Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Blaðsíða 15
9. nóvember 2023 | | 15
Það var góð stemning á lokahófi
fótboltans á laugardaginn. Engin
deyfð yfir mannskapnum þó bæði
karlar og konur hafi fallið úr deild
þeirra bestu á tímabilinu. Þeir
sem tóku til máls hvöttu þjálfara,
leikmenn og stjórnarfólk til dáða
næsta sumar.
Því var fagnað þegar upplýst var
að Hermann Hreiðarsson verður
áfram með meistaraflokk karla
næsta ár. Einnig var greint frá því
að Guðný Geirsdóttir, markmaður
hefur skrifað undir tveggja ára
samning sem er fagnaðarefni.
Elvis Bwomono, sem valinn var
leikmaður ársins er á förum frá
ÍBV og er þar skarð fyrir skildi.
En Hermann segir efnilega
leikmenn vera að koma upp og er
hann bjartsýnn um góðan árangur
á næsta tímabili.
Í öðrum flokki karla var Dagur
Einarsson valinn ÍBV-arinn. Karl
Jóhann Örlygsson þótti sýna
mestar framfarir og leikmaður
ársins er Viggó Valgeirsson. Í
öðrum flokki kvenna var
Thelma Sól Óðinsdóttir ÍBV-ar-
inn. Elísa Hlynsdóttir sýndi mest-
ar framfarir og leikmaður ársins
var Embla Harðardóttir.
Í meistaraflokki karla var Felix
Friðriksson ÍBV-arinn. Marka-
hæstur var Sverrir Páll Hjaltested
og leikmaður ársins er Elvis
Bwomono.
Í meistaraflokki kvenna var Júl-
íana Sveinsdóttir ÍBV-arinn. Olga
Sevcova markahæst og leikmaður
ársins Guðný Geirsdóttir.
Fréttabikararnir komu í hlut Hel-
enu Jónsdóttur og Tómasar Bent
Magnússonar.
„Í 35 ár hafa Fréttir, nú Eyjafréttir
veitt efnilegu fólki í yngri flokk-
um ÍBV í handbolta og fótbolta
viðurkenningu, Fréttabikarana,“
sagði Ómar Garðarsson, ritstjóri
Eyjafrétta á lokahófi fótboltans á
laugardaginn. „Þetta hefur verið
heiður fyrir okkur og ánægju-
legt að sjá þetta fólk ná þroska
sem einstaklinga og íþróttafólk.
Margir í þessum hópi hafa náð
langt og komist í hóp okkar
fremsta íþróttafólks á alþjóðavett-
vangi.“
Þau sem hlutu Fréttabikarana
árið 2023 eru Helena Jónsdóttir
og Tómas Bent Magnússon.
Helena Jónsdóttir er fædd árið
2004 og er því 19 ára í dag. Um
hana segir: Hún hefur verið dug-
leg að æfa og það skilaði henni
í meistaraflokk í sumar. Þar er
hún í hjarta varnarinnar. Hún lék
26 leiki í sumar og stóð eins og
klettur í vörninni og er sumarið
hennar besta til þessa með ÍBV.
Tómas Bent Magnússon er
fæddur 2002 og er því 21 árs. Um
hann segir: Hann er miðjumaður
að guðsnáð. Lék 27 leiki í sumar
og skoraði 1 mark og stóð sig
mjög vel.
„Þau eru í hópi ungra leikmanna
ÍBV sem við verðum að treysta
á í framtíðinni,“ sagði Ómar og
endingu og óskaði þeim gæfu og
velfarnaðar í framtíðinni.
Helena og Tómas Bent
hlutu Fréttabikarana
Helena og Tómas með Fréttabikarana.
Velheppnað lokahóf knattspyrnufólks:
Guðný Geirs og Elvis Bwomono best
2. fl. karla: Ellert framkvæmdastjóri af-
henti verðlaunin, Viggó, Karl og Dagur.
2. fl. kvenna: Elísa, Thelma og Embla.Mfl. Karla: Felix Friðriksson.Mfl. kvenna, Guðný og Júlíana.