum sem var í Vestmannaeyj-
um fyrir gos mikil bygging þar
sem gífurleg starfsemi fór fram.
Tímarnir liðu og tæknin jókst og
vinnslan breyttist. Fiskvinnslan
varð tæknivæddari sem þýddi
færri hendur við vinnsluna og
húsnæðið óhentugt. Fiskvinnslu
var því hætt en áfram var líf í
húsinu,“ sagði Hörður.
„Meðal annars æfðu hér hljóm-
sveitir og það starf var mjög
blómlegt en óhjákvæmilega
grotnaði húsið niður. Það endaði
með að bærinn keypti húsið á
hagstæðu verði. Það var mjög
illa farið og orðinn lýti á bænum.
Þar var framsækið fólk sem sá
tækifæri í að nýta húsið. Finna því
hlutverk þar sem aðsetur Setursins
er og nú er það bæjarprýði,“ sagði
Hörður, framkvæmdastjóri Þekk-
ingarsetursins.
Á besta stað í bænum
Sea Life Trust er með neðstu hæð-
ina sem er heimili mjaldranna,
Litlu hvítar og Litlu gráar og
Fiskasafns Vestmannaeyja. Á
annarri hæðinni er fjölbreytt
starfsemi og Fab Lab smiðjan er
fyrirferðamikil á þeirri þriðju.
„Fiskiðjan er á besta stað í
Vestmannaeyjum og hentar fyrir
allskonar starfsemi eins og sjá má
í dag. Til dæmis er hér innandyra
ein stærsta sundlaug Evrópu sem
er heimili mjaldranna.
Fiskiðjan var byggð á þeim tíma
þegar notast var við Sjóveituna
sem varð til árið 1930. Mikil
framkvæmd og stór á sínum
tíma og breytti miklu. Fram að
því var stóra vandamálið að ekki
var hægt að þvo fiskinn eins og
vera ber. Sjá má hálfan sjóveitu-
tankinn undir hrauninu ofan við
Skansinn. Borað var eftir sjó víða
við höfnina og holan sem nýttist
bæði Ísfélagi og Fiskiðju er undir
Vigtarbakaríinu og í dag sér hún
sundlauginni fyrir sjó. Önnur sem
hægt er að grípa til er við norð-
austur hornið á Miðstöðinni.“
Framsýni og aftur framsýni
Hörður segir það framsýna menn
sem lögðu grunninn að Sjóveit-
unni. „Það þurfti líka framsýni
þegar Fiskiðjunni var fundið nýtt
hlutverk og við erum svo heppin
að enn er framsýnt fólk við stjórn-
völinn í Vestmannaeyjum. Hreinn
sjórinn úr borholunum býður líka
upp á umfangsmiklar rannsóknir
á sjávarlífverum hér í húsinu.
Aðstaðan er til staðar og nú lýsi
ég eftir verkefnum.“
Hörður, vann sem ungur maður í
Fiskiðjunni og rifjar upp hvernig
hlutunum var fyrirkomið þar á
árum áður. „Á neðstu hæðinni, þar
sem Sea Life er nú var móttaka
fyrir fisk, á annarri hæðinni voru
tugir kvenna að hreinsa fisk og
snyrta og á þeirri þriðju þar sem
Fab Lab smiðjan er var flökunar-
salurinn. Ekki má gleyma snyrti-
legum og ilmandi beinakössunum
fyrirtækjanna sem voru í sundinu
á móti Miðstöðinni.
Á þessum tíma var talað um
Fiskiðjuna sem eitt glæsileg-
asta og tæknivæddasta frystihús
landsins. Í dag er komið í sama
hús eitt fullkomnasta og langbesta
þekkingarsetur landsins. Byggt á
svita og tárum eldri kynslóða. Já,
við byggjum á sterkum grunni.
Engli, sem við þekktum sem
Engla í Fiskiðjunni sem kvaddi
fyrir nokkrum árum sést hér
iðulega á göngunum í sama bláa í
sloppnum.“
ÞSV hýsir 20 fyrirtæki og
stofnanir „Mörg þeirra eru með
hverskyns rekstur. Við eigum
þrjá báta sem nýtast við allskonar
rannsóknir á sjó hér við eyjarnar.
Hér er Pysjueftirlitið sem vakið
hefur heimsathygli og Erpur og
hans fólk stýra líka rannsóknum
á sjósvölunum í Elliðaey sem eru
einstakar á heimsvísu.“
Rauðátuverkefnið
Stóra verkefnið hjá Herði er
svo rauðátan sem hann byrjaði
að vinna að á síðasta ári ásamt
færustu vísindamönnum lands-
ins á þessu sviði. Við reyndum
aðeins fyrir okkur í fyrra með
afar jákvæðum árangri. Afurðir úr
rauðátu eru auðseljanlegar bæði
sem fóður fyrir laxa og einnig
er lyfjaiðnaðurinn spenntur fyrir
afurðum átunnar í lyf eins og við
sykursýki og offitu svo einhver
dæmi séu nefnd. Við erum í
samstarfi við marga aðila eins og
Ísfélagið og Vinnslustöðina hér í
Eyjum, Háskóla Íslands og norskt
fyrirtæki, Calanus AS í Tromsö,
sem hafa stundað rannsóknir
og veiðar á rauðátu síðan 1959.
Norðmennirnir heimsóttu okkur
í fyrra og nú erum við á leið til
þeirra í byrjun næsta mánaðar. Við
höfum fengið útgerðarfélag Bylgj-
unnar VE til liðs við okkur til
tilraunaveiða í sumar og í landi er
öll aðstaða til að vinna rauðátuna.
Við fengum 5000 tonna kvóta en
rauðátan er hér í milljónum tonna
allt í kring á sumrin þannig að það
er stutt á miðin. Gangi allt upp
verður vonandi til enn ein stoðin
undir blómlegt atvinnulíf í Vest-
mannaeyjum í framtíðinni“.
Hörður nefndi líka verkefni sem
er verið að vinna í sem líta mjög
vel út. Þau verði Eyjamönnum til
heilla og segir hann framtíðina
bjarta.
Þekkingarsetrið Byggir á traustum grunni kynslóðanna:
Fjölskrúðugt samfélag fólks frá
öllum heimshornum
Byggt á svita og tárum eldri kynslóða Athyglisverð verkefni
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is
Þétt setin kaffistofan í Þekkingarsetrinu.