Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Page 11
9. nóvember 2023 | | 11
Surtseyjareldar hófust öllum að
óvörum fyrir 60 árum. Skipverjar
á Ísleifi II VE 63 urðu fyrstir varir
við eldgosið. Þeir voru einskipa
á línuveiðum á þessum slóðum
snemma að morgni 14. nóvem-
ber 1963. Guðmar Tómasson
skipstjóri og Árni Guðmundsson
vélstjóri fóru upp á dekk um
sjöleytið og fundu þá einkenni-
lega lykt sem Árni hélt að væri
slagvatnsfýla.
Ólafur Vestmann matsveinn
átti baujuvaktina. Honum fannst
hreyfingar bátsins ólíkar því
sem hann átti að venjast, að því
er Guðjón Ármann Eyjólfsson
skrifar í Árbók Ferðafélags
Íslands 2009. „Í morgunskímunni
grillti Ólafur í þúst, eða að honum
fannst klett upp úr sjónum, til
suðausturs frá bátnum. Síðan sá
hann að þetta var reykur og hélt
þá að þarna væri skip að brenna.“
Vestmannaeyjaradíó var látið
vita. Guðmar skipstjóri tók upp
sjónaukann og sá svartar gjallsúl-
ur stíga upp úr sjónum. Upp var
komið neðansjávareldgos sem
hófst á 130 metra dýpi. Sama dag
fór að örla fyrir nýrri eyju.
Eldgosið vakti mikla athygli.
Strax um morguninn voru margar
flugvélar komnar á vettvang.
Surtseyjargosið kom Vestmanna-
eyjum á heimskortið svo um
munaði. Eyjamenn flykktust að
Hásteini, vestur á Hamar eða suð-
ur á Breiðabakka til að sjá gosið
og tignarlegan gosmökkinn. Hann
var ekki síður tilkomumikill um
nætur þegar eldingar hlupu upp og
niður skýstólpann.
Sturla Friðriksson erfðafræðing-
ur hóf rannsóknir í Surtsey vorið
1964 og fór um fimmtíu ferðir í
eyna. Hann fjallar m.a. um undan-
fara gossins í bók sinni Surtsey
- lífríki í mótun (Reykjavík 1994)
og vekur athygli á því að enginn
hafi tengt jarðskjálfta í fyrstu
viku nóvember 1963 við eldgos.
Þá veitti enginn hitastigshækkun
sjávar suðvestur af Geirfuglaskeri
sérstaka athygli. Fiskileitarskip-
ið Þorsteinn þorskabítur sigldi
þar yfir 13. nóvember 1963 og
mældi 2°C hækkun á sjávarhita á
litlu svæði. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur taldi að gossprunga
hefði opnast á sjávarbotni um
viku áður en gossins varð vart, að
því er segir í Náttúruvá á Íslandi
(Reykjavík 2013).
Hefur minnkað
Surtseyjareldar eru lengstu
eldsumbrot sem orðið hafa hér frá
því að land byggðist. Þeir stóðu í
þrjú ár og sjö mánuði og lauk 5.
júní 1967. Alls opnuðust fimm
gossprungur, þar af tvær í Surtsey.
Einnig varð neðansjávareldgos
um tvo kílómetra ANA af Surtsey
28. desember 1963 sem var nefnt
Surtla. Aftur varð gos um miðjan
maí 1965 um 600 metra ANA
af Surtsey og til varð Syrtlingur.
Enn eitt gosið hófst á annan í
jólum 1965 um einn kílómetra
SV af Surtsey. Þar myndaðist
Jólnir. Síðasttöldu eyjarnar hurfu
fljótlega sjónum en þeirra sér stað
á hafsbotni.
Við goslok í Surtsey var eyjan
2,65 ferkílómetrar og heildarmagn
gosefna metið vera 1,1 milljón
rúmmetra. Þar af voru 70% gjóska
en 30% hraun. Hafið og vindurinn
hafa rofið mikið efni úr Surts-
ey. Samkvæmt mælingum sem
gerðar voru í jarðfræðileiðangri
Náttúrufræðistofnunar Íslands á
liðnu sumri er flatarmál Surtseyjar
nú 1,21 ferkílómetri eða 46% af
upphaflegri stærð. Hægt hefur á
sjávarrofinu því aldan brotnar nú
mikið til á móbergi sem stenst
öldurótið betur en hraunið. Mest
hefur gengið á tangann sem
minnkar ört.
Surtsey var friðlýst árið 1965
og ferðir þangað takmarkaðar.
Eyjan hefur reynst vera lifandi
rannsóknastofa sem sýnir hvernig
líf nemur land. Heimsminjaskrá
UNESCO samþykkti árið 2008 að
Surtsey yrði sett á heimsminjalist-
ann. Eldfjallaeyjan hefur varpað
nýju ljósi á margt sem viðkem-
ur náttúrunni. Líffræðingar og
jarðfræðingar fara reglulega til
rannsókna í Surtsey til að fylgjast
með þróuninni í þessari þjóðar-
gersemi í Vestmannaeyjum.
Ný eyja reis úr hafi fyrir 60 árum
Surtseyjargosið hófst 14. nóvember 1963 Lengsta eldgos
Íslandssögunnar Fimm gossprungur opnuðust í Surtseyjareldum
Sextíu ár eru frá upphafi Surtseyjargossins. Það er lengsta eldgos á Íslandi frá því að land byggðist. Mynd Sigurgeir.
GUÐNI EINARSSON
gudnieinars@gmail.com