Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Blaðsíða 9
9. nóvember 2023 | | 9
Það var ekki í kot vísað á
Bókakynningu í Einarsstofu á
laugardaginn þar sem rithöf-
undarnir Eva Björg Ægisdóttir,
Nanna Rögnvaldardóttir og
Vilborg Davíðsdóttir lásu upp
úr nýútkomnum bókum sínum.
Bók Evu Bjargar er Heim fyrir
myrkur er saga um mannshvarf
og glæp. Hún sló í gegn með
bókinni, Marrið í stiganum.
Nanna skiptir um gír og fer
úr matreiðslubókum yfir í
bókina Valskan sem rekur
sögu formóður hennar sem
uppi var í Móðuharðindunum.
Vilborg hefur skrifað merkar
bækur þar sem segir sögu fólks
á landsnámsöld, í Noregi,
Orkneyjum, Írlandi og Íslandi
á landsnámsöld. Nú fer hún í
austurveg í Landi Næturinnar.
Börnin fengu sitt á
Safnhelgi. Á laugardaginn
var opnuð á Bókasafninu
sýningin, Einar Áskell
50 ára. Farandsýning
í samstarfi við sænska
sendiráðið. Félagar úr
Leikfélagi Vestmannaeyja
nýttu tækifærið og kynntu
næsta verk LV, Söguna af
Gosa sem félagið frum-
sýnir nú í nóvember.
Hún er áhugaverð sýningin
sem opnuð var í Einarsstofu
á sunnudaginn. Sýningin er í
tilefni af aldarminningu Gísla
J. Ástþórssonar Eyjamanns og
blaðamanns sem ruddi braut
og skapara Siggu Viggu svo
eitthvað sé nefnt.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur
fjallaði um listamanninn af
mikilli snilld. Ástþór Gíslason,
sonur Gísla og Sunna Ástþórs-
dóttir barnabarn Gísla opnuðu
sýninguna og fóru yfir tilurð
hennar. Merk sýning og áhug-
verð um mann sem hafði mikil
áhrif á blaðamennsku á Íslandi.
Einn af stærri viðburðum Safna-
helgar er sýning Gíslínu Daggar
Bjarkadóttur í Eldheimum.
Sýninguna kallar hún Hugur
minn dvelur hjá þér – Heimaey
1973. Verkin tengjast eldgosinu
á Heimaey og þeim áhrifum sem
gosið hafði á samfélagið með
tilliti til náttúrunnar og mannfé-
lagsins.
Vestmannaeyjabær var heiðurs-
gestur Menningarnætur í Reykja-
vík í sumar í tilefni af 50 ára
goslokaafmæli og langvarandi
vinatengslum bæjarfélaganna.
Var sýning Gíslínu Bjarkar meðal
viðburða Menningarnætur.
Ólíkar bækur en
áhugaverðar
Vilborg, Eva Björg og Nanna eiga sinn þátt í að gera Safnahelgina 2023
eftirminnilega.
Myndina tók Þorsteinn Ólafsson við opnun sýningarinnar í Reykjavík.
Útskýringa er ekki þörf.
Einar Áskell og Gosi
Talast á við eldgosið 1973
Merkileg sýning um
einstakan mann