SÍBS blaðið - 01.06.2023, Side 12
12
SÍBS-blaðið
Kynlíf spilar stórt hlutverk í
lífi flestra og nánd og kyn-
ferðislegur unaður eykur flæði
dópamíns og oxytocins í heila
og eykur þar með almenna vel-
líðan. Stór hluti kvenna upplifir
minnkaða löngun í kynlíf og
minni unað í kynlífi þegar þær
koma á breytingaskeiðið. Því
miður er kynlíf og kynlöngun
ennþá erfitt umræðuefni fyrir
marga og því margar konur
sem þjást í hljóði og þora ekki
að ræða þetta. Það er mikil-
vægt að losa okkur við alla
skömm þegar kemur að kynlífi
og unaði og opna umræðuna
um kynlöngun á breytinga-
skeiði.
Í sumum tilfellum er líkt og áhuginn sé bara ekki til staðar
og sumar konur sjá fyrir sér að geta alveg lifað án kynlífs út
lífið. Það getur haft mikil áhrif á sálræna líðan en fyrir aðrar
skiptir það minna máli. Ef kyndeyfð er að hafa áhrif á lífs-
gæði þá mæli ég með því að þú leitir þér aðstoðar. Fyrir þessu
geta verið ýmsar ástæður enda er kynlöngun kvenna mörgum
þáttum háð og það er hjálp að fá.
Estrógen lækkar
Hormónið estrógen er mikilvægt fyrir heilbrigði slímhúðar í
leggöngum, ytri kynfærum og þvagfærum. Það viðheldur raka
og teygjanleika og stuðlar auk þess að eðlilegri legganga-
flóru og verndar gegn ýmsum sýkingum. Á breytingaskeiði og
eftir tíðahvörf, þegar estrógen gildin lækka, geta komið fram
ýmis óþægindi frá leggöngum og þvagrás. Þessi einkenni geta
versnað með tímanum og valda konum oft miklum óþægindum
eftir tíðahvörf. Slímhúðir þynnast og verða þurrari og viðkvæm-
ari. Þetta gerist einnig í slímhúðum í þvagrás og þvagblöðru
og margar konur fara að finna fyrir óþægindum við þvaglát,
tíð þvaglát og jafnvel þvagleka og verða móttækilegri fyrir
þvagfærasýkingum. Einkenni geta verið sviði, kláði, verkir við
samfarir, roði og erting. Í slæmum tilfellum geta konur átt erfitt
með að vera í þröngum buxum vegna óþæginda. Góðu frétt-
irnar eru samt þær að það er til áhrifarík meðferð við þessu.
Estrógenmeðferð
Staðbundin estrógenmeðferð er mjög áhrifarík við slím-
húðarþurrki í leggöngum og þvagrásarkerfi. Þessi meðferð er
mjög örugg, eykur ekki hættu á krabbameini eða blóðtappa
og óhætt að halda meðferð áfram svo lengi sem hver kona
vill og hefur ávinning af meðferðinni. Hægt er að nota hana
samhliða hormónauppbótarmeðferð eða eina og sér. Þessi
meðferð er lyfseðilsskyld og fæst í gegnum lækni, til dæmis
heimilislækni eða kvensjúkdómalækni. Hægt er að fá töflur
sem heita vagifem, sem settar eru upp í leggöng á hverjum
degi fyrstu 14 dagana og eftir það 2-3 sinnum í viku. Einnig
er hægt að fá mjúkan silikonhring, sem hér heitir estring,
sem settur er upp í leggöng og gefur þar frá sér estrógen í 90
daga og því þarf að fjarlægja hann og setja nýjan á þriggja
mánaða fresti. Ef kona treystir sér ekki til að skipta sjálf er
hægt að fá lækni eða hjúkrunarfræðing á heilsugæslunni
til að fjarlægja þann gamla og setja nýjan hring upp. Það
er óhætt að hafa hringinn á sínum stað meðan á samförum
stendur en sumum finnst betra að taka hann úr á meðan,
þá er bara mikilvægt að muna að setja hann upp aftur að
loknum samförum. Auk þessa eru til estrógenkrem sem hægt
er að bera á sig, til dæmis ovestin. Einnig geta góð rakakrem
og sleipiefni gert gæfumuninn. Það eru til ýmis krem sem eru
framleidd sérstaklega fyrir slímhúð og viðkvæm svæði sem
fást án lyfseðils.
Testósterón líka í konum
Hormónið testósterón er ekki bara karlhormón heldur fram-
leiða eggjastokkar kvenna talsvert magn af testósteróni en
framleiðslan fer minnkandi með aldrinum. Testósterón hefur
áhrif á frumur í flestum kerfum líkamans og gegnir mikil-
vægu hlutverkum, ekki síst í heilanum, þar sem það hefur
meðal annars áhrif á heilastöðvar sem stýra andlegri vellíðan,
skerpu, einbeitingu og athygli, og hefur jákvæð áhrif á kyn-
löngun og unað í kynlíf.
Svefnvenjur og streita
Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi hefur neikvæð áhrif á
kynlöngun. Ef þú ert að upplifa svefntruflanir þá er ekki
skrítið að kynlíf sé ekki efst á forgangslistanum. Góðar svefn-
venjur og bættur svefn geta því aukið kynlöngun. Streita
getur einnig haft neikvæð áhrif á kynlöngun. Reyndu að
minnka neikvæða steitu í lífinu, gefðu þér tíma til að rækta
sjálfa þig og það sem þú nýtur að gera. Hugleiðsla og núvit-
und eru góðar aðferðir til steitustjórnunar. Ef þú átt maka þá
er mikilvægt að ræða þessi mál opinskátt. Ræðið um hvað þið
Grein
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
læknir og eigandi GynaMEDICA
Kynlöngun og andleg
líðan á breytingaskeiði