Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2023, Page 14
14 | | 9. nóvember 2023
Sigurlaug Vilbergsdóttir er
fædd og uppalin í Reykjavík.
Hún flutti til Vestmannaeyja
árið 2018 og er gift Jóhanni
Sigurði Þórarinssyni tölvunar-
fræðingi og rafeindavirkja hjá
Geisla. Sigurlaug starfar hjá
Fjölskyldu- og fræðslusviði í
Vestmannaeyjum og er með
einkarekstur í Reykjavík.
Sigurlaug eða Sía eins og
hún er oft kölluð á þrjá syni
frá fyrra hjónabandi sem eru
þeir Vilberg Andri 24 ára,
starfandi leikari og tvíburarnir
Ásmundur Ari og Arnþór Ingi
19 ára sem hafa báðir verið í
skóla hér í Vestmannaeyjum.
Jóhann á þau Þórarinn Sigurð
21 árs rafvirkja og Karítas Guð-
rúnu 17 ára sem er í Mennta-
skólanum í Kópavogi.
Eftir að Sigurlaug lauk námi í
Menntaskólanum í Hamrahlíð hóf
hún nám í Þroskaþjálfaskóla Ís-
lands. Þaðan útskrifaðist hún árið
1995. Árið 2006 fór hún í fram-
haldsnám í Háskóla Íslands og tók
diplómu í þroskaþjálfafræðum og
hugrænni atferlismeðferð.
Í Vestmannaeyjum starfar hún á
fræðslusviði sem ráðgjafarþroska-
þjálfi og í Reykjavík sinnir hún
þjónustu og ráðgjöf unglinga og
fullorðinna með einhverfu. Þeim
verkefnum hefur hún einnig sinnt
hér í Eyjum undir starfsheitinu Sía
Ráðgjöf, sem er ráðgjöf fyrir ein-
hverft fólk og foreldra einhverfra
barna. Áherslan er á ráðgjöf og
leiðir til að eiga við vandamál sem
koma fram í samspili einhverfu og
umhverfis.
Sérhæfði sig í einhverfu
Lengst af vann Sigurlaug hjá
Greiningar- og ráðgjafastöð
ríkisins. Starfið fólst í greiningum
á fötlunum barna og unglinga í
samvinnu við annað fagfólk. Stór
hluti starfsins fólst í ráðgjöf til
foreldra og skóla fólks, fræðslu
og námskeiðum um land allt. „
Í þessu starfi sérhæfði ég mig í
einhverfu sem hefur alltaf verið
mitt áhugasvið. Fékk tækifæri til
að dýpka mig og hef ég unnið við
það alveg síðan.“
Þegar Sigurlaug flytur til Vest-
mannaeyja hefur hún störf hjá
Fjölskyldu- og fræðslusviði og
sinnti ýmsum fjölbreyttum verk-
efnum. Í dag starfar hún einungis
á fræðslusviði sem málastjóri og
ráðgjafi fyrir börn, foreldra og
skólafólk.
Meðfram vinnunni í Eyjum
starfar Sigurlaug í Reykjavík. Þar
leigir hún stofu í húsi Sjónarhóls
á Háaleitisbraut 13 þar sem hún
sinnir einhverfugreiningum og
ráðgjöf unglinga og fullorðinna.
Í sama húsi starfa einhverfu sam-
tökin og fleiri sérfræðingar sem
sinna þjónustu og ráðgjöf fyrir
einhverfa, adhd og fatlaða. „Þetta
er einskonar samfélag sem ég
græði mikið á þar sem ýmiskonar
velferðarþjónusta fyrir þessa hópa
er á staðnum.“
Ráðgjöf á einhverfu byggist mikið
á þekkingu en líka á reynslu „Það
hefur skipt mig miklu máli eftir
að ég flutti til Eyja að halda í
þessi tengsl og þennan hluta af
starfinu og hafa möguleikann á að
fara á milli staða. Ég hef náð að
halda í mína fagþekkingu, sem ég
tel mikilvægt. Ég tel mig líka eiga
erindi í þetta með minni persónu-
legu reynslu og þekkingu. Á sama
tíma og ég er mjög ánægð með
vinnuna í Reykjavík er ég mjög
þakklát fyrir vinnuna mína í Eyj-
um og þar sinni ég annarskonar
verkefnum og viðheld þeim þætti
að geta unnið með skólafólki,
börnum og foreldrum.“
Einhverfu samfélagið hefur
stækkað
Á undanförnum árum hefur ein-
hverfu samfélagið farið stækk-
andi og einhverfir sjálfir orðnir
miklir talsmenn og fræðimenn.
Vakning í þessum málum hefur
verið mikil, minni fordómar og
meiri sýnileiki. Einhverfir í dag
eru allskonar. Einhverfa.is er með
frábært fræðslu efni, myndbönd
og jafningjafræðslu fyrir alla. Þar
starfar einhverft fólk sem miðlar
áfram þekkingu til einhverfra.
Einhugur er mjög öflugt ein-
hverfu samfélag sem er starfandi
í Eyjum. Sigurlaug er meðlimur
í Einhug og hafa þau reglulega
fengið ýmiskonar fræðslu.
Viðhorf í faginu skipta máli
Sigurlaug segir að á þessu sviði
eins og á svo mörgum öðrum
vanti úrræði, fólk, pláss og
pening. En það sem skipti mestu
máli séu viðhorfin í starfi og
gagnkvæm virðing. „Vinna í
velferðarmálum er snúin en á
sama tíma finnst mér að fólk sem
vinnur með fólk séu mjög sterkir
einstaklingar sem láta sig málin
varða og eru ekki að gera hlutina
nema af góðum hug og virðingu.
Þetta eru svo mikilvæg störf fyrir
allt samfélagið“.
Lifandi samfélag þar
sem gott er að búa
Samgöngur í Vestmannaeyjum
geta verið til ama en Sigurlaug
upplifir sig samt sem áður aldrei
fasta. Segir hún að hér sé margt
hægt að gera sem hún hefði ekki
trúað til að byrja með og á fag-
legum nótum segist hún upplifa
mikla jákvæðni og bjartsýni.
Þótt Sigurlaug sé mikið á milli
staða segir hún Eyjarnar sitt
heimili þar sem henni líði mjög
vel og þakklát að fá tækifæri til að
vinna og um leið kynnast mörgum
og mjög góðu fólki. „Ég er mjög
þakklát fyrir samstarfsfólkið mitt,
vini og fjölskyldu hér í Eyjum.
Mér finnst mikilvægt að kynnast
samfélaginu á mínum forsendum
og eignast vini og kunningja á
eigin vegum. Ég er ánægð með
viðmótið sem ég hef fengið og
þakklát fyrir hversu vel hefur
gengið. Mér finnst samfélagið hér
gott og kröftugt. Lifandi samfé-
lag þar sem gott er að búa“ segir
Sigurlaug að lokum.
Fræðsluefni:
• Facebook: Einhugur
• Einhverfuhandbokin.is
• Einhverfa.is
• Krossgatan.is
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Einhverfa mitt áhugasvið
Starfandi ráðgjafi einhverfra, barna, foreldra og skólafólks
Einstaklingar í faginu sem láta sig málin varða
Sigurlaug Vilbergsdóttir. Ásmundur Ari, Vilberg Andri, Sigurlaug, Karitas Guðrún, Jóhann Sigurður,
Arnþór Ingi og Þórarinn Sigurður.