SÍBS blaðið - 01.06.2023, Blaðsíða 3

SÍBS blaðið - 01.06.2023, Blaðsíða 3
3 2. tbl. 2023 SÍBS-blaðið 39. árgangur | 2. tölublað | júní 2023 ISSN 1670-0031 (prentuð útgáfa) ISSN 2547-7188 (rafræn útgáfa) Útgefandi: SÍBS Borgartúni 28a 105 Reykjavík sibs@sibs.is, www.sibs.is Ábyrgðarmaður: Guðmundur Löve gudmundur@sibs.is Ritstjóri: Páll Kristinn Pálsson pallkristinnpalsson@gmail.com Auglýsingar: Öflun ehf. Umbrot og prentun: Prentmet Oddi ehf. Upplag: 8.500 eintök Hlutverk SÍBS er að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar. SÍBS á og rekur endurhæfingar miðstöðina Reykjalund, öryrkjavinnustaðinn Múlalund, Heilsumiðstöð SÍBS og Happdrætti SÍBS. Efnisyfirlit 3 Af hverju kvenheilsa? 6 Breytingaskeið kvenna 12 Kynlöngun og andleg líðan á breytingaskeiði 14 Konur, svefn og hormón Þekkir þú þínar innri árstíðir? 18 Þvagleki - Tengsl við stoðkerfið 20 Tíðahringurinn og íþróttir Grein Efni blaðsins er að þessu sinni tileinkað kvenheilsu. En af hverju kvenheilsa? Og hvað með karlana? Er verið að búa til enn eitt sílóið þar sem líkaminn er bútaður niður í mismunandi einingar? Er þetta tímaskekkja í aukinni umræðu um ólíka kynvitund og kynhneigð einstaklinga? Allt eru þetta spurn- ingar sem komu fram þegar við settum á laggirnar nýtt kvenheilsuteymi innan Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins. En sem betur fer var jákvæð og uppbyggjandi umræða meira áberandi og skilningur á nauðsyn þess að sinna þessum málaflokki vel og markvisst og viðtökurnar hafa verið frábærar. Undanfarin ár hefur umfjöllun um kvenheilsu og ekki síst breytingaskeið kvenna fengið aukið pláss í umræðunni sem er að flestra mati löngu tíma- bært. Með þessari samantekt langar mig að draga fram þrjár megin ástæður þess að tímabært er að huga að kvenheilsu sérstaklega í nálgun okkar í heilbrigðiskerfinu. Í umræðunni hér er kvenheilsa miðuð út frá heilsu einstaklinga sem fæðast með XX litninga og eru skilgreind sem kvenkyns við fæðingu og umfjöllunin tekur að mestu mið af kyntvíhyggju. Og varðandi karlana, þá er gott að taka fram að með því að veita konum þjónustu vegna einkenna og sjúkdóma sem herja sérstaklega á konur er ekki verið að taka neitt frá körlum. Þjónusta til þeirra minnkar ekki. Þar eru einnig tækifæri til að draga fram sérstöðu karllíkamans og veita viðeigandi þjónustu. Stýrikerfi líkamans Stýrikerfi líkamans eru margskonar og taka þarf tillit til þeirra allra til að skilja hvernig líkami okkar starfar. Kynhormónin eru mjög öflugt stýrikerfi og hafa áhrif á alla líkamsstarfsemina. Stýrikerfi ólíkra kynja eru ólík og það er fyrsta ástæðan af þeim þremur sem mig langar að nefna sem ástæðu þess að vert er að horfa til kven- heilsu sérstaklega. Hormónin estrogen og prógesterón eru iðulega nefnd sem kven- hormón og testósterón sem karhormón. Til að flækja þetta aðeins þá er testósterón einnig hluti af kynhormónum kvenna og allt snýst þetta um magn, hlutföll, samspil og sveiflur. Erla Björnsdóttir sýnir í mynd í sinni grein um svefninn hvernig breyti- leiki kynhormóna í kvenlíkama er miklu meiri en breytileiki hormóna í líkama karla. Áhrif þessa öfluga stýrikerfis á líkamsstarfsemi, tilfinningar, svefn, mataræði og hreyfingu hefur lítill gaumur verið gefinn þar til nú. Hún setur þessar breytingar fram í samhengi við breytileika árstíðanna sem er skemmtileg nálgun. Þannig er líkami kvenna ekki bara með líkamsklukku sem hefur mismunandi hormónasveiflur innan hvers sólarhrings heldur einnig mánaðarlegar sveiflur sem breyta því hvernig líkaminn starfar. Þessi breytileiki er líka mismunandi milli æviskeiða. Á frjósemistímabili eru hormónasveiflur með nokkuð reglulegum hætti en svo þegar breytingaskeiðið fer að segja til sín þá verða þessar sveiflur óreglulegar og ófyrirséðar. Birtingarmynd Af hverju kvenheilsa? Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir, lýðheilsu- fræðingur og sérfræðilæknir við offitumeðferð Yfirlæknir Kvenheilsu hjá Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.