Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Blaðsíða 13
9. nóvember 2023 | | 13
Spurt og svarað : Þát t takendur í Sk já l f ta 2023
Júlí Bjart Sigurjóns
Hvert er þitt hlut-
verk í Skjálfta?
Mitt hlutverk í
skjálfta er að ég
er danshöfundur í
atriðinu og er líka
í búningavinnunni
og er að gera bún-
inga fyrir atriðið.
Hvað finnst þér
Skjálfti hafa gert
fyrir þig? Það
sem mér finnst að
skjálfti hafa gert
fyrir mig er að ég
þori að koma fram við annað fólk og segja
skoðunina á hlutum t.d eins og að skoðunina
á búningum fyrir atriðið.
Hefur farið mikill tími og vinna í undirbún-
ing? (hvað hefur tíminn verði nýttur í) JÁ!
Við stelpurnar erum búnar að vera á fullu í
að stússast í þessu meistaraverki okkar að við
erum farnar að hittast sumar eftir skóla og
pæla í dönsum og svoleiðis :)
Er eitthvað sem þú hefur lært í Skjálfta sem
mun nýtast þér í framtíðinni? já ég myndi
segja það að ég gæti gert marga hluti í einu.
Hvernig leggst sýningardagurinn í þig? Ég
kemst því miður ekki upp á land því að ég er
að leika í leikritinu Gosa og það fer akkúrat
fyrir en ég mun hvetja stelpurnar okkar úr
Eyjum heima á RÚV.
Bergdís Björnsdóttir
Hvert er þitt
hlutverk í Skjálfta?
Leikstjórn og
aukahlutverk.
Hvað finnst þér
Skjálfti hafa gert
fyrir þig? Skjálfti
hefur hjálpað mér
að þora tala við
fleiri og eignast
fleiri vini.
Hefur farið mikill
tími og vinna í
undirbúning? Já,
við höfum verið
á fullu á æfingum fullt af tímatökum, æft
dansana, hugsað úti búningana/tækni og
fínpússa atriðið.
Er eitthvað sem þú hefur lært í Skjálfta sem
mun nýtast þér í framtíðinni? Já, sjálfstraust
orðið betra.
Hvernig leggst sýningardagurinn í þig?
Spenna og pínu stress en er mjög spennt að
sýna atriðið.
Hvað stendur uppúr? Það sem stendur upp
úr er það hvernig við vinnum saman og hvað
allir geta sagt sínar hugmyndir og gert það
sem þeir vilja , það sem stendur út í atriðinu
er hvað áhorfendur geta lært af atriðinu
og sumir hafa farið í gegnum það sem er í
atriðinu.
Fannberg Einar
Þórarinsson
Hvert er þitt hlut-
verk í Skjálfta? Ég
er sviðsstjóri og í
búningahönnun og
er auka persóna í
leikritinu sjálfu.
Hvað finnst þér
Skjálfti hafa gert
fyrir þig? Hann
hefur hjálpað mér
að kynnast fleiri
fólki.
Hefur farið mikill
tími og vinna í
undirbúning? Það
er búið að vera mikill undirbúningur og við
erum aðallega búin að vinna við leikritið
sjálft.
Er eitthvað sem þú hefur lært í Skjálfta sem
mun nýtast þér í framtíðinni? Ég hef lært að
vinna betur í hóp að vera jákvæður.
Hvernig leggst sýningardagurinn í þig? Ég er
mjög spenntur fyrir sýningardeginum.
Hvað stendur uppúr? Það sem stendur upp
úr fyrir mér er að krakkarnir ráða hvernig
leikritið er.