Fréttir - Eyjafréttir - 02.03.2023, Síða 14
14 | | 2. mars 2023
Staðan í raforkumálum okkar
Eyjamanna hefur lítið breyst
síðustu vikur og senn nálgast
hápunktur loðnuvertíðarinnar
þegar hrognavinnsla fer á
fullan skrið með tilheyrandi
orkuþörf. Eins og staðan er í
dag þá er rafmagn að berast
til Eyja um sæstrengina VM1
og VM23 sem er bráðabirgða-
tenging frá landi. Það sem
upp á vantar er síðan framleitt
með olíu en stundum uppfylla
strengirnir alveg orkuþörfina.
Í dag eru fimm færanlegar raf-
stöðvar í Vestmannaeyjum auk
þess sem HS Veitur geta keyrt
sitt varaafl. Það er því ljóst að
þó svo að truflanir fyrir Eyja-
menn af þessum völdum hafi
verið í lágmarki þá má lítið út
af bregða til þess að staðan
versni til muna. Það hefur
verið gestkvæmt í Vestmanna-
eyjum síðustu daga vegna
þessara mála og við ræddum
við nokkra aðila sem standa í
ströngu þessa dagana.
Starfshópur skipaður um
rafmagnsmál
Guðlaugur Þór Þórðarson,
umhverfis-, orku- og loftslagsráð-
herra, var á ferð í Vestmannaeyj-
um í liðinni viku til þess að funda
með bæjaryfirvöldum og hags-
munaaðilum um þá stöðu sem
komin er upp í afhendingarmálum
á rafmagni til Vestmannaeyja.
Hann sagði í samtali við Eyjafrétt-
ir þessa fundi hafa verið gagnlega
og hann gerði sér fulla grein
fyrir alvarleika málsins. „Það var
greinilegt á heimamönnum að
það er þungt í þeim hljóðið eins
og eðlilegt er enda aðstæðurnar
alvarlegar. Það var þó ánægjulegt
að finna að það er fullur vilji hjá
Eyjamönnum um að leggja sitt af
mörkum við að finna varanlega
lausn á þessum vandamálum með
yfirveguðum hætti.“
Guðlaugur Þór hefur skipað
starfshóp sem er falið að skoða og
leggja fram tillögur í rafmagns-
málum til skemmri og lengri tíma.
Árni Sigfússon mun leiða starf
hópsins en auk hans taka sæti
í hópnum Íris Róbertsdóttir og
Gísli Stefánsson. „Það er mikil-
vægt að fá heimamenn að borðinu
og greinilegt að bæjarstjórnin er
vel að sér í þessum málum. Við
höfum stofnað viðlíka hópa víða
um land um málefni ákveðinna
svæða með góðum árangri,“ sagði
Guðlaugur Þór. Gert er ráð fyrir
að hópurinn hefji störf sem fyrst.
Gott samstarf við bæjarstjórn
og almannavarnir
Guðmundur Ingi Ásmundsson
forstjóri Landsnets var einnig á
ferðinni í Eyjum þennan sama
dag og tók meðal annars þátt í
íbúafundi í Eldheimum þar sem
rafmagnsmál voru meðal annars
til umræðu. „Það var mjög gott
að fá tækifæri til að hitta íbúa og
ráðamenn í Vestmannaeyjum og
fara með þeim yfir stöðuna. Við
áttum gott samtal, fengum góðar
ábendingar og spurningar sem
okkur var ljúft og skylt að svara.
Við fórum yfir þær aðgerðir sem
við höfum ráðist í til að tryggja
aðgengi og öryggi á raforku
í Vestmannaeyjum meðan á
viðgerð á Vestmannaeyjastreng
3 stendur. Við höfum fjölgað
varastöðvum í Eyjum og gert
bráðabirgða streng úr tveimur
biluðum til að auka orkuflutning
til Eyja. Í góðri samvinnu við HS
Veitur höfum við bætt ferlið við
rekstur kerfisins. Við fórum einnig
yfir þær framkvæmdir sem við
höfum þegar ráðist í til að styrkja
tengingu Vestmannaeyja betur
við meginkerfið ásamt áætlunum
okkar um lagningu á nýjum streng
til Eyja, Vestmannaeyjastreng 4.
Við höfum átt mjög gott samstarf
við bæjarstjórn og Almannavarnir
og lagt okkur fram við að upplýsa
opið stöðuna eins og hún er á
hverjum tíma. Undirbúningur fyrir
viðgerð er á fullu og við muna
fara í hana eins fljótt og mögulegt
er. Við höfum öflugt teymi af inn-
lendum og erlendum sérfræðing-
um sem eru að skipuleggja við-
gerðina. Það þarf margt að ganga
upp og meðal annars þurfum við
góðan veðurglugga fyrir aðgerðir
á sjó. Við erum að gera allt sem
við getum til að flýta viðgerð
og um leið að tryggja rafmagn í
Eyjum,“ sagði Guðmundur Ingi
Ásmundsson forstjóri Landsnets í
samtali við Eyjafréttir.
Munum hafa áhyggjur af stöð-
unni þar til viðgerðum er lokið
„Íbúafundurinn var góður og
gagnlegur til að upplýsa íbúa um
stöðuna og framhaldið,“ sagði
Páll Erland forstjóri hjá HS Veit-
um í samtali við Eyjafréttir. Hann
segir hljóðið í heimamönnum
og hagsmunaaðilum hafa verið
ágætt þó skiljanlega séu margir
ósáttir við að strengurinn hafi
bilað og vilja að sæstrengsmálin
til Vestmannaeyja verði komin í
ásættanlegt horf hið fyrsta. „Það
er eðlilegt, bilunin í flutnings-
streng Landsnets til Vestmanna-
eyja er mjög alvarlegt mál því
við það veldur truflun á flæði
rafmagns til íbúa og atvinnulífs í
Eyjum. Hins vegar hefur kunnátta
og útsjónarsemi starfsfólks
Landsnets og HS Veitna gert það
að verkum að áhrifin af biluninni
eru mun minni en þau hefðu
getað orðið. HS Veitur eru með
dreifiveituna en þurfa að treysta
á sæstrengi Landsnets til að fá
raforku til Eyja.“ Í dag er búið að
koma því þannig fyrir að heimilin
og fyrirtækin sem eru á forgangs-
flutningi fá orku yfir sæstrengi
sem notaðir verða til bráðabirgða
að sögn Páls. „Hins vegar er
atvinnulífið í Eyjum að nota heil-
mikla orku til viðbótar, sér í lagi
nú þegar loðnuvertíðin er hafin.
Það veldur fyrirtækjunum, og í
raun þjóðarbúinu, umtalsverðum
viðbótarkostnaði. Við munum
hafa áhyggjur af stöðunni þar til
búið verður að ljúka viðgerðum á
strengnum, sem kannski næst ekki
fyrr en í sumar. Landsnet hefur
síðan gefið út að fyrirtækið stefni
Staðan er alvarleg
Guðlaugur Þór Þórðarson og Íris Róbertsdóttir. Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets á íbúafundi í Eldheimum.
Páll Erland forstjóri hjá HS Veitum á íbúafundi í Eldheimum.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is