SÍBS blaðið - 01.06.2023, Blaðsíða 12

SÍBS blaðið - 01.06.2023, Blaðsíða 12
12 SÍBS-blaðið Kynlíf spilar stórt hlutverk í lífi flestra og nánd og kyn- ferðislegur unaður eykur flæði dópamíns og oxytocins í heila og eykur þar með almenna vel- líðan. Stór hluti kvenna upplifir minnkaða löngun í kynlíf og minni unað í kynlífi þegar þær koma á breytingaskeiðið. Því miður er kynlíf og kynlöngun ennþá erfitt umræðuefni fyrir marga og því margar konur sem þjást í hljóði og þora ekki að ræða þetta. Það er mikil- vægt að losa okkur við alla skömm þegar kemur að kynlífi og unaði og opna umræðuna um kynlöngun á breytinga- skeiði. Í sumum tilfellum er líkt og áhuginn sé bara ekki til staðar og sumar konur sjá fyrir sér að geta alveg lifað án kynlífs út lífið. Það getur haft mikil áhrif á sálræna líðan en fyrir aðrar skiptir það minna máli. Ef kyndeyfð er að hafa áhrif á lífs- gæði þá mæli ég með því að þú leitir þér aðstoðar. Fyrir þessu geta verið ýmsar ástæður enda er kynlöngun kvenna mörgum þáttum háð og það er hjálp að fá. Estrógen lækkar Hormónið estrógen er mikilvægt fyrir heilbrigði slímhúðar í leggöngum, ytri kynfærum og þvagfærum. Það viðheldur raka og teygjanleika og stuðlar auk þess að eðlilegri legganga- flóru og verndar gegn ýmsum sýkingum. Á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf, þegar estrógen gildin lækka, geta komið fram ýmis óþægindi frá leggöngum og þvagrás. Þessi einkenni geta versnað með tímanum og valda konum oft miklum óþægindum eftir tíðahvörf. Slímhúðir þynnast og verða þurrari og viðkvæm- ari. Þetta gerist einnig í slímhúðum í þvagrás og þvagblöðru og margar konur fara að finna fyrir óþægindum við þvaglát, tíð þvaglát og jafnvel þvagleka og verða móttækilegri fyrir þvagfærasýkingum. Einkenni geta verið sviði, kláði, verkir við samfarir, roði og erting. Í slæmum tilfellum geta konur átt erfitt með að vera í þröngum buxum vegna óþæginda. Góðu frétt- irnar eru samt þær að það er til áhrifarík meðferð við þessu. Estrógenmeðferð Staðbundin estrógenmeðferð er mjög áhrifarík við slím- húðarþurrki í leggöngum og þvagrásarkerfi. Þessi meðferð er mjög örugg, eykur ekki hættu á krabbameini eða blóðtappa og óhætt að halda meðferð áfram svo lengi sem hver kona vill og hefur ávinning af meðferðinni. Hægt er að nota hana samhliða hormónauppbótarmeðferð eða eina og sér. Þessi meðferð er lyfseðilsskyld og fæst í gegnum lækni, til dæmis heimilislækni eða kvensjúkdómalækni. Hægt er að fá töflur sem heita vagifem, sem settar eru upp í leggöng á hverjum degi fyrstu 14 dagana og eftir það 2-3 sinnum í viku. Einnig er hægt að fá mjúkan silikonhring, sem hér heitir estring, sem settur er upp í leggöng og gefur þar frá sér estrógen í 90 daga og því þarf að fjarlægja hann og setja nýjan á þriggja mánaða fresti. Ef kona treystir sér ekki til að skipta sjálf er hægt að fá lækni eða hjúkrunarfræðing á heilsugæslunni til að fjarlægja þann gamla og setja nýjan hring upp. Það er óhætt að hafa hringinn á sínum stað meðan á samförum stendur en sumum finnst betra að taka hann úr á meðan, þá er bara mikilvægt að muna að setja hann upp aftur að loknum samförum. Auk þessa eru til estrógenkrem sem hægt er að bera á sig, til dæmis ovestin. Einnig geta góð rakakrem og sleipiefni gert gæfumuninn. Það eru til ýmis krem sem eru framleidd sérstaklega fyrir slímhúð og viðkvæm svæði sem fást án lyfseðils. Testósterón líka í konum Hormónið testósterón er ekki bara karlhormón heldur fram- leiða eggjastokkar kvenna talsvert magn af testósteróni en framleiðslan fer minnkandi með aldrinum. Testósterón hefur áhrif á frumur í flestum kerfum líkamans og gegnir mikil- vægu hlutverkum, ekki síst í heilanum, þar sem það hefur meðal annars áhrif á heilastöðvar sem stýra andlegri vellíðan, skerpu, einbeitingu og athygli, og hefur jákvæð áhrif á kyn- löngun og unað í kynlíf. Svefnvenjur og streita Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi hefur neikvæð áhrif á kynlöngun. Ef þú ert að upplifa svefntruflanir þá er ekki skrítið að kynlíf sé ekki efst á forgangslistanum. Góðar svefn- venjur og bættur svefn geta því aukið kynlöngun. Streita getur einnig haft neikvæð áhrif á kynlöngun. Reyndu að minnka neikvæða steitu í lífinu, gefðu þér tíma til að rækta sjálfa þig og það sem þú nýtur að gera. Hugleiðsla og núvit- und eru góðar aðferðir til steitustjórnunar. Ef þú átt maka þá er mikilvægt að ræða þessi mál opinskátt. Ræðið um hvað þið Grein Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og eigandi GynaMEDICA Kynlöngun og andleg líðan á breytingaskeiði

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.