Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Síða 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549
Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum.
Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri
Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is.
Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf.
Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Á Safnhelgi 2016 komu lista-
mennirnir Ingvar Björn Þorsteins-
son og Oddur Eysteinn Friðriks-
son til Eyja með frábæra pop-up
listasýningu. Ingvar Björn sagði
þá umsjónarmönnum Safnahelgar
frá fyrirhuguðu ljósaverki sínu,
að sýna eldgos þar sem ramm-
inn væri sjálf Hallgrímskirkja í
Reykjavík.
Ingvar Björn bætti því við að
hann sæi fyrir sér að Heimaklettur
væri kjörrammi fyrir sambærilega
sýningu og lýsti yfir áhuga sínum
á því að koma að slíku stórvirki.
Í febrúar 2017 varð gjörningurinn
að veruleika hvað Hallgrímskirkju
varðar og síðar sama ár sýndi
hann sambærilegt sjónlistaverk í
Barcelóna á Spáni.
Þau sem stóðu að Safnahelginni
í ár ákváðu að dusta rykið af
hugmynd Ingvars Björns og höfðu
samband við hann og sam-
starfsfólk hans. Úr varð að Örn
Ingólfsson verkefnastjóri fyrir
HljóðX kom með fylgdarflokk
og brá einstakri ævintýrabirtu
yfir Klettinn sjálfan tvö kvöld í
röð, föstudag og laugardag frá kl.
20.00 til 24.00.
Júníus Meyvant samdi af þessu
tilefni tónverk sem var spilað
undir meðan ljósgeislar gældu við
Heimaklett og brugðu sífellt nýrri
dularbirtu yfir.
Sannarlega eitt best heppnaða
atriði á Safnahelgi undarfarinna
ára og eiga allir sem hlut áttu að
máli miklar þakkir skildar.
Myndir Addi í London.
Í 13 ár hefur Creditinfo unnið
greiningu á rekstri íslenskra
fyrirtækja og veitt Framúrskar-
andi fyrirtækjum viðurkenningu
fyrir árangurinn. Framúrskarandi
fyrirtæki eiga það sameiginlegt að
vera stöðug fyrirtæki sem byggja
rekstur sinn á sterkum stoðum
og efla hag allra. Framúrskarandi
fyrirtæki í sem skráð eru í Vest-
mannaeyjum eru alls 13 í ár og
hefur fjölgað um þrjú frá síðasta
ári. Þau eru: Einsi Kaldi Veislu-
þjónusta ehf, Frár ehf, Skipalyftan
ehf, Miðstöðin Vestmannaeyjum
ehf, Fiskmarkaður Vestmanna-
eyja hf, Ós ehf, Bergur-Huginn
ehf, Bylgja VE 75 ehf, Narfi ehf,
Huginn ehf, Ísfélag hf, Kvika ehf
útgerð og Vinnslustöðin hf.
Til þess að teljast framúrskar-
andi þurfa fyrirtækin að uppfylla
ströng skilyrði sem eru: fyrir-
tækið er í lánshæfisflokki 1-3,
ársreikningi skal skilað lögum,
fyrirtækið er virkt skv. skilgrein-
ingu Creditinfo, Rekstrartekjur
að lágmarki 55 milljónir króna
reikningsárið 2022 og a.m.k. 50
milljónir króna 2021 og 2020,
fyrirtæki með rekstrartekjur yfir
5 milljarða króna þurfa að fylla
út spurningalista um sjálfbærni,
framkvæmdarstjóri skráður í fyrir-
tækjaskrá RSK, rekstrarhagnaður
(EBIT) > 0, jákvæð ársniðurstaða
reikningsárin 2020-2022, eig-
infjárhlutfall a.m.k. 20% reikn-
ingsárin 2020-2022 og eignir að
minnsta kosti 110 milljónir króna
reikningsárið 2022 og a.m.k. 100
milljónir króna 2021 og 2020.
Þrettán framúrskarandi í
Vestmannaeyjum
Einstök ævintýrabirta yfir
Heimakletti